Fréttablaðið - 09.09.2021, Page 4
Er verið að undirbúa
málsókn á hendur mér
eða Mörkinni eða
ekki?
Ragnar H. Hall, lögmaður.
K Y N N U M N ÝJ A N J E E P®
A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI FRÁ
6.699.000 KR.*
N Á N A R I U P P LÝ S I N G A R Á J E E P. I S
• STÆRRI VÉL 240 HÖ
• 360° MYNDAVÉL
• LÁGT DRIF
• LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ
• SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA
• FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR
N Ý H Ö N N U N
N Ý I N N R É T T I N G
N Ý TÆ K N I
N Ý R Ö R Y G G I S B Ú N A Ð U R
* S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 8 6 2 . 0 0 0
ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ ÁDRIFRAFHLÖÐU PLUG-IN HYBRID
NÚ FÁANLEGUR Í TRAILHA WK ÚTFÆRSLU
Yfirlæknir á sýkla- og veiru-
fræðideild Landspítala segir
ranga notkun og oftrú á hrað-
og sjálfsprófum geta stuðlað
að frekari útbreiðslu Covid-19.
Mikilvægt sé að þekkja tak-
markanir þeirra.
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Karl G. Kristinsson, yfir-
læknir á sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans og prófessor í sýkla-
fræði við Háskóla Íslands, segir
mikilvægt að vita hvernig nota
eigi hraðpróf og sjálfspróf til að
greina veiruna sem veldur Covid-
19 ásamt því að þekkja helstu tak-
markanir þeirra svo að tilætlaður
árangur náist. „Röng notkun og
oftrú á þessum prófum getur þvert
á móti stuðlað að frekari útbreiðslu
veirunnar,“ segir Karl.
Hann segir bæði hraðprófin og
sjálfsprófin óáreiðanlegri en PCR-
prófin sem að mestu hafa verið
notuð hér á landi til að greina
veiruna fram að þessu. Sjálfsprófin
séu þó einnig óáreiðanlegri en hrað-
prófin. Helstu takmörkun hraðpróf-
anna segir hann þá að þau séu ekki
nægilega næm til að greina alla sem
eru með Covid-19.
„Næmi prófanna fer eftir veiru-
magni í nefkokinu. Því meira magn
veira, því meira smitandi er viðkom-
andi einstaklingur og hraðprófið
því líklegra til að verða jákvætt,“
segir Karl. „Hjá einstaklingum með
mikið veirumagn getur næmið verið
allt að 100 prósent, en hjá þeim sem
eru með minna veirumagn getur
næmið farið vel niður fyrir 50 pró-
sent.“
Karl segir niðurstöðu hraðpróf-
anna því geta veitt falska, neikvæða
niðurstöðu. „Falskt neikvæð hrað-
próf geta gefið falskt öryggi og við-
komandi einstaklingar fara þá ekki í
einangrun og halda áfram að smita.“
Hraðpróf sem leyfð eru hér á
landi skulu framkvæmd af heil-
brigðisstarfsmanni sem hlotið hefur
þjálfun, eða sérþjálfuðum starfs-
manni sem fengið hefur sérstaka
þjálfun frá heilbrigðisstarfsmanni.
Í hraðprófum þarf sýnatökupinn-
inn sem notaður er að fara um 10
sentímetra inn í nefið, alveg aftur í
nefkokið, til að ná sýni sem greint er
með prófinu. Sjálfsprófin, sem ein-
staklingar geta framkvæmt sjálfir,
eru f lest gerð fyrir nefstrok og fer
þá sýnatökupinninn einungis 2-4
sentímetra inn í nefið.
„Prófefnin eru sambærileg þeim
sem notuð eru í almennum hrað-
greiningarprófum, en ekki eru gerð-
ar eins strangar kröfur til gæða, inn-
flutnings og sölu og með prófefnin
í hraðgreiningarprófin,“ segir Karl.
Þá segir hann tvennt gera sjálfs-
prófin óáreiðanlegri en hraðpróf
sem framkvæmd eru af aðila með
þjálfun. Sýnin séu tekin frá stöðum
þar sem líklega sé minna veiru-
magn, þar sem pinninn fer ekki eins
langt inn í nefið. Þá hafi prófin ekki
verið skoðuð af Embætti landlæknis
og fengið leyfi ráðuneytisins og því
sé möguleiki á að þau séu ekki eins
næm til að greina lítið veirumagn.
„Vegna alls þessa er mikilvægt að
þessi próf séu ekki notuð af þeim
sem eru með einkenni sem geta
samrýmst Covid-19. Allavega má
ekki treysta neikvæðri niðurstöðu,“
segir Karl og bætir við að einstakl-
ingar með einkenni Covid-19 eigi að
fara í PCR-próf. „Auðvelt er að kom-
ast í einkennasýnatöku og RT-PCR
próf á Íslandi með pöntunarkerfinu
í Heilsuveru.“ n
Hraðpróf og sjálfspróf ekki
nægilega næm til að greina alla
Í hraðprófum sem fræmkvæmd eru af aðila með þjálfun fer sýnatökupinninn um tíu sentímetra inn í nefið, alveg
aftur í nefkokið. Í sjálfsprófi s fer pinninn einungis 2-4 sentímetra inn í nefið. MYND/JÓN GÚSTAFSSON
Karl G. Kristins-
son yfirlæknir á
Landspítala og
prófessor við HÍ.
mhj@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstaréttarlögmenn-
irnir Ragnar H. Hall og Gunnar
Jónsson gáfu vitnaskýrslu fyrir
dómi í gær er Áslaug Björnsdóttir,
fyrrverandi fjórðungseigandi og
stjórnarmaður í Birni Hallgríms-
syni (BH) ehf., Lyfjablóm ehf. í dag,
óskaði eftir svörum um rekstur og
yfirtöku Glitnis banka á BH ehf.
þann 13. ágúst 2008.
Ragnar starfaði um árabil sem
lögmaður BH ehf. ásamt því að
sinna ýmsum verkefnum fyrir hlut-
hafa félagsins, þar á meðal Áslaugu.
Skýrslutakan var liður í mögu-
legri málshöfðun núverandi eig-
anda Lyfjablóms vegna hugsan-
legrar skaðabótaskyldrar háttsemi
einstakra starfsmanna Glitnis og
endurskoðendafyrirtækisins PwC
í tengslum við yfirtöku Glitnis á
félaginu.
Áður en skýrslutakan hófst ósk-
aði Ragnar eftir svörum frá Jóni Þór
Ólasyni, lögmanni Lyfjablóms, um
hvort spyrja ætti hann um atriði
sem hann kynni sjálfur að verða
sóttur til bóta eða saka fyrir sem
aðili. „Er verið að undirbúa mál-
sókn á hendur mér eða Mörkinni
eða ekki?“ spurði Ragnar.
Jón Þór sagði að vitnaskýrslan
væri ekki liður í slíkum undir-
búningi. Ragnar gekkst við því að
hafa gert yfirtökusamninginn og
útskýrði fyrir dómi af hverju ákveð-
ið var að fara ekki með félagið í þrot
heldur láta Glitni taka það yfir.
Vitnaskýrsla yfir Gunnari varð
heldur stutt er hann tók það fram
að hann hefði aldrei unnið fyrir
BH ehf. Var hann krafinn um svör
um umboð sem Kristinn Björnsson
fékk. Gunnar minntist þess að hafa
verið viðstaddur, en sagðist ekki
hafa komið að gerð þess. n
Hæstaréttarlögmenn settust í vitnastúkuna
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Stjórn Handverks og
hönnunar hefur ákveðið að hætta
starfsemi vegna viðvarandi fjár-
skorts og hefur falið framkvæmda-
stjóra að loka starfseminni fyrir
árslok 2021.
Ákvörðun um að loka starf-
seminni hefur fyrst og fremst áhrif
á konur þar sem yfir 90 prósent af
starfandi handverks- og listiðnaðar-
fólki á Íslandi eru konur. n
Skella í lás á árinu
vegna fjárskorts
Frá handverkssýningu í Ráðhúsi
Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
benediktboas@frettablaid.is
KJARAMÁL Læknafélag Reykjavíkur
hefur tilkynnt Sjúkratryggingum
Íslands, SÍ, að félagið liti svo á að við-
ræðum þess við SÍ um samninga við
sérfræðilækna væri slitið. Viðræður
hafa staðið yfir í þrjú ár og eru öll
meginágreiningsefni enn óleyst.
Í tilkynningu segir að Læknafélag-
ið telji einsýnt að margra ára sinnu-
og áhugaleysi stjórnvalda um samn-
ingagerð við sjálfstætt starfandi
sérfræðilækna muni ekki breytast
á vikunum sem fram undan eru til
kosninga. Þess vegna sé eðlilegast að
taka upp þráðinn að nýju þegar ný
ríkisstjórn tekur við. n
Þriggja ára
viðræðum slitið
4 Fréttir 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ