Bændablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202140
MENNING&SAGA
Á tuttugustu öld varð sú breyting
að flest búverk sem í aldanna rás
höfðu ýmist ver ið unnin með
höndunum einum eða þá með
einföldum handverkfærum voru
nú unnin með verkfærum. Plóga,
her fi, sláttuvélar og flest af þeim
toga kölluðu menn verkfær i.
Það hugtak hefur á seinni árum
þokað fyr ir orðinu búvélar en
það er núorðið notað um flest það
tæknikyns er sner tir bústör f.
Þegar búverkfæri tóku að ryðja
sér ti l rúms, svo að einhverju
nam, urðu landbúnaðarsýningar
afar vinsæll og áhri famiki l l
kynningarvettvangur f yri r
þær. Sögur fara af merkilegum
sýningum á 19. öld, svo sem á
Bretlandseyjum og Norðurlöndum.
Vitað er um Íslendinga sem þessar
sýningar sóttu og urðu fyrir
áhrifum af þeim.
Upphaf búvélaprófana
Fljótlega kom í ljós að búverkfærin,
sem kynnt voru, reyndust notendum
sínum misjafnlega. Þá vaknaði
þörfin fyrir einhvers konar mat á
notagildi verkfæranna. Settar voru
nefndir til þess að meta notagildið og
fella dóma um það, svipaðar þeirri
sem sagt var frá í fyrri pistlum hér
í blaðinu um Búsáhaldasýninguna
1921. Starfið formgerðist og í
flestum nágrannalöndum urðu til
sérstakar prófunarstofnanir fyrir
búverkfæri; þær fyrstu á ofanverðri
19. öld. Verkfærin voru reynd með
skipulegum hætti og skýrslur birtar
um niðurstöðurnar. Með árunum
voru ýmsar verkfæraprófanir
samræmdar á milli landa, og staðlar
settir um framkvæmd þeirra fyrir
ti lsti l l i OECD. Hvað þekktust
prófunarstöðva á heimsvísu
hefur orðið Nebraska Tractor
Test Laboratory sem prófað hefur
dráttarvélar í meira en eina öld.
Formlegt mat og prófun á
búverkfærunum, sem sýnd voru á
Búsáhaldasýningunni 1921, var því
verklag sem vel þekkt var orðið í
nágrannalöndum. Raunar má nefna
eldri vísa að slíku starfi hérlendis,
svo sem hjá Ræktunarfélagi
Norðurlands sem keypti um skeið
í byrjum tuttugustu aldar allmikið
af verkfærum og reyndi sjálft meira
eða minna í starfi sínu. Birtar voru
stuttar umsagnir um nokkra plóga
og herfi í ársriti félagsins 1904
og 1905. Um sama leyti gerði
Búnaðarfélag Íslands athuganir á
sláttuvélum í Reykjavík og birti
umsagnir um þær.
Í l jósi reynslu og þarfa
samþykkti Búnaðarþing 1927
að heimila stjórn Búnaðarfélags
Íslands að skipa þriggja manna
nefnd til þess „að sjá um útvegun
og tilraunir með verkfæri hér á
landi.“ Nefndin varð til sem gerði
þegar allmargar og merkilegar
tilraunir með búverkfæri, einkum
til jarðvinnslu og heyskapar. Síðan
dofnaði yfir starfinu.
Skipuð Verkfæranefnd ríkisins
Með setningu laga um rannsóknir
og tilraunir í þágu landbúnaðarins
árið 1940 var m.a. mælt fyrir
um að ríkisstjórnin skildi skipa
Verkfæranefnd til þess að reyna
ný verkfæri og breytingar á
eldri verkfærum. Af ýmsum
ástæðum var starf nefndarinnar
lítið í fyrstu. Skýrslu birti hún um
starfið 1946, sem fólst í prófun
nokkurra tækninýjunga, m.a.
skurðsprengiefnis, kílplógs og
súgþurrkunar. Í fang sitt hafði
nefndin þá fengið útvegun og rekstur
skurðgrafa ríkisins er varð brátt að
sjálfstæðu og mjög umfangsmiklu
verkefni undir nafni Vélanefndar
ríkisins – Vélasjóðs. Prófun
búverkfæra og verktæknitilraunir
sátu hins vegar á hakanum og árin
1950-1953 lá sú starfsemi niðri enda
ekkert fé ætlað til þeirrar starfsemi.
Vorið 1954 var Verkfæranefnd
ríkisins svo endurskipuð og henni
ráðinn starfsmaður, Jón Ólafur
Guðmundsson, sem hófst þegar
handa við ýmsar bútæknitilraunir
og athuganir. Árlega var birt
skýrsla um niðurstöður þeirra.
Með nýjum lögum um rannsóknir
í þágu atvinnuveganna 1965
var Verkfæranefnd sett undir
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins – og á árinu 1966 varð þar
ti l Bútæknideild sem tók við
bútækniti l raunum og búvéla-
prófunum. Hélst sú skipan til ársloka
2004 að Rannsóknastofnunin rann
inn undir Landbúnaðarháskóla
Íslands. Búvélaprófanir voru þá
nær horfnar af heimi. Síðasta
skýrsla um þær kom út á árinu
2005. Hún var nr. 707. Gefur
talan hugmynd um fjölda einstakra
búverkfæraprófana og -athugana á
tímabilinu 1954-2005.
Hér er ekki rými ti l þess að
rekja í smærri atriðum merkilega
sögu verkfæra- og búvélaprófana
hérlendis eða ti l rauna- og
rannsóknastarfs á sviðum sem
þeim tengdust. Hins vegar má
nefna nokkra þætti sem einkenna
starfsemina og áhrif hennar, eins
og sezt hafa að í huga skrifarans,
sem varla telst þó með öllu óháður
sögumaður.
Verkfæraprófanir spöruðu
bændum fjármuni
Upp úr síðari heimsstyrjöldinni
óx framboð landbúnaðarverkfæra,
ei nkum verkf æra f yr i r
heimilisdráttarvélar sem urðu brátt
almenn eign bænda. Samkeppni um
vinnuaflið knúði á um vélvæðingu
flestra búverka. Verkfærin reyndust
hins vegar afar misjöfn að gæðum og
gerð enda forsendur búvélasmiðanna
breytilegar. Opinbert prófunarstarf
hjálpaði til við að sía út nothæf
verkfæri og það sparaði bændum oft
mikið fé og fyrirhöfn. Skrifaranum
koma í hug nokkur verkfæri á síðustu
öld sem ekki stóðust mál og fóru því
aldrei á hérlendan markað.
Hérlendis urðu til nokkur afar
öflug innflutningsfyrirtæki búvéla
sem mikil áhrif höfðu á tækniþróun
landbúnaðarins. Í þorra ti lvika
varð samstarf Verkfæranefndar
ríkisins og síðar Bútæknideildar
og þessara fyrirtækja farsælt og
gagnlegt bændum. Það varð einnig
í raun leiðbeiningaþjónusta við
bændur á sviði verkfæra, véla og
bútækni. Héraðsráðunautar sinntu
öðrum verkum, mest búfjárrækt,
jarðabótum og matsverkum fyrir
ríkisvaldið.
Á fyrstu árum skipulegra
verkfæraprófana og þá einkum
á sjötta áratug síðustu aldar fór
töluvert fyrir prófun innlendra
verkfæra. Þau voru ýmist
frumsmíði íslenskra hugvitsmanna
eða verkfæri sem áttu sér
misaugljósar erlendar fyrirmyndir.
Síðari árin hurfu þau nær alveg,
enda hefur búvélasmíði ekki
þróast hérlendis ti l langframa.
Íslenskur landbúnaður hefur því að
langmestu leyti reitt sig á erlendar
tæknilausnir og hinn alþjóðlega
búvélamarkað.
Liðin tíð – Framtíðarþarfir
Þörfin fyrir tæknilegar prófanir
landbúnaðarverkfæra og –véla
er nú stórum minni en áður. Því
valda ný og betri smíðaefni, meiri
verkfræðiþekking og betri hönnun.
Búvélarnar standast því yfirleitt
ætlaða áraun og endast eðlilega.
Kunnátta í meðferð þeirra er líka
einnig oftast næg og eðlilegri hluti
af tilverunni en var á fyrstu árum
búvélanna.
Öðru máli gegnir hins vegar um
samspil verkfæranna/búvélanna
við lifandi náttúru – umhverfið
– svo sem jarðveg, gróður, fóður,
velferð og aðbúnað búfjárins, þætti
sem hvað Ísland snertir eru sumir
all ólíkir því sem gerist í erlendum
„hönnunarhéruðum“ búvélanna.
Á því sviði er nú síst minni
þörf „prófana“ tæknibúnaðarins
en áður. Vanmáttur okkar ti l
rannsókna og ráðgjafar á því
sviði er þó bagalegur. Það sama á
einnig við um rannsóknir varðandi
búvélarekstur og –kostnað.
Gagnrýnislítið höfum við lotið og
lútum alheimsþróun bútækninnar
og tæknistraumum hvers tíma –
tíðskunni.
Bjarni Guðmundsson
Hvanneyri
Þyril- og kastdreifarar fyrir tilbúinn áburð tóku að berast til landsins upp úr miðri síðustu öld. Þótt afkastamiklir
væru kom þeim misvel saman við áburðartegundirnar sem þá var völ á og dreifðu eins misjafnt og tegundirnar
voru margar. �otagi�di �estra sem ti� �andsins bárust var m��t � o�inberum �ró�unum, �ar á meða� �essarar, ��he
�ebb �ui�����read�, � �augard��um vorið ����. Mynd / Ólafur Guðmundsson
Bút��nimenn á Hvanneyri reyndu niður�e��ingu my�ju � �msum ti�raunum en mer�i�egar ti�raunir � �á veru h��ðu
m.a. verið gerðar � �yjafirði um og �yrir miðja s�ðustu ��d. H�r er my�ja úr Bauer�haugsugu �e��d � gróinn túnsv�rð
með ���a��ava� my�ju�e��ibúnaði �aust �yrir s�ðustu a�damót. Mynd / Grétar Einarsson
Með samvinnu �missa aði�a varð ti� v�sir að ti�rauna� og rannsó�nastarfi
varðandi byggingar útihúsa, svo sem votheysturna, �atgry�ja, �járhúsa
og innr�ttingar � �jósum. �im�a�órar að hugmynd Gunnars Bjarnasonar
�ennara voru reyndir � Hvanneyrar�jósi ����. �arna eru �eir við athuganir
á árangrinum, �.v. Gunnar Bjarnason, ��tur Gunnarsson �óður�r�ðingur og
s�ðar �orstjóri �annsó�nasto�nunar �andbúnaðarins, og ��a�ur �. �te�ánsson
nautgriparæktarráðunautur. Mynd / Ólafur Guðmundsson
Þegar rafgirðingatækni barst til landsins fyrir alvöru á áttunda tug síðustu
a�dar hó� Bút��nidei�d �a�a á Hvanneyri �msar �ró�anir og rannsó�nir sem
��gðu grunn að inn�endri ver��e��ingu á henni. Mynd / Grétar Einarsson