Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202146 Laugardaginn 11. júní frumsýndi Bílabúð Benna nýjasta SsangYong Rexton bílinn. Nokkrum dögum fyr ir frumsýninguna kom ég við í Bílabúð Benna og sá þennan nýja bíl ti lsýndar, það fyrsta sem ég tók eftir var breytingin á „ gr illinu“ á bílnum og hugsaði að þessi bíll vær i að segja: „ I look like the Bentley at front.“ Í þessar i ferð samdi ég um að fá bílinn til prufuaksturs að lokinni frumsýningu. Einhver best hljóðeinangraði jeppi á markaðnum Þessi nýi Rexton er með 8 þrepa sjálfskiptingu, hátt og lágt drif og sjálfvirka driflæsingu á afturdrif (prófaði þessa læsingu sérstaklega og hún virkar fínt). 202 hestafla dísilvél og dráttargetan er á bilinu 2.700 kg upp í 3.000 kg. (Skrítið að dráttargeta sé svona lág hér á Íslandi, þegar maður skoðar erlendar síður þá er þar uppgefin dráttargeta 3.500 kg.). Eins og alla bíla sem ég prófa þá hávaðamældi ég bílinn á 90 (á sama stað og aðra bíla). Það er mér óskiljanlegt hvað SsangYong Rexton fær alltaf lága mælingu. Árgerð 2019 mældist 64,7db. en þessi mældist 63,6db. Það er besta mæling á bíl sem ekki er knúin af rafmagnsvél. Ástæðan er væntanlega margþætt, vel hljóðeinangraður, mótorpúðarnir undir vélinni eru olíufylltir og dempa betur hljóð og titring fyrir vikið og að bíllinn var á fínmunstruðum hjólbörðum. Ánægður með eyðsluna miðað við þungan bíl og stóra vél Í fyrstu prófaði ég bílinn innanbæjar á malbiki eingöngu og eftir um 50 km akstur sagði aksturstölvan mér að ég hefði verið að eyða 9,8 lítrum á hundraðið í innanbæjarakstrinum, næst var það malarvegurinn og langkeyrslan. Renndi mér inn á byrjunina á Djúpavatnsleið þar sem ég vissi að væri töluvert laust yfirborð vegna rallýkeppni skömmu áður. Strax og ég kom inn á mölina fann ég að bíllinn var ekki að svara rétt í beygjum og hann virtist vera að berja meira á lausu grjótinu hægra megin að aftan. Stoppaði og fór að fikta í aksturstölvunni, eftir smá stund fann ég skjámyndina af loftþrýstingi í öllum hjólbörðum, engin furða að bíllinn væri óstöðugur því að í hægra afturdekki voru 38psi., en ekki 30 eins og átti að vera. Þetta var lagað og eftir það var bíllinn hreint frábær á mölinni. Ég mæli ekki með að spólvörnin sé tekin af á malarvegi þar sem að bíllinn er mjög kraftmikill og snöggur á snúning sem hæglega getur sett mann út fyrir veg. Spól- og skriðvörnin kemur mátulega seint inn þannig að hægt er að keyra malarvegi ansi létt. Eftir langkeyrsluna var eyðslan hjá mér í henni 7,7 lítrar á hundraðið, en uppgefin meðaleyðsla er 8,2 á hundraðið samkvæmt sölubæklingi. Kostir margir, en fáir gallar Það virðist alltaf vera hægt að betrumbæta bíla og setja í öryggis- og aukabúnað eins og hita í stýri, blindhornsvara, fjarlægðarskynjara gagnvart bili á milli bíla, en allt ofantalið er í nýjasta Rexton bílnum og meira til. Það er samt einn stór mínus í þessum bíl (eins og 2019 árgerðinni), það vantar varadekkið. Benni í Bílabúð Benna hringdi í mig og „ telur sig þekkja mig það mikið að hann viti hvað ég set út á í bílnum“. Hann þóttist vita að ég myndi setja út á hvað götin í grillinu væru stór og að kælirinn fyrir skiptinguna væri í hættu gagnvart grjóti á íslenskum malarvegum. Sagðist hann vera búinn að setja í gang hönnun á hlíf fyrir innan grillið til að verja kælinn. Þessu var ég búinn að taka eftir strax og ég sá bílinn fyrst og hugsaði að þetta væri möguleiki þó hverfandi væri. Fyrir utan mínusana sem ég gef fyrir varadekkið og stór göt í grillinu eru plúsarnir svo miklu fleiri að það er nánast ranglæti að gefa þessa tvo mínusa. Gott verð fyrir sjö manna bíl Rextonbílarnir eru í boði í þrem útgáfum, Premium (tau áklæði), Adventure (vegan/leður) og Ultimate (leðuráklæði) og er verðið frá 8.490.000 upp í 10.990.000, allir skráðir 7 manna, 5 ára ábyrgð, byggðir á grind, millikassi með læsingu og lágu drifi, í boði eru 17 og 18 tommu felgur (prufubíllinn var á 17 tommu felgum sem komu mjög vel út bæði á möl og malbiki). VÉL ÁSINNAB Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is SsangYong Rexton Ultimate. Myndir /HLJ Þegar ég sá þetta grill datt mér í hug eðalbíllinn Bentley. Hliðarspeglarnir stórir með blindhornsvaraljósum. Engin furða að bíllinn hagaði sér undarlega á lausum malarveginum. Gott pláss í miðjusætunum, en öftustu tvö eru varla fyrir eldri en 10 ára. Lukkulegur með eyðsluna í langkeyrslunni. Besta mæling á hávaða inni í bíl í �essum st�rðar�o��i. Þyngd 2.180 kg Hæð 1.825 mm Breidd 1.960 mm Lengd 4.850 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.