Bændablaðið - 24.06.2021, Page 21

Bændablaðið - 24.06.2021, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 21 Rafknúnir bílar seljast nú eins og heitar lummur og flestir eru þeir búnir L iþíum-Ion rafhlöðum. Fullyr t er að rafbílar muni yfir- taka bílamarkað heimsins á næstu 5 til 10 árum. Þetta hefur ver ið knúið áfram undir slagorðum náttúruverndar og baráttu gegn losun koltvísýr ings út í andrúms- loftið. Þetta er þó ekki tekið út með sældinni því farnar eru að hlaðast upp rafhlöður úr ónýtum rafbílum sem fáir hafa áhuga á að endurnýta. Vegna stöðunnar eru farnar að renna tvær grímur á þjóðarleiðtoga á borð við Joe Biden Bandaríkja- forseta. Þeir eru farnir að viðurkenna að námugröftur eftir þeim sjaldgæfu málmum sem þarf í allar bílarafhlöð- urnar er bara alls ekkert umhverfis- vænn né framleiðslan á rafhlöðunum sjálfum. Bandaríkjaforseti vill stórauka endurvinnslu á bílarafhlöðum Þann 5. júní síðastliðinn birti Reuters frétt um að Joe Biden Banda- ríkjaforseti hafi sett í gang áætlun sem miðar að því að stórauka endur- vinnslu á bílarafhlöðum. Á það að vera hluti af loftslagsmarkmiðum forsetans. Reyndar hafa Demókratar í Bandaríkjunum verið harðir á að hrinda í gang áætlunum um að meirihluti bíla sem bandarískir bílaframleiðendur framleiða 2030 verði rafmagnsbílar og að allir bílar á götum Bandaríkjanna verði orðnir rafmagnsbílar árið 2040. Endurvinnsla á bílarafhlöðum er hins vegar mjög flókin og kostnaðar- samt er að endurvinna þungmálmana úr rafhlöðunum. Þá eru rafhlöðurn- ar mismunandi milli framleiðenda og efnainnihald ólíkt. Þrjár megin gerðir eru til sem byggja á bakskaut- um úr nickel-kóbalt og áli, í öðru lagi úr járnfosfati og í þriðja lagi á nikkel, magnesíum og kóbalti. Því er hugmyndin líka sú að upphugsa leiðir til að minnka umfang sjald- gæfra málma í rafhlöðunum. Þeir bjartsýnustu telja að hægt verði að draga úr námugreftri eftir liþíum árið 2040 um 25% ef það tekst að endurvinna þann málm úr notuðum rafhlöðum og um 35% er varðar kóbalt. Er bandaríski hluti Energy's Argonne National Laboratory þegar sagður vera á kafi í slíkum rann- sóknum. Umhverfismálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur þegar sett um 15 milljónir dollara í það sem nefnt hefur verið ReCell Center sem á að samhæfa rannsóknir vísindamanna og stofnana varðandi endurvinnslu á rafhlöðum. Bretar hafa sett í gang svipaðar aðgerðir sem kallaðar eru ReLiB verkefnið. Um 8 milljón bílarafhlöður gætu endað á bandarískum ruslahaugum Á síðasta ári seldust um 2,5 milljónir rafmagnsbíla í heiminum. Búist er við að sú sala aukist um 70% á yfirstandandi ári og haldi síðan stöðugt áfram að aukast til 2040 samkvæmt markaðsspá IHS Markit. Þá spá sérfræðingar á markaði því að 145 milljónir rafbíla verði komnir á göturnar 2030, en þeir voru orðnir um 11 milljónir á árinu 2020. Til þessa hafa ekki nema um 5% af bílarafhlöðum sem teknar hafa verið úr umferð farið í einhvers konar endurvinnslu. Fréttaveita Bloomberg telur að um ein milljón bílarafhlaða verði komnar úr umferð árið 2027. Þegar eru farnar að hlaðast upp slíkar rafhlöður í stórum stíl með tilheyrandi mengunarhættu. Ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða við endurvinnslu bílarafhlaða þá búast bandarísk yfirvöld við að 8 milljónir tonna af ónýtum bílarafhlöðum endi á ruslahaugum eða í landfyllingum í Bandaríkjunum einum árið 2040. Greenpeace hefur áætlað að 7,05 milljón tonna af ónýtum Liþíum -Ion bílarafhlöðum muni falla til í Kína á árunum 2021 til 2030. Fjallað var um málið í South China Morning Post þann 19. mars síðastliðinn. Víðar eru áhyggjur að kvikna vegna óvistvænna bílarafhlaða. Evrópusambandið er þannig sagt vera að „ íhuga“ að draga úr útflutningi á málmúrgangi, þar með talið á bíla- rafhlöðum, og að hvatt verði til endur- vinnslu á heimamarkaði. Vonir standa þó líka til að upp- bygging innviða fyrir vetnisvæðingu muni smám saman draga úr þörf á notkun rafhlaða í rafmagnsbílum. Einnig að ný gerð af rafhlöðum inni- haldi ekki eins mikið af þungmálmum og núverandi rafhlöður og verði jafn- framt endingarbetri. Vill ná forskoti á Kínverja með milljarða dollara innspýtingu Bandaríkjaforseti hyggst ná forskoti á Kína, bæði í framleiðslu á rafbílum, rafhlöðum í alla rafmagnsbílana sem og endurvinnslu. Kínverjar, með sitt risafyrirtæki í rafhlöðuiðnaði, Gangfeng Lihium Co. Ltd., settu hins vegar í gang svipaða áætlun á síðast- liðnu hausti. Hafa Kínverjar mikið forskot á aðrar þjóðir í þessum geira, bæði í rafbílaframleiðslu, rafhlöðu- framleiðslu og í námuvinnslunni sjálfri. Til að mæta þessu lagði Bandaríkja- forseti það til í apríl að dælt yrði 174 milljörðum dollara inn í bandarísk- an bílaiðnað. Þá hafa 100 milljarðar verið eyrnamerktir í niðurgreiðsl- ur á rafmagnsbílum til neytenda í Bandaríkjunum. Sjaldgæfum plöntum og dýrum fórnað fyrir bílarafhlöður Bandaríkjamenn skortir líka aðgang að líþíum og kóbalti til að geta drifið sína rafbílavæðingu áfram. Á námu- svæðum hafa líka komið upp deilu- mál um umhverfisvernd. Á svæði í norðanverðu Nevada-ríki fundust t.d. vænlegar liþíum-námur. Vandinn var bara að á yfirborðinu sem þurfti þá að raska, voru plöntur (Tiehm's buckwheat) sem hvergi var annars staðar að finna í heiminum og því ekki hægt að grafa. Í september í fyrra vildi svo ti l að plönturnar drápust allt í einu eina nóttina á einhvern dularfullan hátt. Þá var ekkert því ti l fyrirstöðu að hefja námuvinnsluna. Greint var frá því hjá fréttastofu Reuters í mars sl. að umhverfis- verndarsamtök hygðust lögsækja ástralska námufyrirtækið Ioneer Ltd. fyrir plöntudrápið. Þá er talað um að námugröfur á þessum stað muni líka skaða uppeldissvæði villtrar antilópu- tegundar. Einnig hefur komið til árekstra við frumbyggja Ameríku í Arizona vegna námugraftar. Neyddist ríkisstjórn Joe Biden m.a. til að grípa inn í og banna Rio Tinto námugröft á svæði frumbyggjanna Friðunarstefna og rafbílavæðing stangast á Virðist sem umhverfisverndarstefna Joe Biden forseta sé að verða honum til trafala í viðleitninni við að hraða innleiðingu rafbílavæðingar. Að sögn greinarhöfundar Reuters hefur hann viljað vernda að minnsta kosti 30% af því landi sem er í eigu alríkisins og í strandhéruðum og þrefalda þar með verndarsvæði í Bandaríkjunum. Á þessum svæðum eins og í Nevada er einmitt að finna nauðsynleg hrá- efni eins og liþíum fyrir rafbílavæð- inguna. „Þú getur ekki notið grænnar orku (í bílum) nema að stunda námugröft. Það er bara veruleikinn,“ segir Mark Senti forstjóri Advanced Magnet Lab Inc. /HKr. DSD fjósainnréttingar sem framleiddar eru í Hollandi eru sérsmíðaðar fyrir íslenskar kýr og hafa þegar sannað gildi sitt í íslenskum fjósum. Innréttingarnar eru hannaðar og prófaðar eftir ströngustu gæðakröfum og miða að velferð bæði dýra og manna. Áralöng reynsla hefur leitt af sér innréttingakerfi sem auðvelt er að aðlaga nánast öllum þörfum nútímafjósa. Hafðu samband: bondi@byko.is byko.is FJÓSAINNRÉTTINGAR Rafbílavæðingin er keyrð áfram og oft meira af krafti en forsjá: Forseti Bandaríkjanna kominn með áhyggjur af ónýtum bílarafhlöðum – Vill setja kraft í endurvinnslu enda er ótti við að milljónir tonna af ónýtum og mengandi rafhlöðum endi í landfyllingum Neytendur hafa tekið rafmagnsbílunum fagnandi. Fjölgar þeim nú mjög ört um allan heim. Flestir þeirra eru búnir rafhlöðum sem illa hefur gengið að endurvinna þrátt fyrir fögur fyrirheit og hafa menn af því vaxandi áhyggjur. Rafbílavæðingin er þrátt fyrir sína galla um margt jákvæð. Hefur hún m.a. fætt af sér margar skemmtilegar hugmyndir, eins og smíði lítilla ökutækja og jafnvel eins manns löggubíls eins og hér sést. Bilarafhlöður eru afar mismunandi að gerð og efnasamsetningu sem gerir a��a endurvinns�u á �eim mj�g erfiða.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.