Bændablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 7
LÍF&STARF
H eyrt hef ég Rósberg Guðnason Snædal hæstan og mestan hringhenduhagyrðing sinnar
samtíðar. Held það séu orð að sönnu. Vísur
Rósbergs eru svo leikandi léttar, auðskildar
og guldu ekki vitund fyrir bragarháttinn
þótt aldýr væri. Hér fara á eftir nokkrar
þeirrar gerðar:
Léttast spor og lyftist brá,
l i fnar þor að nýju.
Endurbor in er mín þrá
úti í vor i hlýju.
Sunnanvindar verma best,
viknar str indið hvíta.
Þá er yndi al l ra mest
auða r inda að l íta.
Árdagsroði fegrar fjöl l ,
fal la stoðir ísa.
Vor ið boðar okkur öl l ,
undan voð skal r ísa.
Flykkist hingað fuglaþjóð,
flögrar kr ingum bæinn
ti l að syngja ástaróð,
Íslendingabraginn.-
Hlýnar vangur, grund og gi l ,
grænir anga hagar.
Okkur fangið ful l t af yl
færa langir dagar.
Ein magnaðasta hringhenda Rósbergs,
ort á hans efstu dögum, og efnið sótt
í leiðtogafund þeirra Gorbatsjovs og
Reagans, sem haldinn var í Höfða forðum
tíð:
Á lokuðu sviði var leikið af tveim,
í loftinu fiðraði rafið.
Og loks komst á fr iður í löndunum þeim
sem l iggja við M iðjarðarhafið.
En við eigum sannarlega hringhendusmiði
enn í dag. Ingólfur Ómar Ármannsson
raðar l isti lega orðum sínum í
hringhenduforminu. Best tekst honum í
náttúrulýsingum. Ein sú nýjasta þeirrar
gerðar er einkar lipur og ljóðræn:
Veröld l jómar, drungi dvín,
daga rómum langa.
Söngvar óma, sól in skín,
sumarblómin anga.
Á hinni víðlesnu Facebook birtist á
dögunum þessi sjálfslýsing Ingólfs Ómars,
þó ekki hringhend:
Ómar var og al l taf verður
ör í skapi , en þó bl íður.
Hann er vel af Guði gerður,
en gal la hefur engu að síður.
Undir lok síðasta árs, nánar tiltekið þann 17.
desember, tilkynnti hin óskeikula Facebook
um fæðingardag Ingólfs Ómars. Frá einum
lesanda hans birtist þessi afmæliskveðja:
Vær þér hossi veröld bl íð
vinafjöld og konur,
fæddur enda á fengi tíð
ferskeytlunnar sonur.
Einn af nafnkunnum hagyrðingum sinnar
tíðar var Jakob Ó. Pétursson, ritstjóri frá
Hranastöðum í Eyjafirði. (1907–1977).
Eftir Jakob liggja ljómandi vísur og ljóð.
Eftirfarandi vísur sanna vel þá staðhæfingu:
Margir sækja um bi ta og bein,
búnir al la vega,
ef tunga er mjúk, og trúin hrein,
tekst það venjulega.
Þótt mann skor ti skerpu og vi t,
skal ei nei tt frá reika,
nú er aðeins innt um l i t;
ekki um hæfi leika.
Undir samhendum bragarhætti er þessi vísa
Jakobs:
Drósin frétti um dansleikinn,
dufti sletti á brá og kinn,
klæddi netta kroppinn sinn
í kalda, létta búninginn
Umsjón:
Árni Geirhjör tur Jónsson
kotabyggð1@gmai l .com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Knútur Rafn, sem fór með fyrsta hópinn föstudaginn 11. júní en heimamenn í Reykholti munu skiptast á að fara með hópa í sumar.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Reykholt í Bláskógabyggð:
Sælkerarölt er alla föstudaga í
sumar fyrir gesti og gangandi
„ Röltið gekk svo vel í fyr rasumar en þá
fengum við um 300 manns í göngurnar
þannig að við ákváðum að taka þráðinn
aftur upp í sumar og bjóða upp á
Sælkerarölt um Reykholt alla föstudaga
í sumar klukkan 11.00. Gangan tekur um
eina og hálfa klukkustund með stoppum og
smakki á nokkrum stöðum,“ segir Knútur
Rafn Ármann, einn af göngustjórum
Sælkeragöngunnar í sumar.
Röltið hefst alla dagana við Mika,
fjölskyldurekinn veitingastað þar sem gestir
fá að smakka á heimagerðu konfekti frá Mika.
Síðan rekur gangan sig með fjölbreyttum
fróðleik með viðkomu við hverinn í Reykholti
þar sem Sigrún Erna býður upp á rúgbrauð
bakað í hvernum. Brauðið er borið fram
með íslensku smjöri. Eftir rölt í smástund
er stoppað í nýrri garðyrkjustöð sem heitir
Daga, en þar fá gestir að kynnast starfsemi
stöðvarinnar og smakka á nýjum íslenskum
jarðarberjum, brómberjum og hindberjum.
Síðasti stoppistaðurinn er Friðheimar þar sem
sagt er frá starfsemi stöðvarinnar og boðið
upp á smakk. „Fyrir þá sem ekki vita þá er
Reykholt frábærlega staðsett, klukkustund
frá höfuðborgarsvæðinu, á miðjum Gullna
hringnum og stutt frá alls kyns náttúruperlum.
Því er tilvalið að dvelja nokkrar nætur í
Reykholti og drekka í sig sveitasæluna,“ segir
Knútur Ármann. /MHH Sigrún Erna að bjóða gestum upp á hverarúgbrauðið sitt.
�m ��� manns m�ttu � ����erar��tið s�ðasta sumar og rei�nað er með að enn �eiri m�ti � sumar.
Ásborg Arnþórsdótt ir, ferðamálaful l trúi
Uppsveita Árnessýslu, lét sig ekki vanta
í gönguna 11. júní en hún er mjög stolt og
ánægð með frumkvæði íbúa í Reykholti að
bjóða upp á Sælkeragöngur í allt sumar.
Mika á veitingasta
ðnum Mika að kyn
na
starfsemi staðar
ins og bjóða upp
á
konfekt sem þar
er búið til og nýt
ur
mikilla vinsælda.