Bændablaðið - 24.06.2021, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202110
Þann 11. júní sl. fór fram munn-
legur málflutningur í Héraðsdómi
Reyk j avíkur í mál i nr.
E-2209/2021. Stefnandi er Danól
og stefndi er íslenska r íkið. Málið
varðar úrskurð tollgæslustjóra
nr. 3/2021 þess efnis að vara sem
ber heitið Festino IQF Mozzarella
Pizza Mix, sem er r ifinn ostur
(82-83% mozzarella) blandaður
við jur taolíu (11-12% pálmaolía)
auk sterkju, skuli tollflokkast sem
ostur.
Upphaf málsins má rekja til 17.
febrúar 2020 en þá gaf tollstjóri út
bindandi álit um tollflokkun sömu
vöru og að hún skyldi flokkast í toll-
flokk 0406.2000. Sá flokkur tekur
til rifins osts og ber 30% verðtoll
auk magntolls á innflutning utan
tollkvóta.
Telur ost sem er að uppistöðu
til úr mjólk sé jurtaostur
Danól fór þess á leit að varan
sem um ræðir yrði flokkuð sem
jurtaostur, sbr. tollskrárnúmer
2106.9068. Tollyfirvöld tóku hins
vegar ákvörðun um að varan skyldi
f lokkuð undir tollskrárnúmeri
0406.3000. Var sú ákvörðun kærð
til tollgæslustjóra, sem kvað upp
úrskurð nr. 3/2021 um að varan
skyldi flokkast undir tollskrárnúmer
0406.2000. Dómsmál Danóls
leitast við að fella þennan úrskurð
tollgæslustjóra úr gildi.
Í Héraðsdómi Reykjavíkur fór
annars vegar fram skýrslutaka af
vitnum og hins vegar munnlegur
málflutningur. Sækjandi, Danól,
leiddi fram þrjá starfsmenn
tollafgreiðsludeildar Skattsins
en lögmaður ríkisins kvaddi til
deildarstjóra endurskoðunardeild-
ar Skattsins.
Þrír starfsmenn Skattsins
töluðu um„ óeðlileg afskipti
Bændasamtakanna“
Erna Bjarnadóttir, verkefnastjóri
hjá MS, sat þinghaldið meðan
skýrslutökur fóru fram. Hún segir
að það hafi komið mjög á óvart að
hlýða á þrjá starfsmenn Skattsins
lýsa óeðl i legum afskiptum
Bændasamtakanna, sem hefðu
með aðgerðum sínum náð að
hafa áhrif á hærra sett stjórnvald
(fjármálaráðuneytið) sem hefði í
kjölfarið mælt fyrir um þá toll-
flokkun að umrædd vara skyldi
tollflokkast sem ostur.
Erna segir að þessi framganga
sæti nokkrum tíðindum, ekki
síst þar sem vitnin héldu því öll
fram að þau væru ósammála
tollf lokkun embættisins sem
birtist í tilvitnuðum álitum og
úrskurðum.
Vitnuðu gegn afstöðu
eigin embættis fyrir dómi
„ Í lögum um meðferð einkamála
er mælt fyrir um reglu sem felur
það í sér að embættismönnum sé
óskylt að koma fyrir dóm til að vitna
um atvik sem hafi gerst í embætti
þeirra ef unnt er að staðfesta það
með opinberu skjali.
Í málinu lá afstaða tollyfirvalda
gagnvart flokkun vörunnar fyrir í
formi bindandi álits frá 17. febrúar
2020 og var niðurstaða í úrskurði
tollgæslustjóra nr. 3/2021 í samræmi
við hana. Því verður vart séð hver hafi
verið þörfin á að leiða starfsmenn
tollafgreiðsludeildar fyrir dóm til
að segja til um þeirra skoðanir á
tollflokkun varanna,“ segir Erna í
samtali við Bændablaðið.
Hún segir á móti að málflutn-
ingur ríkislögmanns hafi byggt
á fyrirl iggjandi niðurstöðum
í bindandi áliti frá 17. febrúar
2020. Þetta staðfesti deildarstjóri
endurskoðunardeildar og varan ætti
réttilega að vera flokkuð sem ostur.
Deildarstjóri hafnaði því
að afskipti hagsmunaaðila
hafi haft áhrif á málið
Þegar deildarstjórinn var spurður
um það sem kom fram í máli
yfirtollvarðar tollafgreiðsludeildar,
um að vöruna ætti að skrá undir
tollskrárnúmerið 2106.9099, kvað
hann það af og frá. Hann hafnaði
jafnframt að athafnir hagsmunaaðila
hefðu átt þátt í máli þegar úrskurður
sama efnis og fyrrnefnt bindandi
álitið er, var felldur í máli nr. 3/2021.
Umrætt mál er rekið sem
flýtimeðferðarmál og er því dóms
jafnvel að vænta innan skamms.
Sumarlokun í Héraðsdómi Reykja-
víkur hefst 19. júlí og telur Erna
fullvíst að dómur verði kveðinn
upp fyrir þann tíma. Hún segist þó
jafnframt reikna með að dómnum
verði áfrýjað á hvorn veginn sem
hann fer, enda málið sérstakt á
margan hátt og að mikið hljóti að
vera í húfi fyrir stefnanda, fyrst
málinu var veitt flýtimeðferð. /HKr.
FRÉTTIR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla
Málflutningur í máli Danól gegn íslenska ríkinu vegna tolls á innfluttum ostum:
Tekist á um hvort ostur sé ostur eða jurtaostur
Festino IQF Mozzarella Pizza Mix.
Nemendurnir 39 sem útskrifuðust á dögunum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Með þeim á myndinni (lengst til vinstri) er Daði Már Kristófersson aðstoðarrektor og lengst til hægri er Ragnheiður
I. Þórarinsdóttir rektor.
Landbúnaðarháskóli Íslands útskrifar 39 nemendur:
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir dúxaði á B.S.
prófi í búvísindum með einkunnina 9,1
Br autskr áning nemenda úr
búfr æði og háskóladei ldum
Landbúnaðarháskóla Í slands
fór fram við hátíðlega athöfn frá
Hjálmakletti í Borgarnesi í byr jun
j úní. Alls voru 39 nemendur
brautskráðir úr búfræði og af
háskólabrautum.
Af búfræðibraut voru það 15
nemendur sem fengu nafnbótina
búfræðingur og settu upp húfur.
Í BS námi kláruðu 6 úr
búvísindum og 4 úr landslags-
arkitektúr og 5 nemendur náttúru-
og umhverfisfræði ásamt einum úr
skógfræði.
Úr meistaranámi kláruðu 3
nemendur skipulagsfræði og 4
rannsóknarmiðað meistaranám,
auk þess brautskráðist einn úr
doktorsnámi. Mögulega er Covid
að spila inn í að aðeins færri eru að
brautskrást en í venjulegu ári.
Dúxaði í búvísindum með 9,1
Að loknu ávarpi Ragnheiðar I.
Þórarinsdóttur rektors hófst braut-
skráning búfræðinga. Þar hlaut
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir
verðlaun fyrir frábæran árangur
fyrir lokaverkefni á B.S. prófi í
búvísindum með einkunnina 9,1.
Fékk hún að launum verðlaun frá
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Nanna Vilborg Harðardóttir var
með bestan árangur á B.S. prófi við
skólann með einkunnina 8,45. Hún
stundaði nám í landslagsarkitektúr.
Frábær árangur í hagfræði-
og bútæknigreinum
Ástrós Ýr Eggertsdóttir hlaut
verðlaun fyrir frábæran árangur
í hagfræðigreinum. Ástrós hlaut
einnig verðlaun fyrir frábæran
árangur í bútæknigreinum og
viðurkenningu fyrir frábæran
árangur í lokaverkefni sem og
verðlaun fyrir frábæran árangur á
búfræðiprófi.
Ásgerður Inna Antonsdóttir
fékk verðlaun fyrir frábæran
árangur í námsdvöl. Hún fékk líka
verðlaun fyrir frábæran árangur í
nautgriparækt.
Eydís Ósk Jóhannesdóttir hlaut
verðlaun fyrir frábæran árangur í
sauðfjárrækt.
Á búvísindabraut hlaut Swan-
hild Ylfa K R Leifsdóttir verðlaun
fyrir verðlaun fyrir góðan árangur
á B.S. prófi.
Elísabet Bjarnadóttir hlaut verð-
laun fyrir góðan árangur í skipulags-
og landslagsarki tektafögum.
Elísabet hlaut einnig verðlaun fyrir
góðan árangur í plöntunotkun.
Nanna Vilborg Harðardóttir hlaut
verðlaun fyrir góður árangur á B.S.
prófi í landslagsarkitektúr.
Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir
hlaut verðlaun fyri r góðan
árangur á B.S prófi í náttúru- og
umhverfisfræði.
Björk Kristjánsdóttir fékk
verðlaun fyrir góðan árangur á B.S
prófi í skógfræði.
Atli Steinn Sveinbjörnsson hlaut
verðlaun fyrir góðan árangur á M.S.
prófi í skipulagsfræðum.
Julia C. Bos fékk verðlaun fyrir
góðan árangur í rannsóknarmiðuðu
M.S. prófi við Landbúnaðarháskóla
Íslands. Þá brautskráðist einnig
Þórunn Pétursdóttir með doktorspróf
úr náttúru- og umhverfisfræði.
Þrjár styrkveitingar úr
framfarasjóði Ingibjargar
Guðmundsdóttur og Þorvaldar
Guðmundssonar
Þrjár styrkveitingar úr Framfara-
sjóði Ingibjargar Guðmundsdóttur
og Þorvaldar Guðmundssonar
voru veittar við athöfnina. Alls
voru veittir styrkir að upphæð
400.000 kr. úr sjóðnum en tilgangur
sjóðsins er að styrkja nemendur
Landbúnaðarháskóla Íslands til
framhaldsmenntunar og að styrkja
rannsóknir nemenda á fagsviði
Landbúnaðarháskólans.
Styrkina hlutu Esther Marloes
Kapinga, en hún hóf MS nám
í náttúru- og umhverfisfræðum
við Landbúnaðarháskóla Íslands
síðastliðið haust og hlaut styrk fyrir
verkefnið: Soil fauna community
structure across a chronosequence
with and without elevated levels
of allochthonous resource input: A
case study on Surtsey, Ellidaey and
Heimaey.
Þá hlaut Anna Guðrún Þórðar-
dóttir styrk, en hún hóf nám í
búvísindum síðastliðið haust og
snýr verkefnið hennar að því að
meta erfðastuðla og erfðafylgni á
milli byggingatengdra eiginleika hjá
íslenska kúastofninum.
Jóhannes Kristjánsson hlaut
einnig styrk en hann hóf nám í
búvísindum haustið 2019 og snýr
hans verkefni að holdastigi íslenskra
mjólkurkúa.
Tvö hlutu styrki úr
Blikastaðasjóði
Einnig voru veittir styrkir úr Blika-
staðasjóði og afhenti Magnús Sig-
steinsson, fulltrúi stofnenda þar, tvo
styrki.
Þar hlaut Anna Guðrún Þórðar-
dóttir 750.000 króna styrk ti l
MS verkefnis í búvísindum og
Jóhannes Kristjánsson hlaut einnig
750.000 kr. styrk til MS verkefnis í
búvísindum.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja
nemendur sem lokið hafa háskóla-
námi frá Landbúnaðarháskóla
Íslands til framhaldsnáms erlendis
eða til rannsókna í landbúnaðar-
vísindum eftir því sem stjórn
sjóðsins ákveður. Einnig er stjórn
sjóðsins heimilt að verðlauna
nemendur Landbúnaðarháskólans
fyrir framúrskarandi árangur á
burtfararprófi.
Athöfninni á Hjálmakletti
stýrði Daði Már Kristófersson
aðstoðarrektor og Birna Kristín
Ásbjarnardóttir spilaði ljúfa tóna
fyrir athöfnina. Eins fluttu þau Eva
Margrét Jónudóttir og Jón Snorri
Bergsson tónlistaratriði mil l i
dagskrárliða. /HKr.