Bændablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202146
Laugardaginn 11. júní frumsýndi
Bílabúð Benna nýjasta SsangYong
Rexton bílinn. Nokkrum dögum
fyr ir frumsýninguna kom ég við
í Bílabúð Benna og sá þennan
nýja bíl ti lsýndar, það fyrsta
sem ég tók eftir var breytingin
á „ gr illinu“ á bílnum og hugsaði
að þessi bíll vær i að segja: „ I
look like the Bentley at front.“
Í þessar i ferð samdi ég um að fá
bílinn til prufuaksturs að lokinni
frumsýningu.
Einhver best hljóðeinangraði
jeppi á markaðnum
Þessi nýi Rexton er með 8 þrepa
sjálfskiptingu, hátt og lágt drif og
sjálfvirka driflæsingu á afturdrif
(prófaði þessa læsingu sérstaklega
og hún virkar fínt). 202 hestafla
dísilvél og dráttargetan er á bilinu
2.700 kg upp í 3.000 kg. (Skrítið að
dráttargeta sé svona lág hér á Íslandi,
þegar maður skoðar erlendar síður
þá er þar uppgefin dráttargeta 3.500
kg.).
Eins og alla bíla sem ég prófa
þá hávaðamældi ég bílinn á 90 (á
sama stað og aðra bíla). Það er mér
óskiljanlegt hvað SsangYong Rexton
fær alltaf lága mælingu. Árgerð 2019
mældist 64,7db. en þessi mældist
63,6db. Það er besta mæling á bíl
sem ekki er knúin af rafmagnsvél.
Ástæðan er væntanlega margþætt,
vel hljóðeinangraður, mótorpúðarnir
undir vélinni eru olíufylltir og dempa
betur hljóð og titring fyrir vikið og
að bíllinn var á fínmunstruðum
hjólbörðum.
Ánægður með eyðsluna miðað
við þungan bíl og stóra vél
Í fyrstu prófaði ég bílinn innanbæjar
á malbiki eingöngu og eftir um 50
km akstur sagði aksturstölvan mér
að ég hefði verið að eyða 9,8 lítrum
á hundraðið í innanbæjarakstrinum,
næst var það malarvegurinn og
langkeyrslan.
Renndi mér inn á byrjunina á
Djúpavatnsleið þar sem ég vissi að
væri töluvert laust yfirborð vegna
rallýkeppni skömmu áður. Strax
og ég kom inn á mölina fann ég
að bíllinn var ekki að svara rétt í
beygjum og hann virtist vera að berja
meira á lausu grjótinu hægra megin
að aftan. Stoppaði og fór að fikta
í aksturstölvunni, eftir smá stund
fann ég skjámyndina af loftþrýstingi
í öllum hjólbörðum, engin furða
að bíllinn væri óstöðugur því að í
hægra afturdekki voru 38psi., en
ekki 30 eins og átti að vera. Þetta
var lagað og eftir það var bíllinn
hreint frábær á mölinni. Ég mæli
ekki með að spólvörnin sé tekin af á
malarvegi þar sem að bíllinn er mjög
kraftmikill og snöggur á snúning
sem hæglega getur sett mann út fyrir
veg. Spól- og skriðvörnin kemur
mátulega seint inn þannig að hægt
er að keyra malarvegi ansi létt.
Eftir langkeyrsluna var eyðslan
hjá mér í henni 7,7 lítrar á hundraðið,
en uppgefin meðaleyðsla er 8,2 á
hundraðið samkvæmt sölubæklingi.
Kostir margir, en fáir gallar
Það virðist alltaf vera hægt að
betrumbæta bíla og setja í öryggis-
og aukabúnað eins og hita í stýri,
blindhornsvara, fjarlægðarskynjara
gagnvart bili á milli bíla, en allt
ofantalið er í nýjasta Rexton bílnum
og meira til. Það er samt einn stór
mínus í þessum bíl (eins og 2019
árgerðinni), það vantar varadekkið.
Benni í Bílabúð Benna hringdi
í mig og „ telur sig þekkja mig það
mikið að hann viti hvað ég set út á
í bílnum“. Hann þóttist vita að ég
myndi setja út á hvað götin í grillinu
væru stór og að kælirinn fyrir
skiptinguna væri í hættu gagnvart
grjóti á íslenskum malarvegum.
Sagðist hann vera búinn að setja í
gang hönnun á hlíf fyrir innan grillið
til að verja kælinn.
Þessu var ég búinn að taka eftir
strax og ég sá bílinn fyrst og hugsaði
að þetta væri möguleiki þó hverfandi
væri.
Fyrir utan mínusana sem ég gef
fyrir varadekkið og stór göt í grillinu
eru plúsarnir svo miklu fleiri að það
er nánast ranglæti að gefa þessa tvo
mínusa.
Gott verð fyrir sjö manna bíl
Rextonbílarnir eru í boði í þrem
útgáfum, Premium (tau áklæði),
Adventure (vegan/leður) og
Ultimate (leðuráklæði) og er verðið
frá 8.490.000 upp í 10.990.000,
allir skráðir 7 manna, 5 ára ábyrgð,
byggðir á grind, millikassi með
læsingu og lágu drifi, í boði eru 17
og 18 tommu felgur (prufubíllinn
var á 17 tommu felgum sem
komu mjög vel út bæði á möl og
malbiki).
VÉL ÁSINNAB
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
SsangYong Rexton Ultimate. Myndir /HLJ
Þegar ég sá þetta grill datt mér í hug eðalbíllinn Bentley. Hliðarspeglarnir stórir með blindhornsvaraljósum.
Engin furða að bíllinn hagaði sér undarlega á lausum malarveginum.
Gott pláss í miðjusætunum, en öftustu tvö eru varla fyrir eldri en 10 ára.
Lukkulegur með eyðsluna í langkeyrslunni.
Besta mæling á hávaða inni í bíl í
�essum st�rðar�o��i.
Þyngd 2.180 kg
Hæð 1.825 mm
Breidd 1.960 mm
Lengd 4.850 mm
Helstu mál og upplýsingar