Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 43
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
TINDAR OG
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
kúabændur sinni nú orðið geld-
kúnum sérstaklega, með þar til gerðu
fóðri, steinefnum og vítamínum.
Það er aftur á móti allt of algengt
að þetta sé ekki gert fyrir kvígurnar
síðustu 60 dagana fyrir burð. Þá er
fósturþroskinn mikill og tekur á
kvíguna enda er hún sjálf enn að
vaxa. Þær þurfa því sérstaklega
gott eftirlit og rétt fóður svo þær
nái að byggja sig rétt og vel undir
burðinn og upphaf mjaltaskeiðsins.
Þegar þær bera ætti holdastig þeirra
að vera 3,5 svo þær hafi af nægu
að taka þegar mjólkurframleiðslan
hefst en samhliða henni eru þær
enn að vaxa og þyngjast þessi
síðustu 15% af ætluðum lífþunga
fullorðinna kúa.
Í tarefni:
• „Fóðrun nautgripa á
mismunandi skeiðum“ eftir
Berglindi Ósk Óðinsdóttur í
bókinni Nautgriparækt, sem
hægt er að nálgast á vef LK:
www.naut.is
• „Fyrstu 8 vikurnar ráða miklu
um örlög kýrinnar“ eftir
greinarhöfund, sjá 13. tbl.
Bændablaðsins 2019.
• „Þungar kvígur endast lengur“
eftir greinarhöfund, sjá 14. tbl.
Bændablaðsins 2020.
Garðar og gróður:
Aðeins af fjölæringum
Nú er tíminn til að huga að
beðunum í garðinum og ekki úr
vegi að skoða aðeins hvaða plöntur
eru vinsælar eða jafnvel líklegar
til vinsælda í garða landsins. Ótal
möguleikar eru fyr ir garðeigendur
þegar kemur að fjölær ingum og
þá sérstaklega þá sem þur fa litla
umhirðu.
Má þar nefna brúskur af
ýmsum yrkjum, burnirót, frúar-
lykil, postulínsblóm, nálapúða að
ógleymdum húslaukum. Í blóm-
strandi deildinni eru laukar vin-
sælir hjá landanum sem koma upp
ár eftir ár án nokkurrar fyrirhafnar.
Túlípanar, páskaliljur og krókusar
sjást gjarnan í görðum á vorin og
fram í sumarbyrjun og koma þeir
sannarlega með lit í lífið eftir vetur-
inn.
Húslaukar eru sígrænir
Sumir fjölæringar geta verið sí-
grænir við góð skilyrði og er
fallegt að sjá græna litinn lífga upp
á lífið yfir veturinn. Svokallaðir
húslaukar, eða Sempervivum sp.
upp á latneskuna, eru skemmtilegir
og þrátt fyrir nafnið eru þeir ekkert
skyldir lauknum sem við notum
til matargerðar heldur er hann af
helluhnoðraættinni.
Sagan segir að fólk hafi sett
húslauka, sem eru með safarík
blöð, á torfþök hjá sér til að ekki
myndi kvikna í ef eldingu skyldi slá
niður á húsið. Húslaukar eiga það
sameiginlegt að þola mikinn þurrk,
þeir mynda hvelfingar og breiða úr
sér um beðið og má í raun segja að
þeir séu þykkblöðungar garðsins.
Ræktuð vegna blaðanna
Brúskur (Hosta) eru blaðhvilfingar
sem eru ræktaðar vegna fallegra
blaða. Þær eru til í fjölmörgum
litum; einlitar, dröfnóttar eða tvílitar.
Skemmtileg útgáfa af brúskum eru
þær sem hafa bláleit blöð og gefa
garðinum þannig skemmtilegan
blæ. Plönturnar eru auðveldar í
ræktun og harðgerðari en margan
grunar. Þær vilja sól part úr degi og
venjulegan garðajarðveg en einnig
má rækta brúskur í pottum og kerum.
Gróðrarstöðvar eru með ótal yrki af
brúskum og er lítið mál að spyrjast
fyrir um úrvalið hjá viðkomandi
stöð.
Gömul garðjurt
Frúarlykill (Primula x pubescens)
hefur lengi fundist í görðum
landsins. Hún er harðgerð og
auðræktuð planta sem hefur mörg
litaafbrigði og blómgast í júní og
júlí. Hún kýs helst rakan jarðveg
og líður betur í skugga heldur en í
beinni sól allan daginn. Frúarlykill
er þekjandi, blómin óvenjustór fyrir
svo lágvaxna jurt og því virkilega
falleg planta í sígræna flóru garðsins.
Svo skemmir heldur ekki fyrir að
hún ilmar.
Íslenska burnirótin
Ekki má gleyma íslensku burnirótinni
(Sedum rosea) sem er harðgerð
og falleg planta sem blómstrar
ýmist gulum eða rauðum blómum.
Burnirótin er sérbýlisplanta sem
þýðir að hún er ýmist annaðhvort
karl- eða kvenkyns. Algengast er
að gróðrarstöðvar selji karlkyns
plöntur, en þær blómstra gulum
blómum. Ef kvenkyns planta er í
nánd fjölga þær sér mikið og er því
best að hafa karlkyns í garðinum hjá
sér. Burnirótin blómgast í júní og fer
vel í beðum og í steinhæðum.
Í gróðrarstöðvum er að finna
úrval af ofangreindum plöntum og
mörgum fleirum og ef eitthvað af
þeim vekur áhuga lesenda er best
að spyrjast fyrir um þær og hvort
þær henti aðstæðunum í garðinum
þínum.
Guðrún Birna Brynjarsdóttir,
garðyrkjunemi.
Postulínsblóm (Saxifraga x urbium)
og Brúska (Hosta sp.).
Burnirótin (Sedum rosea).
Myndir / Guðrún Birna Brynjarsdóttir.
• Verð frá: 250.000 m/vsk.
• Stærðir 3-600 persónueiningar
• Ekkert rafmagn
• Meira en 2ja þrepa hreinsun
• Verð frá 510.000 m/vsk.
• Stærðir 3-1500 persónueiningar
• Rafræn vöktun (valkvæmt)
• Getur hreinsað eColi allt að 99,9%
INNIFALIÐ Í VERÐI
ANAEROBIX HREINSIVIRKI
með síu yfir 90% hreinsun
ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ
allt að 99% hreinsun
• Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald
• Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl.
• Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil
• Mikið pláss fyrir seyru
• CE vottað
• Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum
svæðum t.d við Þingvallavatn
• Afhending á verkstað innan
100km frá Reykjavík
• Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi
komist óhindrað út í jarðveg