Bændablaðið - 24.06.2021, Side 1
12. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 24. júní ▯ Blað nr. 589 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Einkaviðræður við hóp fjárfesta
um sölu á Bændahöllinni
– Fjárfestahópurinn tengist meðal annars Hótel Óðinsvéum og áformar áframhaldandi rekstur hótels í húsinu
Stjórn Bændahallarinnar ehf.,
félags í eigu Bændasamtaka
Íslands, hefur samþykkt að hefja
einkaviðræður við hóp fjár-
festa um sölu á fasteign sinni,
Bændahöllinni við Hagatorg 1 í
Reykjavík, sem hýst hefur Hótel
Sögu síðan 1962.
Fjárfestahópurinn tengist meðal
annars Hótel Óðinsvéum. Gangi
kaupin eftir áforma nýir eigendur
áframhaldandi rekstur hótels í fast-
eigninni, að því er segir í tilkynn-
ingu samningsaðila sem undirrituð
er af Sigurði Kára Kristjánssyni
hæstaréttarlögmanni. Hann var skip-
aður tilsjónarmaður með fjárhags-
legri endurskipulagningu Bænda-
hallarinnar, sem veitt var heimild
til í júlí á síðasta sumri. Sú heimild
rennur endanlega út þann 7. júlí næst-
komandi svo ljóst er að viðræður við
fjárfestahópinn miðast við að þeim
verði lokið fyrir þann tíma.
Ekki í fyrsta sinn sem
reynt er að selja hótelið
Áform um að selja Hótel Sögu
eru ekki ný af nálinni og oft hafa
bændur tekist á um slíkar hug-
myndir. Alvara komst í þau mál í
kjölfar rekstrarvanda sem fram kom
í ársreikningi 2012. Var tilkynnt um
það 19. nóvember 2014 að Hótel
Saga væri til sölu. Sagt var að mikill
áhugi fjárfesta væri á að kaupa
þetta sögufræga hótel við Hagatorg.
Frestur var til 16. janúar 2015 til að
leggja fram skuldbindandi tilboð.
Hætt við sölu 2015
Bárust fjögur tilboð, en ekkert þeirra
þótti nógu hagstætt. Var því hætt við
söluna og taldi stjórnin hagstæðara
að halda áfram rekstri hótelsins og
ráðast í endurbætur á byggingunni.
Í kjölfar kostnaðarsamra endur-
bóta á hótelbyggingunni skall á
heimsfaraldur vegna Covid-19.
Leiddi það ásamt rekstrarvanda til
þess að Hótel Saga var sett í greiðslu-
stöðvun og hótelrekstri lokað um
óákveðinn tíma frá og með 1. nóv-
ember 2020. Fram að því höfðu verið
236 herbergi í rekstri auk annarrar
starfsemi í þessu 20 þúsund fer-
metra húsi, þar á meðal skrifstofur
Bændasamtaka Íslands.
Aftur samþykkt að hefja söluferli
á síðasta Búnaðarþingi
Á Búnaðarþingi í mars 2021 var
stjórn Bændasamtakanna veitt ný
heimild til að ræða við áhugasama
kaupendur og undirbúa sölu á Hótel
Sögu. Margir hafa sýnt áhuga á
að kaupa húsið og um tíma voru
uppi hugmyndir um að ríkið keypti
bygginguna fyrir starfsemi Háskóla
Íslands. Af því hefur ekki orðið. Nú
hillir hins vegar undir að skrifað
verði undir kaup hóps fjárfesta á
húsinu í byrjun júlí.
Stórmerkileg saga
Hótel Saga á merka sögu í hótel-
rekstri og menningarlífi Íslendinga.
Hefur það verið vettvangur fjöl-
margra stórviðburða og jafnt er-
lendra og innlendra listamanna
sem og stjórnmálamanna og þjóðar-
leiðtoga í gegnum áratugina. Þá
gistu þar meðal annarra fyrstu tungl-
farar heimsbyggðarinnar þegar þeir
stunduðu æfingar fyrir flug Appolo
eldflauga NASA til tunglsins. Í þeim
hópi voru Neil Armstrong og Buzz
Aldrin, sem stigu fyrstir manna á
yfirborð tunglsins þann 20. ágúst
1969.
Fyrsta skóflustunga að byggingu
Hótel Sögu var tekin í júlí 1956,
en hótelið var tekin í notkun 1962.
Byggingu fyrri áfanga lauk þó ekki
fyrr en 1965. Á áttunda áratug síð-
ustu aldar var ákveðið að byggja sjö
hæða byggingu við Bændahöllina
að norðanverðu. Framkvæmdir við
verkið hófust árið 1982 og lauk
1985. /HKr.
Hótel Saga, eða Bændahöllin, við Hagatorg í Reykjavík mun væntanlega innan tíðar hverfa úr eigu bænda sem hafa
rekið þar hótel frá 1962, eða í 59 ár. Mynd / HKr.
Á��tir á tj�rn með fimm unga s�ammt �rá eyðib��inu H�rgsho�ti � Hrunamannahre��i. Á��tir ha�a verið mj�g áberandi á �uður�andi og v�ðar � sumar og e��i s�st á túnum b�nda, en á��tir eru stórar
og þurftarfrekar grasætur. Afkoma í álftastofninum viðist líka vera mjög góð eins og þessi mynd ber með sér. Mynd / HKr.
Tilraunir á Geitasandi með áhrif
lífrænna efna á gróðurframvindu
26
Óviðunandi þjónusta sláturhúsanna
við geitfjárbændur
14 22
Hjartað slær með
landbúnaði í sveitinni