Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202148
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST � BÆRINN OKKAR
Jörðin hefur ver ið í eigu sömu
fj ölskyldu síðan 1946 en þá
keyptu þau Óskar Jóhannesson
og Hildur Guðmundsdótt ir
jörðina. Þau fluttu frá Reykjavík
ásamt Jóhannesi Guðlaugssyni,
föður Óskars. Þegar þau fluttu
að Brekku var enginn vegur að
bænum, sem var tor fbær með
moldargólfi, enginn sími, það
var ekki komið veiturafmagn
en það var rafstöð í læknum
svo þau höfðu það umfram
nágrannabæina.
Þau tóku við því búi sem var
á Brekku, nokkrar kýr og kindur
en þau voru líka brautryðjendur
í vélaverktöku í jarðvinnslu og
vörubílaakstri fyrstu árin og hefur
sú starfsemi verið rekin á Brekku
síðan. Síðar fóru þau einnig út í
ferðaþjónustu sem ekki var mikið
um á þessum árum, margir þekkja
eflaust orlofssvæðið í Brekkuskógi
en það stofnuðu þau í kringum árið
1973.
Árið 2004 keyptu Jóhannes
Helgason, dóttursonur Óskars og
Hildar, og eiginkona hans, Helga
María Jónsdóttir, jörðina. Óskar
og Hildur bjuggu ásamt þeim
Jóhannesi, Helgu Maríu og börnum
þeirra fjórum, á Brekku svo lengi
sem þau lifðu.
Býli: Brekka.
Staðsett í sveit: Biskupstungum í
Bláskógabyggð.
Ábúendur : Jóhannes Helgason
og Helga María Jónsdóttir ásamt
börnum sínum og tengdadóttur.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Jóhannes og Helga María eiga fjögur
börn, þau Jón Óskar, Valdísi Björk
(tengdadóttir), Finn, Rósu Kristínu
og Hildi Maríu en þau eru öll búsett
á Brekku, ásamt þeim búa þar líka
tveir íslenskir fjárhundar, þær Díva
og Perla og Chiwawa hundarnir
Fróði og Tobba.
Stærð jarðar? 670 ha.
Gerð bús? Jarðvinnuverktaka,
sumarbústaðalönd, ferðaþjónusta
og tamningastöð/hrossarækt en
Finnur, Jón Óskar og Valdís Björk
eru öll menntaðir reiðkennarar og
tamningamenn.
Fj öldi búf j ár og tegundir ?
Hrossarækt og nokkrar kindur til
yndisauka.
Hver nig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyr ir sig á bænum?
Jóhannes er í verktökunni þar
sem engir tveir dagar eru eins.
Helga María sér um bókhaldið,
ferðaþjónustuna, þ.e. gistinguna
sem hefur verið róleg undanfarið,
og ýmislegt sem til fellur, börnin
sjá um hesthúsið og þann rekstur
sem því tilheyrir.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústör fin? Í vinnuvélunum er
skemmtilegast að vera með ný/
nýleg góð tæki en leiðinlegast ef
bilar á versta tíma.
Í hestunum er mjög gaman
á vorin að sjá folöldin koma í
heiminn og þegar vel gengur
bæði í kynbótadómum og keppni.
Leiðinlegast er þegar hross slasast
sem gerist sem betur fer ekki oft.
Hvernig sj áið þið búskapinn
fyr ir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Meiri ferðaþjónustu og góða
hrossarækt.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Rjómi, mjólk, smjör og ostur.
Hver er vinsælasti matur inn á
heimilinu? Grillað lambafile með
tilheyrandi.
Ef t i r minni legasta atvi k ið
við bústör f in? Byggingin á
hesthúsinu og reiðskemmunni,
fyrsta skóflustungan var tekin í
ágúst 2019 og það var virkilega
gaman að taka þessa aðstöðu í
notkun.
Íslenskir tómatar eru frábærir
Íslensku tómatarnir eru frábær ir
og oft marglitir í ýmsum stærðum,
mikið hefur aukist úrvalið af
íslenskum tómötum og gætum við
tekið Í tali okkur til fyr irmyndar
að setj a aðeins fullþroskaða
tómata á markað, sem eru rauðir
innan sem utan.
Svo má leika sér með sósur og
sultur þegar þeir eru of linir og of
þroskaðir fyrir skurð.
Tómatsalsa eða góð pitsusósa
› 12 stk. þroskaðir tómatar
› 1 chili, sneiddur og fræhreinsaður
› 1-2 msk. flögusalt
› edik (5 prósent) af heildarþyngd
› 100-200 g sykur
› 1/2 tsk. pipar (cayenne)
› 2 tsk. paprikuduft
› 2 tsk. sinnepsduft
› 1/2 msk. heil piparkorn
› 1 tsk. sinnepsfræ
› 1 stk. lárviðarlauf
Dýfið tómötunum í sjóðandi vatn
í 30 til 60 sekúndur, eða þangað til
skinnið fer að flagna af.
Dýfið í kalt vatn, takið skinnið af.
Skerið í bita og bætið við chili og
paprikudufti. Látið suðuna koma
upp og látið malla í 20 mínútur með
loki. Sameinið restina af hráefni í
kryddpoka eða tesíu, bætið við ediki
og látið sjóða í sér potti. Lækkið
niður hitann og eldið í 20 mínútur.
Fjarlægið kryddpoka og blandið
saman edikblöndu og tómatmauki.
Bætið við sykri og salti, látið sjóða
við vægan þar til blandan hefur
þykknað örlítið. Hægt er að setja
maukið heitt í hreinar krukkur fyrir
góðan geymslutíma í kæli.
Þetta fullkomin pastasósa með ögn
af capers og parmesanosti og góð
á pitsu.
Tómata- og mozzarella Caprese-
salat á pitsu
› 8 sneiðar af fullþroskuðum tómötum
› 2 matskeiðar balsamic-edik
› 8 miðlungs lauf af ferskri basiliku
› 12 sneiðar ferskur mozzarellaostur
› Smá þurrkað oregano
› flögusalt
› ferskur malaður pipar
› 2 matskeiðar jómfrúarolífuolía
Raðið sneiddum tómötum á fat og
setjið eitt basilikulauf ofan á hverja
tómatsneið.
Setjið eina sneið af mozzarella ofan
á hvert basiliku lauf svo það myndist
lög.
Stráið smá oregano, salti og ferskum
möluðum pipar, og úðið yfir með
jómfrúarólífuolía. Endið með smá
balsamic-ediki.
Forbakið pitsudeigið, penslið með
ólífuolíu, raðið tómötunum og bakið
örstutt undir grilli.
Tómat-salat á bökuðu brauði
› 4 hvítlauksrif
› 1 handfylli steinselja, lauslega söxuð
› 1 handfylli ferskur kóríander, lauslega
saxaður
› ½ knippi fersk basilika, lauslega
söxuð
› 1 bolli þroskaðir tómatar, fræhreins-
aðir og hakkað gróft
› 2 tsk tómatmauk (pure) 10 matskeiðar
jómfrúar ólífuolía
› 3 matskeiðar hrísgrjón edik (eða
annað edik)
› 2 tsk. salt
› ½ tsk. nýmalaður svartur pipar
› ¼ tsk. tabasco-sósa
Tómatasamloka
Blandið saman hvítlauk, steinselju,
kóríander, basiliku, tómat og
tómatmauki í matvinnsluvél eða
mortéli. Bætið við olíu og ediki og
blandið í 1-2 mínútur, þar til sósa er
mjög slétt. Bæta tabasco við ef fólk
vill og smakkið til með salti og pipar.
Sósa getur verið í kæli í nokkra daga.
Svo er raðað lagskipt tómötum
basiliku og ristuðu brauði.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
bjarnigk@gmail.com
Brekka