Bændablaðið - 24.06.2021, Síða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 33
MASSEY FERGUSON 8S | 205-265 HP
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Sími 480 0080
buvelar.isis a global brand of AGCO Corporation.
Markaðsstofa Suðurlands, Árborgar og Ölfuss:
Búið að opna Vitaleiðina þar sem
gengið er framhjá þremur vitum
„ Vitaleiðin“ svonefnda var
formlega opnuð laugardaginn
12. júní með borðaklippingu en
um er að ræða verkefni á vegum
Markaðsstofu Suður lands í sam-
star fi við sveitar félögin Árborg
og Ölfus.
Nafngiftin kemur vegna vitanna,
Selvogsvita og Knarrarósvita, sem
marka upphaf og enda leiðarinnar,
að auki er þriðji vitinn á leiðinni en
það er Hafnarnesviti í Þorlákshöfn.
Vitaleiðin er tæplega 50 km leið
sem liggur frá Selvogsvita í vestri
að Knarrarósvita í austri.
Leiðin býður upp á f jöl-
breyttan ferðamáta meðfram
strandlínunni, heimsóknir inn
í Þorlákshöfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri, auk vitanna þriggja.
Fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar
eru á leiðinni eins og sundlaugar,
kajakróður, hestaleigur, hesthúsa-
heimsóknir, söfn, gallerí, rib-bátar
og fjórhjól svo að dæmi séu nefnd.
Veitingastaðir eru í öllum þorpun-
um. /MHH
Vitaleiðin er skemmtileg gönguleið á milli þriggja vita við suðurströndina.
Mynd / Markaðsstofa Suðurlands
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga:
Landsbyggðin.is verður nýr
vefur á vegum samtakanna
Landsbyggðin.is er vefur, sem
Samtök sunnlenskra sveitar fé-
laga (SASS) vinnur nú að að setja
upp, en fjórar millj ónir fengust í
styrk vegna verkefnisins.
„ Landsbyggðin.is hefur það
markmið að verða vandað vefsvæði
sem kynnir tækifæri og auðlindir
á Suðurlandi, veitir frumkvöðlum
innblástur og leiðbeinir um vist-
kerfi nýsköpunar. Markmiðið er
að fjölga nýsköpunarverkefnum
og efla klasauppbyggingu á lands-
byggðinni með öflugri ímyndar-
sköpun og aðgengilegu stuðnings-
neti. Ávinning hafa frumkvöðlar
og nýsköpunarfyrirtæki, fjárfestar
sem og eigendur og umsjónar-
menn auðlinda. Unnt er að yfirfæra
verkefnið á alla landsbyggðina í
framtíðinni, í samstarfi við önnur
landshlutasamtök,“ segir Bjarni
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
SASS.
Þróunarsvið SASS mun sjá um
verkefnið og leiða það í samstarfi
við samstarfsaðila s.s. þekkingar-
setur á Suðurlandi og aðra hagaðila
í landshlutanum. /MHH
HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum
á Íslandi þann 11. júní.
• Steinsagir
• Kjarnaborvélar
• Jarðvegsþjöppur
• Sagarblöð
• Kjarnaborar
Víkurhvarfi 4
203 Kópavogur
Opið mán. - fös. kl. 8-17.
S. 588-0028
haverslun.is
Husqvarna Construction Products
Þjónustuverkstæði og varahlutir