Bændablaðið - 24.06.2021, Síða 37

Bændablaðið - 24.06.2021, Síða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 37 Heitið pizza Fyrsta skráða notkun á heitinu pizza er að finna í latnesku 10. aldar handriti frá borginni Gaeta á Ítalíu, sem var á þeim tíma hluti af býsanska heimsveldinu. Í textanum segir að leigjandi ákveðins húsnæðis eigi meðal annars að greiða biskupnum í Gaeta tólf pizze í leigu hvern jóladag og aðrar tólf hvern páskadag. Nokkrar vangaveltur eru um uppruna heitisins. Ein er sú að gríska orðið pitta hafi breyst í framburði í pizza. Uppruni pitta mun vera pikta sem er súrdeigsbrauð og kallaðist picta á latínu. Önnur tilgáta segir að orðið pizza sé komið af bizzo eða pizzo sem komið er úr máli Lombarða, sem höfðu Ítalíu á sínu valdi á sjöttu og fram á miðja áttundu öld, og þýðir munnbiti. Pitsan sigraði heiminn Pitsur eru með vinsælustu skyndiréttum í heimi auk þess sem hægt er að fá þær á mörgum góðum veitingahúsum sem sérhæfa sig í ítalskri matargerð. Pitsur má einnig fá frosnar í matvöruverslunum. Þær eru annaðhvort með þunnum botni, á ítalska vísu, eða með þykkum botni og kallast þá pönnupitsa. Á Ítalíu er hefð fyrir því að skera ekki pitsur sem bornar eru fram á veitingahúsum og ætlast til að þær séu borðaðar með hnífi og gafli. Við óformlegri aðstæður þykir aftur á móti sjálfsagt að skera þær og borða með höndunum. Frá 2009 hefur Napólí-pitsan verið skráð og notið verndar innan Evrópusambandsins sem vöruheiti vegna hefðar og árið 2017 var pitsa hluti af heimsminjaskrá UNESCO um verndum menningar- og náttúruarfleifðar heimsins. Deigið í Napólí-pitsu er gert úr próteinríku hveiti, geri og vatni. Deigið skal hnoða í höndunum eða þar til gerðri og samþykktri vél. Eftir að deigið hefur hefast á að forma það í höndunum og án kökukeflis eða annarra hjálpartækja. Áleggið á hefðbundna Napólí-pitsu er mozzarella-ostur sem gerður er úr vísundamjólk og tómatar sem eru annaðhvort yrkið San Marzano eða Pomodorino del Piennolo del Vesuvio. Napólí-pitsur á að baka í bjöllulaga steinofni sem kyntur er með eldiviði. Hiti ofnsins á að vera á bilinu 400° til 450° á Celsíus og skal baka pitsuna í um það bil tvær mínútur. Þegar pitsan er tekin úr ofninum á hún að vera mjúk, vel bökuð, ilmandi og með mjúka skorpu allan hringinn. Aðrar ítalskar pitsur eru til dæmis pizza alla marinara sem sem bökuð er með tómatmauk sem kryddað er með hvítlauk, basilíku, oregano og matlauk auk kapes, ólífum og söltuðum þisti lhjörtum. Pizza capricciosa er gerð úr mozzarella- osti, skinku, sveppum, þistilhjörtum og tómötum en pizza pugliese er með tómötum, mozzarella-osti og lauk. Sikileysk pitsa, eða sfincionne á ítölsku, er upphaflega 17. aldar brauðréttur frá Sikiley sem kallast focaccia og var hitaður í ofni. Botninn á Sikileyjar-pitsunni er þykkari en almennt gerist með ítalskar pitsur og áleggið fjölbreyttara. Í Bandaríkjum Norður-Ameríku eru ansjósur algengt álegg á pitsum auk nautahakks, skinku, sveppa, pepperoní, ólífa, lauks, ananas, pylsna, spínats og tómata og eru vinsældir áleggsins og sósa misjafnar eftir ríkjum. Talið er að um 13% Bandaríkjamanna borði pitsu á hverjum degi og pitsukeðjur eins og Dominos og Pizza Hut upprunnar þar. Í lok 19. og við upphaf 20. aldar tók fjöldi Evrópumanna sig upp og flutti til Ameríku. Meðal þeirra var fjöldi Ítala frá Napólí og Genoa á Ítalíu sem settist að í Argentínu. Innflytjendunum fylgdu siðir og áður en leið á löngu spratt upp fjöldi pitsustaða í landinu. Auk hefðbundins ítalsks hráefnis einkennir þykkur botn, eldpipar og baunir pitsur í Argentínu. Hawaii-pitsa með ananas kemur frá Kanada og áleggið á henni er yfirleitt tómatsósa, ostur, skinka og ananas. Til eru þeir sem segja að ananas eigi ekki heima á pitsum og fúlsa við hawaii-pitsum. Þeir sem það gera eru líklega þeir sömu og fussa við pitsum með bananaáleggi eins og vinsælt er í Skandinavíu og jafnvel hér á landi. Á Indlandi njóta pitsur með tófú, lamba- eða geitakjötshakki og pækluðum engifer mikilla vinsælda. Í seinni tíð hafa vinsældir grænmetispitsa farið vaxandi á Vesturlöndum. Pitsur í kvikmyndum Aðdáendur kvikmynda hafa án efa tekið eftir því að pitsur eru oft hluti af leikmunum myndanna. Oft er um hreina auglýsingu að ræða þar sem nafn einhverrar pitsukeðjunnar kemur greinilega fram eins og til dæmis í myndinni Wayné s World. Pitsur eru einnig hluti af framtíðarsýninni í Back To The Future II, í Home Alone 2: Í Lost in New York er sena sem sýnir söguhetjuna Kevin borða pitsu í glæsikerru. Ekki má gleyma pitsuáti skjald- bakanna í myndunum um Teenage Mutant Ninja Turtles en mynd- irnar eru nánast eins og ein löng pitsuauglýsing. Hver og ein af skjaldbökunum stökkbreyttu, sem allar bera nafn erkiengils, á sína uppáhaldspitsu. Uppáhaldspitsa Danotel lo er með kjúkl ingi, sveppum, grænum pipar og tómötum, Leonardo vill sína með lauk, svörtum ólífum, grænum pipar og sveppum, Michelangelo er hrifinn af pepperóní, skinku, ananas og jalapenó og Rafael vill sína pitsu með pepperóní, ítalskri sósu, nautahakki og beikoni. Pitsumet Samkvæmt heimsmetabók Guinness var stærsta pitsa sem bökuð hefur verið bökuð í Róm í desember 2012. Pitsan, sem var glútenfrí, mældist 1261 fermetri að stærð og nefnd í höfuðið á Oktavíusi Ágústusi, fyrsta keisara Rómar. Lengsta pitsa sem bökuð hefur verið var 1930 metrar og 39 sentímetrar að lengd og var bökuð í Kaliforníuríki í Norður- Ameríku árið 2017. Verð á pitsum á veitingahúsum er mismunandi eftir áleggi. Á veitingahúsinu Maze í London var og er kannski enn hægt að fá pitsu sem kostar 100 pund, eða rúmar 17 þúsund krónur íslenskar. Pitsan sú er bökuð við viðareld og smurð með lauk- og trufflupúrre, áleggið er franskur fontina og ferskur mozzarella-ostur, ítölsk svínaskinka, kóngasveppir og villt mizuna-salat. Auk þess sem yfir álegginu er þunnt lag af hvítum trufflusveppum. Á veitingahúsi í Skotlandi var um tíma hægt að fá fiskréttapitsu sem kostaði 4.200 pund, eða tæpar 720 þúsund krónur. Álegg pitsunnar sem kallaðist Pizza Royal 007 var Beluga kavíar og humar sem var skreyttur með gullflögum. Almennt eru pitsur sem gerðar eru úr góðu hráefni taldar hollur matur en fólk er almennt varað við að borða mikið af fjöldaframleiddum pitsum sem oft innihalda mikið af fitu, salti og sykri og geta því aukið líkur á æða- og hjartasjúkdómum. Pitsa á Íslandi Árið 1954 birtist mynd í The White Falcon, sem var blað bandaríska setuliðsins hér á landi. Í myndatexta segir meðal annars í grófri þýðingu: „Pitsur eru venjulega ekki á boðstólum svona nærri heimskauts- baug en á þriðjudagskvöldum eru þær vinsælar í NCO matsalnum í Keflavík. Í forgrunni má sjá íslenskt gróðurhúsaræktað tryggðarblóm. Í íslensku er fyrst talað um pitsu í Fálkanum í ferðasögu frá Róm sem ber fyrirsögnina „Allar leiðir liggja til Rómar“ og þar segir: „Sums staðar í Róm rekst maður líka á staði, sem heita pizzeria, þar er sérstaklega framreiddur neapolitanskur matur, sem nefnist pizza, en það er eins konar svellþykk pönnukaka, með ansjósum, olívum, rifnum osti og tómötum.“ Hinn 1. apríl 1960 bauð Naustið í Reykjavík upp á ítalskan matseðil með Pizza a la maison og er það hugsanlega í fyrsta skiptið sem pitsa er í boði á íslensku veitingahúsi. Fljótlega eftir það fara að birtast uppskriftir að pitsum í blöðum og vinsældir heimapitsunnar jukust hratt eftir það. Smárakaffi við Laugaveg var fyrsti matsölustaðurinn á landinu sem var með pitsur að staðaldri í matseðlinum og bauð meðal annars upp á spaghettipizzu, hamborgarapizzu, ananaspizzu og sígaunapizzu. Hornið í Hafnarstræti, sem var opnað 1979, var án efa vinsælasti pitsustaður landsins í mörg ár. Í kjölfarið opnaði fjöldi pitsustaða sem bauð upp á heimsendingu og um tíma var samkeppnin svo mikil að ef ekki tókst að afhenda pitsuna innan ákveðins tíma þurfti ekki að greiða fyrir hana. Árið 2017 þótti talsvert fréttnæmt þegar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, svaraði spurningu um hver væri afstaða hans til ananas á pitsu með þeim orðum að hann væri alfarið á móti ananas á pitsum og bætti við að gæti hann sett lög um það myndi hann banna ananas á flatbökur. Í dag er hægt að fá pitsur á fjölda veitingahúsa um allt land, fá þær sendar tilbúnar heim eða kaupa þær frosnar í verslunum enda pitsur gríðarlega vinsælar hér á landi. �itsa borin �ram � m�tuneyti setu�iðsins � �e�av��. �itsa margar�ta heitir � h��uðið á Margherita, sem var drottning �ta��u � �ringum a�damótin ����. �vi�myndirnar um �eenage Mutant �inja �urt�es eru eins og ��ng �itsuaug��sing. �itsusneið með ananas. Á s�num t�ma �ótti ta�svert �r�ttn�mt �egar Guðni �h. Jóhannesson, �orseti �s�ands, svaraði s�urningu um hver v�ri a�staða hans ti� ananas á �itsu með �eim orðum að hann v�ri a��arið á móti ananas á �itsum. �ombardis �itsustaðurinn � �e� �or� er �yrsti og e�sti star�r��ti �itsustaðurinn � Bandar��jum �orður��mer��u og var sto�naður árið ����. �amanbrotin �a�sone �itsa.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.