Bændablaðið - 24.06.2021, Side 20

Bændablaðið - 24.06.2021, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202120 Þétting byggðar hefur ver ið eins konar töfraorð í íslenskr i sveitar- stjórnarpólitík í fjölmörg ár og einkum þar sem byggð er þétt- ust fyr ir eins og á höfuðborgar- svæðinu. Byggðaþétting hefur átt að leysa úr flestum vanda, eins og húsnæðisvanda, og draga stór lega úr loftmengun og þör finni á akstr i ökutækja. Þétting byggðar hefur líka sínar neikvæðu hliðar og leiðir óhjákvæmi- lega til þess að gengið er á græn svæði. Áhugavert er að skoða þetta í ljósi stefnumörkunar úti í hinum stóra heimi á undanförnum árum. Þar hefur þessi umræða blossað upp aftur í skugga Covid-19 þar sem málin eru líka skoðuð út frá faraldsfræðilegum sjónarmiðum. Fólk farið að flýja úr þéttbýlinu Velta menn mjög fyrir sér árangr- inum, eða öllu heldur göllunum sem fylgja byggðaþéttingarstefnu, m.a. á hækkun húsnæðisverðs, húsaleigu og neikvæð áhrifin á vist- vænt umhverfi sem hverfur undir steinsteypu. Einnig á minnkandi loftgæði með minnkandi súr- efnismettun inni í byggðinni vegna minni gróðurs. Bent er á að of lítið sé hugað að því hvaða áhrif byggða- þéttingin hefur á andlega og lík- amlega heilsu. Þetta hefur m.a. leitt til fólksflótta úr borgunum. Sama þróun virðist vera að eiga sér stað á Íslandi sé litið til stór- aukinnar eftirspurnar eftir húsnæði í minni bæjum í kringum höfuð- borgarsvæðið. Íbúum New York hefur fækkað um 200.000 á fjórum árum Covid-19 faraldurinn virðist líka hafa haft áhrif á breyttan hugsunarhátt fólks. Íbúum New York borgar fækk- aði um 90.000 manns á milli áranna 2019 og 2020, eða um 0,8%. Í heil 10 ár þar á undan hafði íbúum borg- arinnar aðeins fjölgað um 61.000. Samkvæmt tölum Census Bureau náði íbúatala New York borgar há- marki árið 2016 í 8.469.000. Hefur íbúum borgarinnar síðan fækkað um rúmlega 200.000 á aðeins fjórum árum. Þá fækkaði t.d. íbúum San Fran- cisco í Bandaríkjunum um 1,4% á síðasta ári. Í þriðju stærstu borginni, Chicago, fækkaði á síðasta ári um 14.000 manns. Í Los Angeles, þar sem íbúa- fjöldinn var 2,68 milljónir, fækkaði íbúum um 0,3%, San Jose um 1,3%, Long Beach um 0,8%, svo einhverjar borgir séu nefndar. Fækkun íbúa er þó ekki algild um bandarískar borgir. Þannig fjölgaði t.d. lítils háttar í Dallas, eða um 74 einstak- linga, og um 400 í Houston, sem er fjórða stærsta borg Bandaríkjanna með rúmlega 2,3 milljónir íbúa. Mest aðstreymi fólks var hins vegar í Kirkland, sem er úthverfi í Seattle, þar sem íbúum fjölgaði um 2,6%, en þar kom einmitt upp fyrsta hópsmit Covid-19 í Bandaríkjunum. Skiptar skoðanir og misvísandi gögn Vissulega eru þó líka til öfl sem hafa haldið því enn fram að aukin þéttleiki byggðar leiði til auk- innar hagkvæmni og bættrar heilsu þar sem fólk í þéttbýlinu hreyfi sig meira á greiðfærum gangstéttum. Á móti er bent á skýrslur sem sýna að slys á fólki á götum í þéttbýli eru mun algengari en í dreifbýli og léleg loftgæði í borgum valdi líka miklum skaða á öndunarfærum sem stytti lífaldur fólks. Mikilvægi grænna svæða til að styðja við heilbrigt líf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, lagði einmitt fram skýrslu árið 2016 um áhrif af grænum svæðum í borgum sem hafa óðum verið að hverfa vegna þéttingar byggðar. Skýrslan heitir „Urban green spacees and health – A review and evidence“ . Tekur hún til rannsókna sem gerðar voru á 10 ára tímabili á þessum málum. Þar segir m.a.: „Nýlega hefur áhugi vaknað á mikilvægi grænna svæða til að styðja við heilbrigt líf í þéttbýli. Tengsl milli grænna svæða og heilsu hafa verið viðurkennd í gegnum tíðina og voru einn af drifkröftunum á bak við þéttbýlisgarðahreyfingu 19. aldar í Evrópu og Norður-Ameríku (Schuyler, 1988).“ Vísað er m.a. til skýrslu WHO um borgarskipulag, umhverfi og heilbrigði sem gefin var út árið 2010. Þar segir að græn svæði geti haft jákvæð áhrif á líkamlega hreyf- ingu, félagslega og sálræna líðan, bætt loftgæði og dragi úr óþægindum af hávaða. Þá segir að nýlegar rannsóknir hafi gefið vísbendingar um margvís- legan ávinning af grænu svæði í þétt- býli. Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa notað fjölmargar aðferðir til að mæla áhrif framboðs af grænu svæði í þéttbýli og aðgengi að heilsuárangri þátttakenda í rannsóknum. Þá er ekki bara verið að tala um skipulagða garða, heldur einnig ræktun gras- bala og trjáa í borgum, einkagarða borgarbúa og fleira. Í niðurstöðum skýrslunnar segir m.a.: „Gögnin sýna að græn svæði í þéttbýli hafa heilsufarslegan ávinn- ing, sérstaklega fyrir efnahagslega illa stæð samfélög, börn, barnshaf- andi konur og eldri borgara. Það er því nauðsynlegt að allir íbúar hafa fullnægjandi aðgang að grænum svæðum, með sérstakri forgangs- röðun á slíkt í bágstöddum samfé- lögum. Þó að smáatriði um hönnun og stjórnun grænna svæða í þéttbýli verði að vera í takt við staðbundna landfræðilega þætti og menningar- legar aðstæður, þá er þörfin ótvíræð fyrir græn svæði og gildi þeirra fyrir heilsu og vellíðan.“ SÞ segja að þétt byggð hafi aukið á útbreiðslu Covid-19 Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið þessa byggðaþéttingaráráttu á dagskrá og hafa gefið út sérstaka skýrslu sem kynnt var á fundi í Naíróbí 30. mars síðastliðinn og gefin út í maí. Hún heitir Borgir í heimsfaraldri í átt að réttlátari, grænni og heilbrigðari framtíð, eða „Cities and Pandemics: Towards a More Just, Green and Healthy Future“ . Skýrslan sýnir hvernig borgir geta dregið úr áhrifum heimsfaraldra og orðið sanngjarnari, heilbrigðari og umhverfisvænni. Þar segir m.a.: „Smit í þéttbýli hefur verið afger- andi í Covid-19 faraldrinum, en 95 prósent allra tilfella voru skráð í borg- um fyrstu mánuðina. Þéttbýlisstaðir stóðu frammi fyrir hröðum breyting- um á lýðheilsu ásamt áskorunum í öruggum almenningssamgöngum, aukinni vatns- og hreinlætisþörf, notkun almenningsrýma og efnahags- legum afleiðingum lokunar.“ Þar segir einnig að stjórnend- ur borga og skipuleggjendur verði að endurskoða hvernig fólk ferðast um í borgum og nýta þann lærdóm sem fengist hefur af Covid-19. Bent hefur verið á mannmergð í almenn- ingssamgöngukerfum í því sambandi. Misskipting, fátækt og mjög þétt byggð hafi einnig verið gegnumgang- andi þættir sem aukið hafi á útbreiðslu Covid-19. Lausnin talin vera í sjálfbærum hverfum Tillögur Sameinuðu þjóðanna fela í sér aukna áherslu á staðbundnar lausnir í skipulagi hverfa og sam- félaga sem eru fjölvirk og skilvirk. Hverfin verði sem sjálfbærust og samanstandi hvert um sig af íbúðarhúsnæði, verslun, þjónustu og opnu almenningsrými ásamt húsnæði á „viðráðanlegu verði“ . Það voru einmitt sömu rökin og notuð voru þegar ráðist var í upp- byggingu Breiðholtshverfanna í Reykjavík á sínum tíma og virkaði þá vel. Slíkt getur að mati skýrslu- höfunda SÞ leitt til bættrar lýð- heilsu og viðgangs staðbundinna hagkerfa og umhverfis. Þetta krefst þess að stjórn- völd einbeiti sér að stefnu til að vernda landréttindi, bæta aðgengi að vatni , hreinlætisaðstöðu, almenningssamgöngum, rafmagni, heilbrigðis- og menntunaraðstöðu og tryggja stafræna tengingu án aðgreiningar. „Við verðum að taka á kerfis- lægri fátækt og ójöfnuði í borgum og leggja meiri áherslu á húsnæði, grunnþjónustu, sjálfbærni, hreyfan- leika og tengimöguleika,“ sagði Maimunah Mohd Sharif, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna. Líka á dagskrá hjá OECD Efnahagssamvinnu- og þróunar- stofnunin OECD gerði líka skýr- slu um þessi mál árið 2018. Þar kemur m.a. fram að þróunin frá árinu 2000 sýni að æ fleira fólk leiti nú út úr þéttbýlum mið- borgum og í úthverfin þar sem þrengslin eru minni. Þessi þróun var þá samkvæmt skýrslunni að eiga sér stað í að minnsta kosti 20 Evrópulöndum. Yfirvöld á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi virðast því vera talsvert langt á eftir tímanum í hugsun og keyra áfram skipulag sem vinnur í þver- öfuga átt. Helstu drifkraftarnir til að gera sókn í dreifðari og heilbrigðari byggð eru að mati OECD knúnir áfram af lýðræðislegum, efnahags- legum, landfræðilegum, félagsleg- um og tæknilegum þáttum. Stórfelld uppbygging vegakerfis og bifreiðastyrkir stór þáttur í jákvæðri þróun Mikilvægustu atriðin að mati OECD til að knýja þessa þróun er m.a. að takmarkanir séu settar á þéttleika byggðar, skattkerfi feli í sér að jafna aðstöðu fólks til að geta búið við betri aðstæður í meira strjálbýli, bifreiðakostnaður sé niðurgreiddur og stórfelld fjár- festing sé viðhöfð í uppbyggingu vegakerfis. Þegar litið er á þró- unina á Íslandi hefur greinilega verið unnið af hörku gegn þessari þróun. Nefndar eru nokkrar borgir þar sem þéttleiki byggðar þykir vel ásættanlegur og mikið lagt upp úr úthverfum. Þar eru borgir eins og Ottawa í Kanada, Bergen í Noregi, Portland í Oregon-ríki í Bandaríkjunum og Darwin í Ástralíu. Á móti eru nefndar borgir þar sem staðan er afleit hvað þéttleika varðar, eins og Busan í Kóreu, Osaka í Japan og Napólí á Ítalíu svo dæmi séu tekin. Þá hefur verið nefnd skelfi leg afleiðing of þéttrar byggðar í indverskum borgum sem sýndi sig vel í mikilli og hraðri úrbreiðslu COVID-19 á undanförnum mánuðum. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Skýrslur Sameinuðu þjóðanna, OECD og WHO hvetja til minni þéttleika í borgum og meiri áherslu á gróður: Þétting byggðar úrelt hugsun og talin heilsufarslega og félagslega skaðleg – Græn svæði og öflug uppbygging vegakerfis í úthverfi nefnt sem einn af lykilþáttum í jákvæðri þróun Hjá alþjóðastofnunum er farið að mæla með að skipuleggjendur borga enduskoði afstöðu sína og í stað þéttingar byggðar verði hugað meira að uppbyggingu úthverfa og varðveislu grænna svæða. Mynd / UN

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.