Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 63
LIECHTENSTEIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þegar talað hefur verið um „skyldu-
sigur“ í leiknum gegn Liechtenstein
í undankeppni heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu sem fram fer á
Rheinpark-leikvanginum í Vaduz í
kvöld kemur strax upp í hugann við-
ureign þjóðanna sem þar fór fram
17. október árið 2007.
Arnar Þór Viðarsson og Eiður
Smári Guðjohnsen, núverandi þjálf-
arar landsliðsins, voru í íslenska lið-
inu þetta októberkvöld þar sem
Liechtenstein vann einn fræknasta
sigur sinn í sögunni, 3:0, en þau úr-
slit eru jafnframt skráð í íslenskar
sögubækur sem ein verstu úrslit Ís-
lands frá upphafi.
Frick og Beck voru frískir
Bráðfrískir framherjar Liechten-
stein, Mario Frick og Thomas Beck,
léku íslensku vörnina grátt. Í henni
miðri stóð Ragnar Sigurðsson, sem
er einn eftir í landsliðshópnum af
þeim sem léku þennan leik fyrir
fjórtán árum. Hann leikur reyndar
ekki í kvöld vegna meiðsla. Kári
Árnason hafði leikið næstu fjóra
leiki landsliðsins á undan en var
ekki valinn í átján manna hópinn
fyrir þennan leik.
Reyndar vissu allir að Liechten-
stein gat bitið frá sér því liðin höfðu
skilið jöfn, 1:1, á Laugardalsvell-
inum í sömu undankeppni, fyrir EM
2008, í júnímánuði þetta sama ár.
Þar höfðu Liechtensteinar síst verið
lakari aðilinn enda sennilega með
sitt besta landslið í sögunni um
þetta leyti.
Lið Íslands og Liechtenstein hafa
haldið sitt í hvora áttina frá árinu
2007. Á þessum árum var lið Vaduz,
eina atvinnulið Liechtenstein, að
stórum hluta skipað landsliðs-
mönnum þjóðarinnar og var sterkt
A-deildarlið í Sviss. Í dag er Vaduz
nær eingöngu skipað erlendum leik-
mönnum, og er í svissnesku A-
deildinni. Vaduz sló einmitt Breiða-
blik út úr Evrópukeppni fyrir
tveimur árum.
Flestir í D-deildinni í Sviss
Landsliðsmenn Liechtenstein í
dag spila aftur á móti flestir með
næstbestu liðum landsins, Esch-
en/Mauren og Balzers, sem bæði
leika í svissnesku D-deildinni, efstu
deild áhugamanna í Sviss. Eins og
kom fram í viðtali við Helga Kol-
viðsson, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ara Liechtenstein, í blaðinu í gær
hefur keppni þar legið niðri í langan
tíma vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Lið Eschen/Mauren og Balzers
léku síðast deildarleiki 17. október
en þá höfðu þau spilað átta leiki
hvort á tímabilinu 2020-2021.
Nokkrir atvinnumenn
Nokkrir atvinnumenn eru í liði
Liechtenstein, m.a. fyrirliðinn og
leikjahæsti maðurinn, Nichoas
Hasler, 29 ára miðjumaður, sem
hefur spilað 75 landsleiki og leikur
með Thun í svissnesku B-deildinni.
Hinn 19 ára gamli Noah Frick,
bráðefnilegur framherji, leikur með
Neuchatel Xamax í sömu deild og
bróðir hans, sóknarmaðurinn Yanik
Frick, með Energie Cottbus í þýsku
D-deildinni. Markvörðurinn Benj-
amin Büchel er eini leikmaður Vad-
uz í landsliðinu um þessar mundir,
ásamt reyndar ungum varamark-
verði.
Liechtenstein tapaði naumlega,
0:1, fyrir Armeníu á heimavelli í
fyrstu umferð riðilsins síðasta
fimmtudag og fékk á sig sjálfsmark
rétt fyrir leikslok. Armenar réðu
lögum og lofum í þeim leik en gekk
illa að brjóta vörn Liechtenstein á
bak aftur. Flóðgáttirnar opnuðust
hinsvegar í Skopje á sunnudags-
kvöldið þegar Liechtenstein tapaði
5:0 fyrir Norður-Makedóníu eftir að
staðan var 1:0 í hálfleik.
Landsliðsþjálfarinn skoraði
Ísland hefur unnið fjóra af þeim
sjö landsleikjum sem háðir hafa ver-
ið við Liechtenstein frá 1997. Liðin
gerðu öðru sinni jafntefli, 1:1, í vin-
áttuleik á Laugardalsvellinum árið
2010 og þá skoraði Martin Stock-
lasa, núverandi landsliðsþjálfari,
einmitt mark Liechtenstein. Þrír af
fjórum sigurleikjum Íslands hafa
endað 4:0, tvívegis árið 1997 í und-
ankeppni HM og vináttuleikur á
Laugardalsvellinum í júní 2016, rétt
áður en haldið var á EM í Frakk-
landi. Þá vann Ísland vináttuleik lið-
anna á La Manga á Spáni árið 2009,
2:0, m.a. með 19 ára gamlan Aron
Einar Gunnarsson innanborðs.
Engir áhorfendur
Engir áhorfendur verða á leikn-
um í Liechtenstein í kvöld enda
svipaðar takmarkanir þar og víðast
hvar í Evrópu vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar. Það verða við-
brigði frá leiknum í Armeníu á
sunnudaginn þar sem fjögur þúsund
manns sáu leik íslenska liðsins.
Þjóðarleikvangurinn Rheinpark
Stadion, þar sem íslenska liðið æfði
í gær, rúmar annars um 7.500
áhorfendur og er heimavöllur Va-
duz. Þar lék Ísland áður í fyrr-
greindum leik árið 2007 en hann
hafði ekki verið byggður þegar
þjóðirnar mættust fyrst árið 1997.
Sá leikur fór fram í Eschen, nyrsta
bæ landsins, á heimavelli Eschen/
Mauren sem þá gegndi hlutverki
þjóðarleikvangs.
Liechtenstein er fjórða minnsta
ríki Evrópu, aðeins 160 ferkílómetr-
ar að flatarmáli, og íbúar eru tæp-
lega 40 þúsund. Aðeins San Marínó,
Mónakó og Vatíkanið eru minni, og
aðeins San Marínó og Vatíkanið eru
fámennari.
Landslið Liechtensten er núna í
181. sæti af 207 þjóðum á heimslista
FIFA og í 53. sæti af 55 þjóðum
UEFA á listanum, á undan Gíbralt-
ar og San Marínó. Best hefur liðið
komist í 122. sæti heimslistans og
það var einmitt árið 2007.
„Skyldusigur“ gegn liði
sem lék Ísland grátt?
- Liechtenstein oftar en einu sinni reynst erfiður andstæðingur íslenska liðsins
Morgunblaðið/Eggert
Skoraði Birkir Már Sævarsson í baráttu við Dennis Salanovic, leikmann Liechtenstein, á Laugardalsvellinum í júní
2016 en þá skoraði hann eitt markanna í 4:0 sigri Íslands. Birkir gæti spilað sinn 97. landsleik í Vaduz í kvöld.
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
_ Handknattleikskonan Unnur Ómars-
dóttir hefur ákveðið að leika með KA/
Þór, uppeldisliði sínu, frá og með
næsta tímabili en hún skrifaði í gær
undir tveggja ára samning við Akureyr-
arliðið. Unnur hefur leikið með fram
undanfarin ár en einnig með Gróttu og
norska félaginu Skrim. Hún á 29 lands-
leiki að baki.
_ Skagamaðurinn Þórður Þorsteinn
Þórðarson er kominn til liðs við ÍA á
nýjan leik eftir tæplega tveggja ára
fjarveru en hann var kynntur til leiks á
ný hjá Knattspyrnufélagi ÍA í gær.
Þórður, sem er 26 ára gamall hægri
bakvörður, fór frá ÍA til FH á miðju
sumri 2019 og svo þaðan til HK í ágúst
á síðasta ári. Hann á að baki 84 leiki í
efstu deild, þar af 67 fyrir ÍA, tíu fyrir
FH og sjö fyrir HK, og hefur skorað í
þeim átta mörk.
_ Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur
samið við Leikni í Reykjavík um að
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leikn-
ismanna, gangi til liðs við Kópavogs-
félagið að þessu keppnistímabili loknu.
Sævar lék einn leik með Leikni í úrvals-
deildinni árið 2015, þá fimmtán ára
gamall, og hefur síðan verið í lykilhlut-
verki, skorað 31 mark í 80 leikjum í B-
deildinni, og átti stóran þátt í að koma
liðinu aftur upp í efstu deild síðasta
haust.
_ Roberto Firmino, framherji Eng-
landsmeistara Liverpool í knattspyrnu,
hefur hafið æfingar með liðinu á nýjan
leik. Firmino, sem er 29 ára gamall, var
að glíma við hnémeiðsli en hann missti
af síðustu þremur leikjum liðsins fyrir
landsleikjahlé vegna meiðslanna. Jür-
gen Klopp, stjóri Liverpool, reiknar
með því að geta notað leikmanninn
þegar Liverpool heimsækir Arsenal í
ensku úrvalsdeildinni á Emirates-
völlinn í London á laugardaginn kemur.
_ Karlalið FH í knattspyrnu er komið í
sóttkví eftir að einn leikmanna liðsins
greindist með smit af kórónuveirunni.
Valdimar Svavarsson, formaður knatt-
spyrnudeildar FH, sagði við 433.is í
gær að félagið hefði ákveðið að taka
enga áhættu og senda allan hópinn í
sóttkví fram yfir páska, enda þótt æft
hefði verið í hólfum að undanförnu.
_ Mohammed Al-Hakim dæmir leik
Liechtenstein og Íslands í undankeppni
HM í knattspyrnu á Vaduz í dag. Al-
Hakim, sem er sænskur, fæddist í Írak
en hann er 35 ára gamall. Honum til
aðstoðar verða þeir Fredrik Klyver og
Mikael Hallin en Adam Ladebäck verð-
ur fjórði dómari. Hann hefur verið FIFA-
dómari frá árinu 2015 en ásamt því að
vera dómari hefur hann einnig starfað
sem hermaður í Svíþjóð.
_ Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði
Fram og landsliðskona í handknattleik,
fékk staðfest í gær að hún væri með
slitið krossband í hægra hné. Hand-
bolti.is greindi frá þessu
og þar segir Steinunn
að tíðindin séu kjafts-
högg, enda verður
hún að óbreyttu frá
keppni fram á
næsta ár. Steinunn
meiddist í leik Ís-
lands og Norður-
Makedóníu í und-
ankeppni HM í
Skopje fyrr í þessum
mánuði. Hún lenti illa
eftir að hafa skorað úr
hraðaupphlaupi í fyrri
hálfleiknum og kom ekki
meira við sögu með ís-
lenska liðinu í leikjunum
þremur á mótinu.
Eitt
ogannað
Ómar Ingi Magnússon, landsliðs-
maður í handknattleik og leik-
maður Magdeburg, er einn þeirra
sjö leikmanna sem koma til greina
sem besti leikmaður marsmánaðar í
sterkustu deild heims, þýsku 1.
deildinni. Ómar hefur verið í mikl-
um ham með liði Magdeburg að
undanförnu, skoraði 6,5 mörk að
meðaltali í leik í mars, og er nú
fimmti markahæsti leikmaður
deildarinnar. Sjö leikmenn eru til-
nefndir, einn í hverri stöðu á vell-
inum, og Ómar er því þegar kominn
í sjö manna úrvalslið mánaðarins.
Ómar einn af sjö
bestu í mars
AFP
Góður Ómar Ingi Magnússon hefur
leikið mjög vel með Magdeburg.
Alls eru fimmtán útileikmenn leik-
færir hjá U21-árs landsliðinu í
knattspyrnu þegar liðið mætir
Frakklandi í lokaleik sínum í loka-
keppni EM 2021 í C-riðli keppn-
innar í Györ í Ungverjalandi í dag.
Þrátt fyrir töp gegn Rússlandi og
Danmörku í fyrstu tveimur leikjum
sínum á Ísland enn þá möguleika á
því að fara upp úr riðlinum og í út-
sláttarkeppnina sem fer fram í maí
og júní en til þess þarf Ísland að
vinna Frakka með fjórum mörkum
hið minnsta og treysta á að Danir
leggi Rússa að velli.
Möguleikinn enn
þá til staðar
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Sókn Það mun mikið mæða á
Mikael Anderson í sóknarleiknum.