Bændablaðið - 24.06.2021, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202120
Þétting byggðar hefur ver ið eins
konar töfraorð í íslenskr i sveitar-
stjórnarpólitík í fjölmörg ár og
einkum þar sem byggð er þétt-
ust fyr ir eins og á höfuðborgar-
svæðinu. Byggðaþétting hefur átt
að leysa úr flestum vanda, eins og
húsnæðisvanda, og draga stór lega
úr loftmengun og þör finni á akstr i
ökutækja.
Þétting byggðar hefur líka sínar
neikvæðu hliðar og leiðir óhjákvæmi-
lega til þess að gengið er á græn
svæði. Áhugavert er að skoða þetta
í ljósi stefnumörkunar úti í hinum
stóra heimi á undanförnum árum. Þar
hefur þessi umræða blossað upp aftur
í skugga Covid-19 þar sem málin eru
líka skoðuð út frá faraldsfræðilegum
sjónarmiðum.
Fólk farið að flýja úr þéttbýlinu
Velta menn mjög fyrir sér árangr-
inum, eða öllu heldur göllunum
sem fylgja byggðaþéttingarstefnu,
m.a. á hækkun húsnæðisverðs,
húsaleigu og neikvæð áhrifin á vist-
vænt umhverfi sem hverfur undir
steinsteypu. Einnig á minnkandi
loftgæði með minnkandi súr-
efnismettun inni í byggðinni
vegna minni gróðurs.
Bent er á að of lítið sé hugað
að því hvaða áhrif byggða-
þéttingin hefur á andlega og lík-
amlega heilsu. Þetta hefur m.a.
leitt til fólksflótta úr borgunum.
Sama þróun virðist vera að eiga
sér stað á Íslandi sé litið til stór-
aukinnar eftirspurnar eftir húsnæði
í minni bæjum í kringum höfuð-
borgarsvæðið.
Íbúum New York hefur fækkað um
200.000 á fjórum árum
Covid-19 faraldurinn virðist líka hafa
haft áhrif á breyttan hugsunarhátt
fólks. Íbúum New York borgar fækk-
aði um 90.000 manns á milli áranna
2019 og 2020, eða um 0,8%. Í heil
10 ár þar á undan hafði íbúum borg-
arinnar aðeins fjölgað um 61.000.
Samkvæmt tölum Census Bureau
náði íbúatala New York borgar há-
marki árið 2016 í 8.469.000. Hefur
íbúum borgarinnar síðan fækkað um
rúmlega 200.000 á aðeins fjórum
árum.
Þá fækkaði t.d. íbúum San Fran-
cisco í Bandaríkjunum um 1,4% á
síðasta ári. Í þriðju stærstu borginni,
Chicago, fækkaði á síðasta ári um
14.000 manns.
Í Los Angeles, þar sem íbúa-
fjöldinn var 2,68 milljónir, fækkaði
íbúum um 0,3%, San Jose um 1,3%,
Long Beach um 0,8%, svo einhverjar
borgir séu nefndar.
Fækkun íbúa er þó ekki algild um
bandarískar borgir. Þannig fjölgaði t.d.
lítils háttar í Dallas, eða um 74 einstak-
linga, og um 400 í Houston, sem er
fjórða stærsta borg Bandaríkjanna
með rúmlega 2,3 milljónir íbúa.
Mest aðstreymi fólks var hins
vegar í Kirkland, sem er úthverfi í
Seattle, þar sem íbúum fjölgaði um
2,6%, en þar kom einmitt upp fyrsta
hópsmit Covid-19 í Bandaríkjunum.
Skiptar skoðanir
og misvísandi gögn
Vissulega eru þó líka til öfl sem hafa
haldið því enn fram að
aukin þéttleiki byggðar leiði til auk-
innar hagkvæmni og bættrar heilsu
þar sem fólk í þéttbýlinu hreyfi sig
meira á greiðfærum gangstéttum.
Á móti er bent á skýrslur sem sýna
að slys á fólki á götum í þéttbýli
eru mun algengari en í dreifbýli og
léleg loftgæði í borgum valdi líka
miklum skaða á öndunarfærum sem
stytti lífaldur fólks.
Mikilvægi grænna svæða
til að styðja við heilbrigt líf
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, lagði einmitt fram skýrslu árið
2016 um áhrif af grænum svæðum
í borgum sem hafa óðum verið að
hverfa vegna þéttingar byggðar.
Skýrslan heitir „Urban green spacees
and health – A review and evidence“ .
Tekur hún til rannsókna sem gerðar
voru á 10 ára tímabili á þessum
málum. Þar segir m.a.:
„Nýlega hefur áhugi vaknað á
mikilvægi grænna svæða til að styðja
við heilbrigt líf í þéttbýli. Tengsl
milli grænna svæða og heilsu hafa
verið viðurkennd í gegnum tíðina
og voru einn af drifkröftunum á
bak við þéttbýlisgarðahreyfingu 19.
aldar í Evrópu og Norður-Ameríku
(Schuyler, 1988).“
Vísað er m.a. til skýrslu
WHO um borgarskipulag, umhverfi
og heilbrigði sem gefin var út árið
2010. Þar segir að græn svæði geti
haft jákvæð áhrif á líkamlega hreyf-
ingu, félagslega og sálræna líðan,
bætt loftgæði og dragi úr óþægindum
af hávaða.
Þá segir að nýlegar rannsóknir
hafi gefið vísbendingar um margvís-
legan ávinning af grænu svæði í þétt-
býli. Faraldsfræðilegar rannsóknir
hafa notað fjölmargar aðferðir til að
mæla áhrif framboðs af grænu svæði
í þéttbýli og aðgengi að heilsuárangri
þátttakenda í rannsóknum. Þá er ekki
bara verið að tala um skipulagða
garða, heldur einnig ræktun gras-
bala og trjáa í borgum, einkagarða
borgarbúa og fleira. Í niðurstöðum
skýrslunnar segir m.a.:
„Gögnin sýna að græn svæði í
þéttbýli hafa heilsufarslegan ávinn-
ing, sérstaklega fyrir efnahagslega
illa stæð samfélög, börn, barnshaf-
andi konur og eldri borgara. Það er
því nauðsynlegt að allir íbúar hafa
fullnægjandi aðgang að grænum
svæðum, með sérstakri forgangs-
röðun á slíkt í bágstöddum samfé-
lögum. Þó að smáatriði um hönnun
og stjórnun grænna svæða í þéttbýli
verði að vera í takt við staðbundna
landfræðilega þætti og menningar-
legar aðstæður, þá er þörfin ótvíræð
fyrir græn svæði og gildi þeirra fyrir
heilsu og vellíðan.“
SÞ segja að þétt byggð hafi
aukið á útbreiðslu Covid-19
Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið þessa
byggðaþéttingaráráttu á dagskrá og
hafa gefið út sérstaka skýrslu sem
kynnt var á fundi í Naíróbí 30. mars
síðastliðinn og gefin út í maí. Hún
heitir Borgir í heimsfaraldri í átt
að réttlátari, grænni og heilbrigðari
framtíð, eða „Cities and Pandemics:
Towards a More Just, Green and
Healthy Future“ . Skýrslan sýnir
hvernig borgir geta dregið úr áhrifum
heimsfaraldra og orðið sanngjarnari,
heilbrigðari og umhverfisvænni. Þar
segir m.a.:
„Smit í þéttbýli hefur verið afger-
andi í Covid-19 faraldrinum, en 95
prósent allra tilfella voru skráð í borg-
um fyrstu mánuðina. Þéttbýlisstaðir
stóðu frammi fyrir hröðum breyting-
um á lýðheilsu ásamt áskorunum í
öruggum almenningssamgöngum,
aukinni vatns- og hreinlætisþörf,
notkun almenningsrýma og efnahags-
legum afleiðingum lokunar.“
Þar segir einnig að stjórnend-
ur borga og skipuleggjendur verði
að endurskoða hvernig fólk ferðast
um í borgum og nýta þann lærdóm
sem fengist hefur af Covid-19. Bent
hefur verið á mannmergð í almenn-
ingssamgöngukerfum í því sambandi.
Misskipting, fátækt og mjög þétt
byggð hafi einnig verið gegnumgang-
andi þættir sem aukið hafi á útbreiðslu
Covid-19.
Lausnin talin vera í
sjálfbærum hverfum
Tillögur Sameinuðu þjóðanna fela
í sér aukna áherslu á staðbundnar
lausnir í skipulagi hverfa og sam-
félaga sem eru fjölvirk og skilvirk.
Hverfin verði sem sjálfbærust
og samanstandi hvert um sig af
íbúðarhúsnæði, verslun, þjónustu
og opnu almenningsrými ásamt
húsnæði á „viðráðanlegu verði“ .
Það voru einmitt sömu rökin og
notuð voru þegar ráðist var í upp-
byggingu Breiðholtshverfanna í
Reykjavík á sínum tíma og virkaði
þá vel. Slíkt getur að mati skýrslu-
höfunda SÞ leitt til bættrar lýð-
heilsu og viðgangs staðbundinna
hagkerfa og umhverfis.
Þetta krefst þess að stjórn-
völd einbeiti sér að stefnu til að
vernda landréttindi, bæta aðgengi
að vatni , hreinlætisaðstöðu,
almenningssamgöngum, rafmagni,
heilbrigðis- og menntunaraðstöðu
og tryggja stafræna tengingu án
aðgreiningar.
„Við verðum að taka á kerfis-
lægri fátækt og ójöfnuði í borgum
og leggja meiri áherslu á húsnæði,
grunnþjónustu, sjálfbærni, hreyfan-
leika og tengimöguleika,“ sagði
Maimunah Mohd Sharif, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna.
Líka á dagskrá hjá OECD
Efnahagssamvinnu- og þróunar-
stofnunin OECD gerði líka skýr-
slu um þessi mál árið 2018. Þar
kemur m.a. fram að þróunin frá
árinu 2000 sýni að æ fleira fólk
leiti nú út úr þéttbýlum mið-
borgum og í úthverfin þar sem
þrengslin eru minni. Þessi þróun
var þá samkvæmt skýrslunni að
eiga sér stað í að minnsta kosti
20 Evrópulöndum. Yfirvöld á
höfuðborgarsvæðinu á Íslandi
virðast því vera talsvert langt á
eftir tímanum í hugsun og keyra
áfram skipulag sem vinnur í þver-
öfuga átt.
Helstu drifkraftarnir til að gera
sókn í dreifðari og heilbrigðari
byggð eru að mati OECD knúnir
áfram af lýðræðislegum, efnahags-
legum, landfræðilegum, félagsleg-
um og tæknilegum þáttum.
Stórfelld uppbygging
vegakerfis og bifreiðastyrkir
stór þáttur í jákvæðri þróun
Mikilvægustu atriðin að mati
OECD til að knýja þessa þróun
er m.a. að takmarkanir séu settar
á þéttleika byggðar, skattkerfi feli
í sér að jafna aðstöðu fólks til að
geta búið við betri aðstæður í
meira strjálbýli, bifreiðakostnaður
sé niðurgreiddur og stórfelld fjár-
festing sé viðhöfð í uppbyggingu
vegakerfis. Þegar litið er á þró-
unina á Íslandi hefur greinilega
verið unnið af hörku gegn þessari
þróun.
Nefndar eru nokkrar borgir
þar sem þéttleiki byggðar þykir
vel ásættanlegur og mikið lagt
upp úr úthverfum. Þar eru borgir
eins og Ottawa í Kanada, Bergen
í Noregi, Portland í Oregon-ríki
í Bandaríkjunum og Darwin í
Ástralíu.
Á móti eru nefndar borgir þar
sem staðan er afleit hvað þéttleika
varðar, eins og Busan í Kóreu,
Osaka í Japan og Napólí á Ítalíu
svo dæmi séu tekin. Þá hefur
verið nefnd skelfi leg afleiðing
of þéttrar byggðar í indverskum
borgum sem sýndi sig vel í mikilli
og hraðri úrbreiðslu COVID-19 á
undanförnum mánuðum.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Skýrslur Sameinuðu þjóðanna, OECD og WHO hvetja til minni þéttleika í borgum og meiri áherslu á gróður:
Þétting byggðar úrelt hugsun og talin
heilsufarslega og félagslega skaðleg
– Græn svæði og öflug uppbygging vegakerfis í úthverfi nefnt sem einn af lykilþáttum í jákvæðri þróun
Hjá alþjóðastofnunum er farið að
mæla með að skipuleggjendur
borga enduskoði afstöðu sína
og í stað þéttingar byggðar verði
hugað meira að uppbyggingu
úthverfa og varðveislu grænna
svæða. Mynd / UN