Bændablaðið - 24.06.2021, Síða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202122
LÍF&STARF
Sar a Jóna Emilía býr í
Skagafirði en er fædd og uppalin
í sveit í skosku hálöndunum.
Hún er náttúr ubar n og
ævintýramanneskja af Guðs
náð og alltaf með myndavélina
við höndina en Sara hefur vakið
athygli fyr ir fallegar myndir
sem hún málar af umhver finu
í Skagafirði þar sem íslensku
húsdýr in koma jafnan við sögu.
„Ég kom hingað árið 2004 út
af náttúrunni og jarðfræði, ég
hafði aldrei séð jökla og eldfjöll,
bara lesið um það í jarðfræði og
dreymdi um að sjá það með eigin
augum.
Ég hafði verið að vinna í
Svíþjóð og var búin að ferðast um
öll Norðurlöndin fyrir utan Ísland
en draumurinn var að koma
hingað til Íslands og sjá landið.
Ég sótti um alls konar vinnu og
fékk vinnu hjá Flúðasveppum á
Flúðum. Ég ætlaði að vera hérna
í þrjá mánuði í sumarvinnu og
skoða landið en varð fljótlega
ástfangin af landinu,“ segir Sara.
Eins og að ganga
um í álfasögu
Það er óhætt að segja að Sara hafi
lifað ævintýralegu lífi en áður en
hún ferðaðist um Norðurlöndin og
settist að á Íslandi bjó hún í 16 ár
í Suður-Afríku þar sem hún lagði
stund á nám við landbúnaðarskóla
með áherslu á ræktun grænmetis
og suðrænna ávaxta og segir hún
þann tíma hafa verið góðan grunn
fyrir ýmislegt í lífinu.
„Ég var að ferðast hringinn í
kringum Ísland eitt sumarfríið og
langaði að prófa eitthvað annað
en að vera á Suðurlandinu. Mig
langaði að vera þar sem væru
falleg fjöll, náttúra og hestar og
þá var mér bent á Skagafjörðinn.
Ég kom hér einn brjálaðan veður-
dag í mars á Sauðárkrók og fékk
fljótlega vinnu í frystihúsinu í
fjögur ár, síðan eru liðin 14 ár,“
segir Sara, sem er meðal annars
búin að læra ferðamálafræði við
Hólaskóla.
Sara er iðin við að mála
myndir og lætur framleiða fyrir
sig tækifæriskort eftir myndum
sínum sem hafa rokið út eins og
heitar lummur. Margt af því sem
hún málar tengist sveitinni og
íslensku húsdýrunum.
„Hjartað slær með landbún-
aði, sveitinni og náttúrunni. Það
veitir svo
mikinn innblástur. Ég hef alltaf
verið listræn en ég byrjaði ekki
fyrir alvöru að mála fyrr en ég
kom í Skagafjörðinn. Það var
eins og að ganga um í álfasögu
að vera hérna.
Ég byrjaði að mála á striga og
gefa í jólagjafir, því var vel tekið
og ég hélt áfram. Síðan hefur
þetta þróast og ég byrjaði að gera
tækifæriskortin árið 2014.
Ég sel til vina og vandamanna
en ég er líka félagi í listamanna-
félaginu Sólon hér á Sauðárkróki
þar sem er sýning einu sinni á ári
og þar sel ég líka.
Ég byrjaði á kortunum því mig
vantaði jólakort, ég fann bara ein-
hverja fjöldaframleiðslu frá Kína
en mér fannst vanta eitthvað
íslenskt. Ég byrjaði á að prenta
eina hestamynd sem sló í gegn
2014 og árið eftir gerði ég átta
myndir saman. Þetta byrjuðu sem
jólakort eitt árið en síðan breyttist
það fljótt því fólk notar þetta fyrir
alls kyns tilefni, skírn, afmæli og
við önnur tilefni. /ehg
Sara Jóna Emilía býr í Skagafirði en er fædd og uppalin í sveit í skosku hálöndunum. Hún gerir ýmislegt í frístundum
sínum, eins og að synda út í Drangey, taka ljósmyndir og mála fallegar myndir úr sveitinni.
Sara fær margar hugmyndir að myndum sínum á hverjum degi en eitt sinn gaf hún vini sínum sem átti stórafmæli
málverk af sveitabænum hans og í kjölfarið kom pöntun frá bróður hans. Myndin er af bænum Dæli í Skagafirði.
Sara elskar dýr og hefur oft tekið þátt í sauðburði hjá vinum sínum:„ Það er svo gaman að sjá hvernig dýrin haga sér og sjá karakter þeirra, ég er alltaf með myndavélina með mér og reyni að fanga allt sem ég sé.“ Sjá má verk Söru á Facebook-síðu hennar jokulhrafnart.
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
•
•
•
•
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
„ Hjartað slær með landbúnaði, sveitinni og náttúrunni. Það veitir svo mikinn
innblástur. Ég hef alltaf verið listræn en ég byrjaði ekki fyrir alvöru að mála
fyrr en ég kom í Skagafjörðinn. Það var eins og að ganga um í álfasögu að
vera h�rna. �g byrjaði að má�a á striga og ge�a � jó�agjafir, �v� var ve� te�ið og
ég hélt áfram. Síðan hefur þetta þróast og ég byrjaði að gera tækifæriskortin
árið 2014.“