Bændablaðið - 24.06.2021, Page 6

Bændablaðið - 24.06.2021, Page 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 20216 Landbúnaður er ein grundvallaratvinnu- greina á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki í fæðuöryggi þjóðar innar. Virðiskeðjan frá haga í maga er burðarás í lífsviðurværi á mörgum dreifbýlissvæðum landsins og landbúnaður inn sem atvinnu- grein skiptir sköpum fyr ir samfélagið í tengslum við lýðheilsu, menningu, efnahag og byggðaþróun. Á næstu árum bíða þó margvíslegar áskoranir atvinnugreinarinnar, svo sem á sviði loftslags- og umhverfismála, nýsköpunar, matvælaöryggis og örari breytinga á neyslumynstri. Neytendur gera sífellt meiri kröfur um fjölbreytt vöruúrval og ferskleika en eftirspurnin innanlands eftir flestum landbúnaðarvörum hefur aukist, ekki síst með aukinni umhverfisvitund. En það er fyrst og fremst öll virðiskeðja matvæla sem skiptir máli því það á að skipta neytandann máli hvernig matvæli eru framleidd og við hvaða aðstæður. „ Gul stéttarfélög“ Upp á síðkastið hefur Alþýðusambandið látið sverfa til stáls gagnvart svokölluðum gulum stéttarfélögum. Það er vel hægt að taka undir orð forseta ASÍ í ræðu sem flutt var á formannafundi ASÍ, en hún sagði m.a. að ekki væri ástæða til að lækka laun í íslenskum fataiðnaði af því að það væru lægri laun í Bangladesh. Þetta hafa bændur bent á árum saman. Krafa um mikinn kaupmátt og ódýr matvæli Um leið og þess er krafist að kaupmáttur launa á Íslandi sé í hæstu hæðum er þess krafist að matvæli séu ódýr. Með viðskiptasamningum eru íslenskir bændur látnir keppa við bændur í löndum þar sem laun eru mun lægri. Ti l upprif junar má nefna að ASÍ lagði hart að stjórnvöldum árið 2016 að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um samábyrgð/keðjuábyrgð verktaka á íslenskum vinnumarkaði, en ASÍ hafði fengið sterkar vísbendingar þess efnis að undirboð fóru vaxandi á íslenskum vinnumarkaði, ekki síst hjá erlendum fyrirtækjum sem komu hingað til lands með starfsmenn sína og tengdust stórum samningskeðjum verktaka á byggingamarkaði og við aðrar verklegar framkvæmdir. Það væri því fróðlegt að vita hvort stærsta launþegahreyfing landsins hefur skipt um skoðun frá því þegar þau hvöttu til lækkunar tolla á búvörum, m.a. með viðskiptasamningi við ESB. En sá samningur hefur lækkað verð til bænda með sambærilegum hætti við það sem samtökin berjast nú um við flugfélög. B�ndab�aðið �emur út �� sinnum á ári. �v� er drei�t ó�ey�is á yfir ��� st�ðum á �andinu og á ��� ��gb��i �andsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 11.600 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 7.600 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Eftir áratuga eyðimerkurgöngu í meðhöndlun sorps á Íslandi berast nú þau tíðindi að fara eigi að taka til hendi við að „ undirbyggja ákvarðanir “ um tæknilausnir, staðarval og kostnað við byggingu á 100 þúsund tonna sorporkustöð sem væntanlega verður byggð á Suðurnesjum. Að undirbúningi ákvarðanatöku, sem á að taka fjóra mánuði, standa fjögur byggðasamlög, þ.e. Sorpa, Kalka á Suðurnesjum, Sorpurðun Vestur- lands og Sorpstöð Suðurlands, auk umhverfisráðuneytisins. Á starfssvæði byggðasamlaganna fellur til nærri 85% alls úrgangs á landinu. Eins og margoft hefur verið fjallað um hér í Bændablaðinu þá hefur ríkt ótrúlegt úrræðaleysi í sorpmálum Íslendinga líkt og skólpmálum um áratuga skeið. Vandræðagangurinn í sorpmálunum er einkum tilkominn vegna kreddufullrar pólitískrar afstöðu þeirra sem ráðið hafa ferðinni í umhverfismálum, bæði á landsvísu sem og í sveitarstjórnarpólitík, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Þar á bæ vildi fólk hreinlega ekki taka mark á þeirri þróun sem átt hefur sér stað í sorpbrennslumálum á Norðurlöndum og víðar um heim á liðnum áratugum. Gilti þá einu þó sýnt hafi verið fram á með vísindalegum gögnum og útreikningum ágæti þess að umbreyta sorpi í orku. Þess í stað hefur verið haldið dauðahaldi í þá afstöðu að öll brennsla á sorpi sé alslæm og ekki í takti við þá hugmyndafræði sem rekin hefur verið í loftslagsmálum. Með þessa sérkennilegu hugmyndafræði að leiðarljósi var m.a. farið út í botnlausan fjáraustur við uppbyggingu á jarðgerðar- og gasstöð í Álfsnesi sem kostaði skatt- og útsvarsgreiðendur á sjöunda milljarð króna. Sú stöð getur samt ekki annast förgun á plasti og ýmsum efnum sem áfram hefur orðið að urða. Þá hefur verið upplýst að annað meginframleiðsluafurð stöðvarinnar, molta, er algjörlega ónothæf vegna mengandi efna sem í henni eru. Ýmsir hafa reynt að hafa vit fyrir þeim sem ráðið hafa ferðinni. Hafa menn þar bent á tæknilausnir sem þegar eru til þannig að óþarfi sé að finna upp enn eitt hjólið á Íslandi. Þá hefur allavega eitt norskt sorpbrennslufyrirtæki boðist til að fjármagna, byggja og reka slíka stöð á Íslandi og þá helst á Suðurnesjum. Hafa menn þar meira að segja horft á þann kost að nýta koltvísýringinn sem frá stöðinni kemur fyrir ræktun grænmetis í stórum stíl til útflutnings. Ekki hafa menn samt séð ástæðu til að svara slíku boði, sem sennilega má þó meta á 35 milljarða króna. Nú segir borgarfulltrúi VG og formaður stjórnar Sorpu, sem á og rekur jarðgerðar- og gasstöðina GAJA, í viðtali í Morgunblaðinu sl. þriðjudag að þar sé „verið að ná tökum á lífrænum úrgangi“ . Einnig segir: „Næsta stóra verkefnið er að afsetja brennanlegan úrgang.“ Fram kemur í þessu viðtali að nú eigi loks að fara að skoða málin. Allt verði skoðað, meðal annars flutningur sorpsins, sótspor þess og staðarval sorporkustöðvar sem og nýting „glatvarma“. Þar er líka ánægjulegt að sjá í þessu viðtali að eftir ábendingar fjölda fólks árum saman fyrir daufum eyrum, eru íslenskir stjórnmálamenn nú loks að átta sig á að Íslendingar verði sjálfir að bera ábyrgð á eigin úrgangi. Það ber að fagna þeim góðu tíðindum og að einhver hreyfing sé að komast á sorpeyðingarmálin á Íslandi. Skrítið er þó að menn fari fyrst að opna augun þegar styttast fer í sveitarstjórnarkosningar og vart meira en korter er í boðaðar alþingiskosningar. /HKr. ÍSLAND ER LAND ÞITT Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 � Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – �ug��singastjóri� Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – �et�ang aug��singa� augl@bondi.is � Vefur blaðsins: www.bbl.is � Netfang blaðsins� �fréttir og annað efni� er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Ágústa Kristín Bjarnadóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – �reifing� Landsprent og �slandspóstur. �SSN 1025-5621 Augun að opnast �vers�yrna � Hrunamannahre��i. �essi b�r er e��i � a��ara�eið �ótt hann s� s�ammt austan við ��ttb��ið á ��úðum og �rs�ammt �rá �ir�justaðnum Hruna. �að �yrsta sem ve�ur athyg�i veg�arenda �egar hor�t er heim að b�num er einst�� snyrtimenns�a sem margir m�ttu ta�a s�r ti� �yrirmyndar. Talið er að elsta handsmíðaða jólatré landsins sé frá Þverspyrnu. Það var smíðað af Jóni Jónssyni, bónda í Þverspyrnu, um eða rétt eftir 1873. Tréð var smíðað fyrir Kamillu Briem, prestsfrú í Hruna. Dóttir hennar, Elín húsfreyja Steindórsdóttir í Oddgeirshólum í Flóa, átti það eftir hennar dag og ga� Byggðasa�ni Árnesinga árið ����. �r�ð er gr�nmá�að að �it og einn metri á h�ð með �� ���um sem stungið er � �ar ti� gerð g�t � tréstofninum. Þá var það skreytt með sortulyngi, krækilyngi og beitilyngi. Mynd / Hörður Kristjánsson Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is Hljóð og mynd

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.