Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 55
Ný reiknivél sem ger ir kleift að
reikna loftslagsáhr if áburðar-
notkunar var formlega opnuð í
síðustu viku. Reiknivélin er sú
fyrsta sinnar tegundar á Íslandi
og var verkefnið unnið í samstar fi
við verkfræðistofuna EFLU með
styrk frá Umhver fis- og auðlinda-
ráðuneytinu.
Dr. Magnús H. Jóhannsson sem
hefur stýrt verkefninu segir að
vélin geri kleift að finna út kostn-
að og loftslagsáhrif við notkun
mismunandi áburðar. Til þess eru
keyrðar saman upplýsingar um
innhald næringarefna í áburðin-
um og fjarlægðir við flutning og
dreifingu. Hægt er að vinna með
fjölmargar tegundir lífræns áburðar
og bera saman við ti lbúinn áburð.
Þannig fást upplýsingar sem nýtast
við ákvarðanatöku og gerð áætlana
um uppgræðslu út frá framboði líf-
rænna efna.
Sundurliðun á framleiðslu, inn-
kaupum, flutningi og dreifingu gera
kleift að fá glögga mynd af kostnaði
og kolefnisspori. Reiknivélin nýtist
þannig stjórnvöldum og stofnunum
við ákvarðanatöku um breytingar á
áherslum í áburðarnotkun t.d. um að
auka nýtingu á lífrænum áburðar-
efnum. Samkvæmt settu markmiði
hefur Landgræðslan aukið notkun
lífræns áburðar til muna en 810
tonna aukning á notkun hans varð
á milli áranna 2019 - 2020.
Fjarlægð við flutninga
á áburði mikilvægur þáttur
í útreikningum
Reiknivélin sýnir að almennt er
kolefnissporið sem fylgir notkun
tilbúins áburðar stærra en frá líf-
rænum áburði. Þar vegur þyngst
kolefnisspor framleiðslu tilbúins
áburðar, en flutningur og dreifing
vega sáral ítið í samanburði .
Kolefnislosun vegna l íf ræna
áburðarins er hins vegar aðallega
fólgin í losun vegna flutnings og
dreifingar og ræðst af næringar-
innihaldi, þyngd og fjarlægðum til
landgræðslusvæða.
Kolefnislosun eftir áburðar-
dreifingu er nokkuð há, bæði fyrir
ti lbúinn og lífrænan áburð. Hún
er reiknuð út frámagni niturs sem
borið er á land. Við þá útreikninga
er notast við stuðla sem fengnir eru
erlendis frá. Raunveruleg gögn um
þessa losun við íslenskar aðstæður
liggja ekki fyrir en myndu án efa
auka nákvæmni útreikninga.
Kjúklingaskítur er
hagkvæmur við uppgræðslu
Kostnaður er breytilegur við nýt-
ingu lífræns áburðar. Þar hefur
flutningsfjarlægðin mest áhrif, sér-
staklega á þau efni sem innihalda
lítið nitur sem er eitt mikilvæg-
ustu efna í áburði. Í reiknivélinni
er miðað við að innihald niturs í
tilbúnum innfluttum áburði sé um
25%. Í lífrænum áburði er mest
nitur að finna í kjötmjöli eða um
9% . Meðalinnihald niturs í öðrum
lífrænum áburði er um 1,3%.
Þegar saman fara lítið kolefnis-
spor og lágur kostnaður við nýt-
ingu lífrænu efnanna er einboðið
að auka nýtingu þeirra og minnka
þannig kolefnisspor áburðarnotk-
unar. Niðurstöður úr reiknivélinni
sýna að miðað við fyrirliggjandi
gögn og núverandi dreifingarað-
ferðir áburðar er hagkvæmast að
nota kjúklingaskít við uppgræðslu.
Það miðast við þær forsendur að
flutningslengd sé innan 90 km fjar-
lægðar, að niturmagn sé um 150 kg
á hektara og að tæknilega sé hægt
að dreifa 4 tonnum á hektara.
Við hönnun reiknivélarinnar
kom í ljós að gögn skortir um nýt-
ingu lífrænna efna við íslenskar
aðstæður. Það er því ljóst að auk-
inn kraft þarf að setja í rannsóknir
á því sviði svo takast megi að auka
notkun lífræns áburðar í framtíðinni
og stuðla að sjálfbærni og eflingu
hringrásarhagkerfisins. /VH
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði • Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
SMÍÐUM OG GERUM VIÐ ALLAR GERÐIR TJAKKA
LÚSMÝ LÚSMÝ LÚSMÝ
Lúsmýið kemur þegar fer að hlýna.
Pantið tímanlega net fyrir gluggana.
www.ölfus.is
Upplýsingar í s. 895-9801
flugnanet@gmail.com
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
MEIRA FÓÐUR, LYSTUGRA FÓÐUR
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
Sími 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
GRÆNU VELFERÐARGÓLFIN
www.comfortslatmat.com
Umhverfismál:
Reiknivél fyrir loftslagsáhrif vegna
áburðarnotkunar tekin í notkun
Magnús H. Jóhannsson teymisstjóri, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og Árni Bragason
landgræðslustjóri.