Bændablaðið - 24.06.2021, Síða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 21
Rafknúnir bílar seljast nú eins
og heitar lummur og flestir eru
þeir búnir L iþíum-Ion rafhlöðum.
Fullyr t er að rafbílar muni yfir-
taka bílamarkað heimsins á næstu
5 til 10 árum. Þetta hefur ver ið
knúið áfram undir slagorðum
náttúruverndar og baráttu gegn
losun koltvísýr ings út í andrúms-
loftið. Þetta er þó ekki tekið út
með sældinni því farnar eru að
hlaðast upp rafhlöður úr ónýtum
rafbílum sem fáir hafa áhuga á að
endurnýta.
Vegna stöðunnar eru farnar að
renna tvær grímur á þjóðarleiðtoga
á borð við Joe Biden Bandaríkja-
forseta. Þeir eru farnir að viðurkenna
að námugröftur eftir þeim sjaldgæfu
málmum sem þarf í allar bílarafhlöð-
urnar er bara alls ekkert umhverfis-
vænn né framleiðslan á rafhlöðunum
sjálfum.
Bandaríkjaforseti vill stórauka
endurvinnslu á bílarafhlöðum
Þann 5. júní síðastliðinn birti Reuters
frétt um að Joe Biden Banda-
ríkjaforseti hafi sett í gang áætlun
sem miðar að því að stórauka endur-
vinnslu á bílarafhlöðum. Á það að
vera hluti af loftslagsmarkmiðum
forsetans. Reyndar hafa Demókratar
í Bandaríkjunum verið harðir á að
hrinda í gang áætlunum um að
meirihluti bíla sem bandarískir
bílaframleiðendur framleiða 2030
verði rafmagnsbílar og að allir bílar
á götum Bandaríkjanna verði orðnir
rafmagnsbílar árið 2040.
Endurvinnsla á bílarafhlöðum er
hins vegar mjög flókin og kostnaðar-
samt er að endurvinna þungmálmana
úr rafhlöðunum. Þá eru rafhlöðurn-
ar mismunandi milli framleiðenda
og efnainnihald ólíkt. Þrjár megin
gerðir eru til sem byggja á bakskaut-
um úr nickel-kóbalt og áli, í öðru
lagi úr járnfosfati og í þriðja lagi á
nikkel, magnesíum og kóbalti. Því
er hugmyndin líka sú að upphugsa
leiðir til að minnka umfang sjald-
gæfra málma í rafhlöðunum. Þeir
bjartsýnustu telja að hægt verði að
draga úr námugreftri eftir liþíum
árið 2040 um 25% ef það tekst að
endurvinna þann málm úr notuðum
rafhlöðum og um 35% er varðar
kóbalt. Er bandaríski hluti Energy's
Argonne National Laboratory þegar
sagður vera á kafi í slíkum rann-
sóknum. Umhverfismálaráðuneyti
Bandaríkjanna hefur þegar sett um
15 milljónir dollara í það sem nefnt
hefur verið ReCell Center sem á að
samhæfa rannsóknir vísindamanna
og stofnana varðandi endurvinnslu
á rafhlöðum. Bretar hafa sett í gang
svipaðar aðgerðir sem kallaðar eru
ReLiB verkefnið.
Um 8 milljón bílarafhlöður
gætu endað á bandarískum
ruslahaugum
Á síðasta ári seldust um 2,5 milljónir
rafmagnsbíla í heiminum. Búist er
við að sú sala aukist um 70% á
yfirstandandi ári og haldi síðan
stöðugt áfram að aukast til 2040
samkvæmt markaðsspá IHS Markit.
Þá spá sérfræðingar á markaði því að
145 milljónir rafbíla verði komnir á
göturnar 2030, en þeir voru orðnir
um 11 milljónir á árinu 2020.
Til þessa hafa ekki nema um 5%
af bílarafhlöðum sem teknar hafa
verið úr umferð farið í einhvers konar
endurvinnslu. Fréttaveita Bloomberg
telur að um ein milljón bílarafhlaða
verði komnar úr umferð árið 2027.
Þegar eru farnar að hlaðast upp
slíkar rafhlöður í stórum stíl með
tilheyrandi mengunarhættu. Ef ekki
verður gripið til róttækra aðgerða við
endurvinnslu bílarafhlaða þá búast
bandarísk yfirvöld við að 8 milljónir
tonna af ónýtum bílarafhlöðum endi
á ruslahaugum eða í landfyllingum
í Bandaríkjunum einum árið 2040.
Greenpeace hefur áætlað að 7,05
milljón tonna af ónýtum Liþíum -Ion
bílarafhlöðum muni falla til í Kína á
árunum 2021 til 2030. Fjallað var um
málið í South China Morning Post
þann 19. mars síðastliðinn.
Víðar eru áhyggjur að kvikna
vegna óvistvænna bílarafhlaða.
Evrópusambandið er þannig sagt vera
að „ íhuga“ að draga úr útflutningi á
málmúrgangi, þar með talið á bíla-
rafhlöðum, og að hvatt verði til endur-
vinnslu á heimamarkaði.
Vonir standa þó líka til að upp-
bygging innviða fyrir vetnisvæðingu
muni smám saman draga úr þörf á
notkun rafhlaða í rafmagnsbílum.
Einnig að ný gerð af rafhlöðum inni-
haldi ekki eins mikið af þungmálmum
og núverandi rafhlöður og verði jafn-
framt endingarbetri.
Vill ná forskoti á Kínverja með
milljarða dollara innspýtingu
Bandaríkjaforseti hyggst ná forskoti
á Kína, bæði í framleiðslu á rafbílum,
rafhlöðum í alla rafmagnsbílana sem
og endurvinnslu. Kínverjar, með
sitt risafyrirtæki í rafhlöðuiðnaði,
Gangfeng Lihium Co. Ltd., settu hins
vegar í gang svipaða áætlun á síðast-
liðnu hausti. Hafa Kínverjar mikið
forskot á aðrar þjóðir í þessum geira,
bæði í rafbílaframleiðslu, rafhlöðu-
framleiðslu og í námuvinnslunni
sjálfri.
Til að mæta þessu lagði Bandaríkja-
forseti það til í apríl að dælt yrði 174
milljörðum dollara inn í bandarísk-
an bílaiðnað. Þá hafa 100 milljarðar
verið eyrnamerktir í niðurgreiðsl-
ur á rafmagnsbílum til neytenda í
Bandaríkjunum.
Sjaldgæfum plöntum og dýrum
fórnað fyrir bílarafhlöður
Bandaríkjamenn skortir líka aðgang
að líþíum og kóbalti til að geta drifið
sína rafbílavæðingu áfram. Á námu-
svæðum hafa líka komið upp deilu-
mál um umhverfisvernd. Á svæði
í norðanverðu Nevada-ríki fundust
t.d. vænlegar liþíum-námur. Vandinn
var bara að á yfirborðinu sem þurfti
þá að raska, voru plöntur (Tiehm's
buckwheat) sem hvergi var annars
staðar að finna í heiminum og því
ekki hægt að grafa. Í september í
fyrra vildi svo ti l að plönturnar
drápust allt í einu eina nóttina á
einhvern dularfullan hátt. Þá var
ekkert því ti l fyrirstöðu að hefja
námuvinnsluna.
Greint var frá því hjá fréttastofu
Reuters í mars sl. að umhverfis-
verndarsamtök hygðust lögsækja
ástralska námufyrirtækið Ioneer Ltd.
fyrir plöntudrápið. Þá er talað um að
námugröfur á þessum stað muni líka
skaða uppeldissvæði villtrar antilópu-
tegundar.
Einnig hefur komið til árekstra við
frumbyggja Ameríku í Arizona vegna
námugraftar. Neyddist ríkisstjórn
Joe Biden m.a. til að grípa inn í og
banna Rio Tinto námugröft á svæði
frumbyggjanna
Friðunarstefna og
rafbílavæðing stangast á
Virðist sem umhverfisverndarstefna
Joe Biden forseta sé að verða honum
til trafala í viðleitninni við að hraða
innleiðingu rafbílavæðingar. Að sögn
greinarhöfundar Reuters hefur hann
viljað vernda að minnsta kosti 30%
af því landi sem er í eigu alríkisins
og í strandhéruðum og þrefalda þar
með verndarsvæði í Bandaríkjunum.
Á þessum svæðum eins og í Nevada
er einmitt að finna nauðsynleg hrá-
efni eins og liþíum fyrir rafbílavæð-
inguna.
„Þú getur ekki notið grænnar orku
(í bílum) nema að stunda námugröft.
Það er bara veruleikinn,“ segir Mark
Senti forstjóri Advanced Magnet Lab
Inc. /HKr.
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
FJÓSAINNRÉTTINGAR
Rafbílavæðingin er keyrð áfram og oft meira af krafti en forsjá:
Forseti Bandaríkjanna kominn með
áhyggjur af ónýtum bílarafhlöðum
– Vill setja kraft í endurvinnslu enda er ótti við að milljónir tonna af ónýtum og mengandi rafhlöðum endi í landfyllingum
Neytendur hafa tekið rafmagnsbílunum fagnandi. Fjölgar þeim nú mjög ört
um allan heim. Flestir þeirra eru búnir rafhlöðum sem illa hefur gengið að
endurvinna þrátt fyrir fögur fyrirheit og hafa menn af því vaxandi áhyggjur.
Rafbílavæðingin er þrátt fyrir sína galla um margt jákvæð. Hefur hún m.a.
fætt af sér margar skemmtilegar hugmyndir, eins og smíði lítilla ökutækja
og jafnvel eins manns löggubíls eins og hér sést.
Bilarafhlöður eru afar mismunandi að gerð og efnasamsetningu sem gerir
a��a endurvinns�u á �eim mj�g erfiða.