Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 37
Heitið pizza
Fyrsta skráða notkun á heitinu pizza
er að finna í latnesku 10. aldar
handriti frá borginni Gaeta á Ítalíu,
sem var á þeim tíma hluti af býsanska
heimsveldinu. Í textanum segir að
leigjandi ákveðins húsnæðis eigi
meðal annars að greiða biskupnum í
Gaeta tólf pizze í leigu hvern jóladag
og aðrar tólf hvern páskadag.
Nokkrar vangaveltur eru um
uppruna heitisins. Ein er sú að gríska
orðið pitta hafi breyst í framburði í
pizza. Uppruni pitta mun vera pikta
sem er súrdeigsbrauð og kallaðist
picta á latínu. Önnur tilgáta segir
að orðið pizza sé komið af bizzo
eða pizzo sem komið er úr máli
Lombarða, sem höfðu Ítalíu á sínu
valdi á sjöttu og fram á miðja áttundu
öld, og þýðir munnbiti.
Pitsan sigraði heiminn
Pitsur eru með vinsælustu
skyndiréttum í heimi auk þess sem
hægt er að fá þær á mörgum góðum
veitingahúsum sem sérhæfa sig í
ítalskri matargerð. Pitsur má einnig
fá frosnar í matvöruverslunum.
Þær eru annaðhvort með
þunnum botni, á ítalska vísu, eða
með þykkum botni og kallast þá
pönnupitsa. Á Ítalíu er hefð fyrir
því að skera ekki pitsur sem bornar
eru fram á veitingahúsum og ætlast
til að þær séu borðaðar með hnífi og
gafli. Við óformlegri aðstæður þykir
aftur á móti sjálfsagt að skera þær
og borða með höndunum.
Frá 2009 hefur Napólí-pitsan
verið skráð og notið verndar innan
Evrópusambandsins sem vöruheiti
vegna hefðar og árið 2017 var pitsa
hluti af heimsminjaskrá UNESCO
um verndum menningar- og
náttúruarfleifðar heimsins.
Deigið í Napólí-pitsu er gert úr
próteinríku hveiti, geri og vatni.
Deigið skal hnoða í höndunum eða
þar til gerðri og samþykktri vél. Eftir
að deigið hefur hefast á að forma
það í höndunum og án kökukeflis
eða annarra hjálpartækja. Áleggið
á hefðbundna Napólí-pitsu er
mozzarella-ostur sem gerður er úr
vísundamjólk og tómatar sem eru
annaðhvort yrkið San Marzano
eða Pomodorino del Piennolo del
Vesuvio. Napólí-pitsur á að baka
í bjöllulaga steinofni sem kyntur
er með eldiviði. Hiti ofnsins á að
vera á bilinu 400° til 450° á Celsíus
og skal baka pitsuna í um það bil
tvær mínútur. Þegar pitsan er tekin
úr ofninum á hún að vera mjúk,
vel bökuð, ilmandi og með mjúka
skorpu allan hringinn.
Aðrar ítalskar pitsur eru til dæmis
pizza alla marinara sem sem bökuð
er með tómatmauk sem kryddað
er með hvítlauk, basilíku, oregano
og matlauk auk kapes, ólífum og
söltuðum þisti lhjörtum. Pizza
capricciosa er gerð úr mozzarella-
osti, skinku, sveppum, þistilhjörtum
og tómötum en pizza pugliese er
með tómötum, mozzarella-osti og
lauk.
Sikileysk pitsa, eða sfincionne
á ítölsku, er upphaflega 17. aldar
brauðréttur frá Sikiley sem kallast
focaccia og var hitaður í ofni. Botninn
á Sikileyjar-pitsunni er þykkari en
almennt gerist með ítalskar pitsur
og áleggið fjölbreyttara.
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku
eru ansjósur algengt álegg á
pitsum auk nautahakks, skinku,
sveppa, pepperoní, ólífa, lauks,
ananas, pylsna, spínats og tómata
og eru vinsældir áleggsins og sósa
misjafnar eftir ríkjum. Talið er að um
13% Bandaríkjamanna borði pitsu á
hverjum degi og pitsukeðjur eins og
Dominos og Pizza Hut upprunnar
þar.
Í lok 19. og við upphaf 20.
aldar tók fjöldi Evrópumanna sig
upp og flutti til Ameríku. Meðal
þeirra var fjöldi Ítala frá Napólí
og Genoa á Ítalíu sem settist að í
Argentínu. Innflytjendunum fylgdu
siðir og áður en leið á löngu spratt
upp fjöldi pitsustaða í landinu.
Auk hefðbundins ítalsks hráefnis
einkennir þykkur botn, eldpipar og
baunir pitsur í Argentínu.
Hawaii-pitsa með ananas kemur
frá Kanada og áleggið á henni er
yfirleitt tómatsósa, ostur, skinka og
ananas. Til eru þeir sem segja að
ananas eigi ekki heima á pitsum og
fúlsa við hawaii-pitsum. Þeir sem
það gera eru líklega þeir sömu og
fussa við pitsum með bananaáleggi
eins og vinsælt er í Skandinavíu og
jafnvel hér á landi.
Á Indlandi njóta pitsur með
tófú, lamba- eða geitakjötshakki og
pækluðum engifer mikilla vinsælda.
Í seinni tíð hafa vinsældir
grænmetispitsa farið vaxandi á
Vesturlöndum.
Pitsur í kvikmyndum
Aðdáendur kvikmynda hafa án
efa tekið eftir því að pitsur eru oft
hluti af leikmunum myndanna.
Oft er um hreina auglýsingu að
ræða þar sem nafn einhverrar
pitsukeðjunnar kemur greinilega
fram eins og til dæmis í myndinni
Wayné s World. Pitsur eru einnig
hluti af framtíðarsýninni í Back To
The Future II, í Home Alone 2: Í
Lost in New York er sena sem sýnir
söguhetjuna Kevin borða pitsu í
glæsikerru.
Ekki má gleyma pitsuáti skjald-
bakanna í myndunum um Teenage
Mutant Ninja Turtles en mynd-
irnar eru nánast eins og ein löng
pitsuauglýsing. Hver og ein af
skjaldbökunum stökkbreyttu, sem
allar bera nafn erkiengils, á sína
uppáhaldspitsu. Uppáhaldspitsa
Danotel lo er með kjúkl ingi,
sveppum, grænum pipar og
tómötum, Leonardo vill sína með
lauk, svörtum ólífum, grænum
pipar og sveppum, Michelangelo
er hrifinn af pepperóní, skinku,
ananas og jalapenó og Rafael vill
sína pitsu með pepperóní, ítalskri
sósu, nautahakki og beikoni.
Pitsumet
Samkvæmt heimsmetabók Guinness
var stærsta pitsa sem bökuð hefur
verið bökuð í Róm í desember 2012.
Pitsan, sem var glútenfrí, mældist
1261 fermetri að stærð og nefnd í
höfuðið á Oktavíusi Ágústusi, fyrsta
keisara Rómar. Lengsta pitsa sem
bökuð hefur verið var 1930 metrar
og 39 sentímetrar að lengd og var
bökuð í Kaliforníuríki í Norður-
Ameríku árið 2017.
Verð á pitsum á veitingahúsum
er mismunandi eftir áleggi. Á
veitingahúsinu Maze í London var
og er kannski enn hægt að fá pitsu
sem kostar 100 pund, eða rúmar
17 þúsund krónur íslenskar. Pitsan
sú er bökuð við viðareld og smurð
með lauk- og trufflupúrre, áleggið
er franskur fontina og ferskur
mozzarella-ostur, ítölsk svínaskinka,
kóngasveppir og villt mizuna-salat.
Auk þess sem yfir álegginu er þunnt
lag af hvítum trufflusveppum.
Á veitingahúsi í Skotlandi var um
tíma hægt að fá fiskréttapitsu sem
kostaði 4.200 pund, eða tæpar 720
þúsund krónur. Álegg pitsunnar sem
kallaðist Pizza Royal 007 var Beluga
kavíar og humar sem var skreyttur
með gullflögum.
Almennt eru pitsur sem gerðar
eru úr góðu hráefni taldar hollur
matur en fólk er almennt varað við
að borða mikið af fjöldaframleiddum
pitsum sem oft innihalda mikið af
fitu, salti og sykri og geta því aukið
líkur á æða- og hjartasjúkdómum.
Pitsa á Íslandi
Árið 1954 birtist mynd í The White
Falcon, sem var blað bandaríska
setuliðsins hér á landi. Í myndatexta
segir meðal annars í grófri þýðingu:
„Pitsur eru venjulega ekki á
boðstólum svona nærri heimskauts-
baug en á þriðjudagskvöldum eru
þær vinsælar í NCO matsalnum í
Keflavík. Í forgrunni má sjá íslenskt
gróðurhúsaræktað tryggðarblóm.
Í íslensku er fyrst talað um pitsu í
Fálkanum í ferðasögu frá Róm sem
ber fyrirsögnina „Allar leiðir liggja
til Rómar“ og þar segir:
„Sums staðar í Róm rekst maður
líka á staði, sem heita pizzeria,
þar er sérstaklega framreiddur
neapolitanskur matur, sem nefnist
pizza, en það er eins konar svellþykk
pönnukaka, með ansjósum, olívum,
rifnum osti og tómötum.“
Hinn 1. apríl 1960 bauð Naustið
í Reykjavík upp á ítalskan matseðil
með Pizza a la maison og er það
hugsanlega í fyrsta skiptið sem pitsa
er í boði á íslensku veitingahúsi.
Fljótlega eftir það fara að birtast
uppskriftir að pitsum í blöðum og
vinsældir heimapitsunnar jukust hratt
eftir það. Smárakaffi við Laugaveg
var fyrsti matsölustaðurinn á
landinu sem var með pitsur að
staðaldri í matseðlinum og bauð
meðal annars upp á spaghettipizzu,
hamborgarapizzu, ananaspizzu og
sígaunapizzu.
Hornið í Hafnarstræti, sem var
opnað 1979, var án efa vinsælasti
pitsustaður landsins í mörg ár. Í
kjölfarið opnaði fjöldi pitsustaða
sem bauð upp á heimsendingu og
um tíma var samkeppnin svo mikil
að ef ekki tókst að afhenda pitsuna
innan ákveðins tíma þurfti ekki að
greiða fyrir hana.
Árið 2017 þótti talsvert fréttnæmt
þegar Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, svaraði spurningu
um hver væri afstaða hans til ananas
á pitsu með þeim orðum að hann
væri alfarið á móti ananas á pitsum
og bætti við að gæti hann sett lög
um það myndi hann banna ananas
á flatbökur.
Í dag er hægt að fá pitsur á fjölda
veitingahúsa um allt land, fá þær
sendar tilbúnar heim eða kaupa
þær frosnar í verslunum enda pitsur
gríðarlega vinsælar hér á landi.
�itsa borin �ram � m�tuneyti setu�iðsins � �e�av��.
�itsa margar�ta heitir � h��uðið á Margherita, sem var drottning �ta��u � �ringum a�damótin ����.
�vi�myndirnar um �eenage Mutant �inja �urt�es eru eins og ��ng
�itsuaug��sing.
�itsusneið með ananas. Á s�num t�ma �ótti ta�svert �r�ttn�mt �egar Guðni �h.
Jóhannesson, �orseti �s�ands, svaraði s�urningu um hver v�ri a�staða hans ti�
ananas á �itsu með �eim orðum að hann v�ri a��arið á móti ananas á �itsum.
�ombardis �itsustaðurinn � �e� �or� er �yrsti og e�sti star�r��ti �itsustaðurinn
� Bandar��jum �orður��mer��u og var sto�naður árið ����.
�amanbrotin �a�sone �itsa.