Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 29
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Báru sjálf hita og þunga
af rekstri safnsins
Jón hóf markvisst að safna
saman munum sem tengdust
verksmiðjurekstrinum árið 1993.
Iðnaðarsafnið var stofnað fáum
árum síðar, á þjóðhátíðardaginn
17. júní árið 1998. Það var í fyrstu
til húsa í fyrrum fataverksmiðju
Heklu á Gleráreyrum en flutti
síðar í Sjafnarhúsið við Austursíðu
þar sem það hafði um 300 fermetra
sýningar- og geymsluhúsnæði til
umráða. Jón og eiginkona hans,
Gisela Rabe-Stephan, báru lengi
framan af hita og þunga af rekstri
safnsins og ráku það á eigin vegum
með styrkjum frá opinberum
aðilum, sjóðum, félögum og
fyrirtækjum. Núverandi húsnæði
Iðnaðarsafnsins er við Krókeyri
6 þar sem áður var áhaldahús
umhverfisdeildar Akureyrarbæjar.
Að loknum endurbótum var flutt
inn í það húsnæði vorið 2004.
Við flutninginn á safnasvæðið
á Krókeyri varð safnið gert að
sjálfseignarstofnun.
Fjórir salir á tveimur hæðum
Húsnæði Iðnaðarsafnsins er 557
fermetrar að stærð, sýningarplás-
sið nær yfir 467 fermetra. Húsið er
á tveimur hæðum og eru sýningar
þess settar upp í fjórum sölum.
Þar er að finna muni sem tengjast
iðnaði og iðnframleiðslu liðinna
tíma, smjörlíkisgerð, prentvélar,
rennibekki og saumavélar af
ýmsu tagi, áhöld til úrsmíði og
lyfjagerðar, matvælaframleiðslu
margs konar, líkön af bátum og
skipum, umfangsmiklum fata-
iðnaði um árin eru gerð skil,
líta má augum rómaða náttkjóla
frá Fatagerðinni Írisi, Duffys
gallabuxur, Skinnu mokkajakka
og Iðunnar skó. Fjölda sýnishorna
um öflugan húsgagnaiðnað er að
finna á safninu. Þar eru líka tæki
og vélar sem notuð voru til að
framleiða Saxbauta, Santonskaffi
og Flórusmjörlíki.
„ Iðnaður af nánast öllu tagi kemur
hér við sögu,“ segir Þorsteinn, en
Wathnehúsið, sem tengist atvinnusögu Akureyrar allar götur frá því það var reist árið 1895, stendur ónotað við
Iðnaðarsafnið. Þar hefur það verið í tæpa tvo áratugi, ekki á sökkli, óupphitað og án rafmagns. Þess bíður að grotna
í rólegheitum niður.
Eitt sinn stóð til að flytja júgursmyrsl á erlendan markað og veltu menn í
þeim hugleiðingum fyrir sér heppilegu nafni á útflutningsvöruna væntanlegu.
Eitt þeirra sem sterklega kom til greina var „ Búkolla beauty cream“ . Ekkert
varð af þessum áformum.
Skósmiðir bæjarins notuðu slöngur úr gömlum bíldekkjum til að búa til
gúmmískó.
Rakarastofa Reynis eins og hún var og hét þegar starfsemin var í blóma.
Niðursoðið nautgripakjöt frá Pylsugerð KEA – ómissandi í útileguna.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
RANDEX - VAGNAR
AF VÖNDUÐUSTU GERÐ
Gerðu kröfur - hafðu samband við Snorra Árnason
í síma 590 5130 og kynntu þér þína möguleika
• Við bjóðum margar stærðir og útfærslur af RANDEX vögnum
• Hardox 450 stál með allt að 80% meiri endingu
• Hagstætt verð
– Framhald á næstu síðu.