Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.09.2021, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 09.09.2021, Qupperneq 14
Það er fullreynt að kyrrstöðu- og afturhaldsflokkarnir í íslenskri pólitík hreyfi legg eða lið til róttækra breytinga á þessu kerfi. Forsendur fyrir úrræðum stjórnvalda eru ger- breyttar og ekki hægt að láta eins og verk- færakistan innihaldi hvað sem er. Hvenær verðum við aftur frjáls og njótum fullra mannréttinda, hve- nær getum við aftur skemmt okkur, hvenær getum við aftur ferðast án sovéskra afskipta á landamærunum – og hvenær má gagnrýnin rödd á stjórnvaldsákvarðanir í faraldrinum heyrast á RÚV? Þetta eru spurningar sem skipta máli fyrir líf okkar og hamingju og sem ríkisstjórnin getur ekki lengur neitað að svara. Framtíðarsýn stjórnvalda Stjórnvöld virðast ennþá bíða eftir lausnum lyfjarisanna. Ef sú leið verður farin áfram felur hún í sér að bíða til næstu áramóta eftir bóluefn- um við þeim afbrigðum sem nú eru þekkt, en þá verða komin ný afbrigði og bíða þarf til vors eftir bóluefnum gegn þeim o.s.frv. Þannig verðum við ekki aftur frjáls meðan Covid-19 veiran fer um heiminn, sem sagt, um ófyrirsjáanlega framtíð. Afnám frelsishafta Hins vegar hafa bólusetningar þegar skilað þeim árangri að faraldurinn veldur litlum veikindum. Og í mánuðinum munu bæði Danir og Finnar losna við allar takmarkanir á grundvelli víðtækra bólusetninga. Þeir munu þá væntanlega láta far- aldurinn ganga yfir í einhverri mynd og mæta því með öflugri heilbrigðis- þjónustu. Af hverju förum við Íslendingar ekki sömu leið? Er það af því að Landspítalinn hafnar að hjúkra þeim sem eru veikir af Covid-19? Heilbrigðisráðherra verður að bregðast við því með uppsetningu af kastamikillar sóttvarnadeildar utan spítalans. Ekki er hægt að rétt- læta frelsishindranir og tekjutap í samfélaginu með því að læknar við Landspítalann neiti að þjóna í faraldrinum, heldur tvöfaldar það verkefni ráðherrans, því honum ber einnig að leysa stjórnunarvanda spítalans. Eftir hverju bíður hann? Ólögmætar frelsishindranir Ósennilegt er að núgildandi frelsis- og mannréttindatakmarkanir og ferðatakmarkanir á landamærum standist stjórnarskrá og alþjóða- samninga. Svigrúm stjórnvalda til frelsistakmarkana ræðst af því hvað hættan gagnvart lífi og heilsu er mikil, samanber greinargerð Páls Hreinssonar í september 2020. Því þarf að endurskoða aðgerðir gegn faraldrinum þegar áhætta breytist, til dæmis átti að gera það í vetur eftir að viðkvæmir og aldr- aðir höfðu verið bólusettir og aftur í sumar þegar flestir fullorðnir voru bólusettir. Forsendur fyrir úrræðum stjórnvalda eru gerbreyttar og ekki hægt að láta eins og verkfærakistan innihaldi hvað sem er. Opinberar ákvarðanir Mörg sjónarmið þurfa að koma að opinberri ákvarðanatöku. Af því að stjórn þjóðfélags er ekki farsóttar- fræðilegt verkefni, farsóttafræðinga þarf ekki að kalla til nema í upp- lýsingaskyni (frekar en eldfjalla- fræðinga eða jarðskjálftafræðinga); þessir hópar hafa ekki menntun né þekkingu til að taka stjórnvalds- ákvarðanir. Slíkar ákvarðanir eru alltaf hápólitískar og snúast um efnahagsleg, félagsleg, menningar- leg, lögfræðileg og stjórnsýsluleg markmið og hvernig þjóðfélagi við viljum búa í, hvaða stríð við heyjum til að ná markmiðum okkar og hvaða velferðarstig við viljum. Ríkisstjórnin valdi að beita líf- terror, sem fræðimenn kalla svo, til að fá almenning til að samþykkja og jafnvel kalla eftir beinum frelsis- hindrunum með lögregluinngripi og viðurlögum – í þeirri von að lyfjaiðnaðurinn leysti málið hratt og vel og beitti fjölmiðlum fyrir sig. Þar sem um framkvæmdarvalds- verkefni er að ræða hefði átt að beita hófstilltum aðferðum og fara fleiri leiðir en eina til að mæta óvissunni með eggin í f leiri en einni körfu. Svíþjóð, ríki hinna f lóknu lýð- ræðisreglna, hefur beitt valdinu af meðalhófi og farið fleiri en eina leið, til dæmis að takmarkaða yfir- ferð faraldursins, setja upp afkasta- miklar sóttvarnadeildir, bíða eftir bóluefnum og svo framvegis. Svíar hafa hvorki takmarkað ferðafrelsi né málfrelsi. Enn er hálflokað The Economist kallaði í ágúst eftir opnun landamæra. Enn er Ísland samt hálflokað, enn eru skemmt- anir að nokkru bannaðar og enn er skólastarfi og atvinnulífi ógnað með sóttkvíum, þar sem rakningum og eftirliti með einkalífi er beitt. Enn liggur sú hótun í loftinu að aukið frelsi innanlands byggist á lokun Leifsstöðvar. Allt þetta þarf að hverfa og ekki síst öll afskipti lögreglu af lífi almennings. Valkostirnir hafa verið skrifaðir í skýin um nokkra hríð: Við getum lifað eðlilegu lífi í hættulegum heimi baktería og veira, sjúkdóma og dauða, eða búið við skert mann- réttindi og minni efni en áður með landamærin lokuð eða hálflokuð, kannski til langrar framtíðar. Vilj- um við lifa sem frjáls þjóð í hættu- legum heimi? ■ Kaupverð frelsis og velmegunar Virk samkeppni skiptir okkur öll máli. Hún skiptir máli fyrir okkur neytendur vegna þess að á mark- aði ræðst hvaða vörur og þjónusta standa okkur til boða. Þar skiptir verð og þjónusta sköpum. Það má með sanni segja að það séu mann- réttindi að geta búið í samfélagi þar sem samkeppni er virk og aðilar sem selja vöru og þjónustu séu sífellt undir vökulu auga sterks sam- keppniseftirlits. Versti óvinur neytenda Fákeppni á markaði, samþjöppun og krosseignarhald fyrirtækja, er versti óvinur neytandans. Sérlega er skað- legt þegar það er þoku hulið hvernig þessum tengslum er háttað og hvaða eigendur það eru sem raunverulega ráða för. Til að sporna við þessum óvini þarf sterk bein yfirvalda og samkeppnisyfirvalda. Ef það tekst ekki fara þeir sem ráða á markaði sínu fram og kostnaðinn berum við neytendur. Það eru ekki bara neytendur sjálfir sem verða fyrir búsifjum heldur líka önnur fyrir- tæki, ekki síst þau smærri, sem geta ekki keppt, eða eru ofurseld þeim sem starfa í krafti fákeppni og eigna- tengsla. Best er að koma í veg fyrir að einokun, fákeppni og óhófleg eigna- tengsl verði til. Stundum kann að vera að erfitt sé að koma í veg fyrir að það gerist þegar markaður er lítill. Þá skipta gegnsæi og eftirlit öllu máli. Auðlindin okkar er uppspretta auðs Viðreisn vill gera róttækar breyting- ar á því hvernig þeir sem nýta okkar verðmætustu auðlind, fiskimiðin við landið, greiða fyrir nýtingu hennar. Það blasir við öllum að nýt- ing hennar hefur verið uppspretta auðs sem þeir sem hafa notið hans hafa nýtt til fjárfestinga vítt og breitt um samfélagið, eða ráðstafað utan landsteinanna. Þeir sem mest- ar heimildir hafa til nýtingar fiski- miðanna hafa hagnast mikið í skjóli þess aðgangs og þeirra sérkjara sem þeir hafa notið, á grundvelli gallaðs fyrirkomulags á gjaldtöku á þeim verðmætum sem þeim hefur verið veitt heimild til að nýta. Óeðlileg ítök Það er óþolandi að þeir sem auðg- ast á grundvelli aðgangs að auðlind sem er í þjóðareign, greiði ekki verð fyrir aðganginn sem er í samræmi við verð hans á markaði. Sniðgangi síðan beint og óbeint þær reglur sem hafa verið settar um hámark afla- heimilda sem hver og einn má hag- nýta. Síðast en ekki síst er ólíðandi að það sé þoku hulið hvernig þeim auði sem skapast í greininni er ráð- stafað. Þetta allt samanlagt verður til þess að ítök í íslensku atvinnulífi og samfélaginu í heild eru að færast hratt á fárra manna hendur. Það er ekki samfélag sem mér hugnast. Sterk sérhagsmunagæsla Þessi þróun hefur ekki orðið fyrir tilviljun. Hún hefur orðið vegna þess að þeir stjórnmálaf lokkar sem hafa ráðið för undanfarna áratugi hafa varið með kjafti og klóm núverandi kerfi og þá sér- hagsmuni sem það verndar, en hunsað þá almannahagsmuni sem felast í því að veiðiheimildir séu á markaðsverði og tímabundnar. Nýjasta birtingarmynd þessarar hagsmunagæslu er hlægileg tilraun til að breiða yfir ítök stórútgerð- anna í íslensku atvinnulífi, þegar loks tókst að toga með töngum frá sjávar útvegsráðherra skýrslu um efnið, sem Alþingi krafðist að frum- kvæði Viðreisnar. Hingað og ekki lengra Það er fullreynt að kyrrstöðu- og afturhaldsflokkarnir í íslenskri póli- tík hreyfi legg eða lið til róttækra breytinga á þessu kerfi. Viðreisn sér hins vegar tækifæri til breytinga með því að setja almannahagsmuni í forgang og að sérhagsmunir verði látnir víkja. Fyrsta skrefið í þeirri vegferð er að af laheimildir verði tímabundnar og verð þeirra ráðist á markaði. Einnig verði upplýst að fullu um eignatengsl og ítök sem hafa skapast í krafti auðs sem hefur orðið til í skjóli sérréttinda og við þeim verði brugðist. Gefðu framtíðinni tækifæri – kjóstu Viðreisn. ■ Fárra manna hendur Það er ekki allt sem sýnist þegar tekjublöðin birta tekjur fólks og spegla um leið skattbyrðar þessa sama fólks. Það er fróðlegt að bera saman annars vegar tekjublöð Frjálsar verslunar og DV og hins vegar tekju- blað Stundarinnar og skýrslu Stef- áns Ólafssonar um kjör almennings, öryrkja og þá einkum þeirra launa- manna sem komnir eru á eftirlaun. Tekjublöð Frjálsar verslunar og DV segja hálfsannleik sem er í raun- inni verri en lygi, því hann blindar sýn á raunveruleikann. Stundin f lettir ofan af elítunni sem tekst að nota glufur í skatta- kerfinu til að komast undan því að greiða til samfélagsins, eins og almennir launamenn þurfa hiksta- laust að gera. Fjármagnstekjur og arður bera lága skattaprósentu og af þeim greiðir fólk ekki útsvar. Útsvar rennur til sveitarfélaga til að bera ýmislegan kostnað þess sem við borgararnir njótum í daglegu lífi okkar í þeim sveitarfélögum sem við búum og störfum í. Félags- og velferðarþjónustu, menningarlíf, götur, leik- og grunnskóla, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta fólk tekur ekki á sig kostnað vegna þessa, en nýtir þó í ómældum mæli á hverjum degi. Ríkisstjórnin ofurskattleggur lágtekjufólk Ríkisstjórnir sem hafa setið frá 2013, síðustu átta ár, sem allar hafa innihaldið Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn, hafa blygðunarlaust fært kostnað samneyslu okkar og velferðar á veikustu bök samfélags- ins: almenna launamenn, öryrkja og eldri borgara. Þessir flokkar hafa aðhyllst nýfrjálshyggju sem leggur áherslu á að lækka skatta á hátekjur og fjármagnstekjur. Það skiptir miklu máli þegar við tölum um kjör þeirra sem standa lakar og mega við lítilli efnahags- legri ágjöf, fjölskyldur á almennum vinnumarkaði, öryrkja og eftir- launafólk. Það sýnir Stefán Ólafs- son prófessor glöggt í skýrslu sinni, sem hann skrifaði fyrir Eflingu og nefnist Kjör lífeyrisþega. Þar kemur skýrt fram að: „Skatt- byrði þeirra efnameiri var lækkuð og færð yfir á lægst launuðu hópana, þar á meðal lífeyrisþega, og einnig að hluta yfir á millitekjufólk. Þetta er „stóra skattatilfærslan“ sem nýfrjálshyggjan færði okkur. Þessi þróun hefur staðið meira og minna frá 1995 til 2019. Helsta frávikið er stjórnartími vinstri stjórnarinnar er sat frá 2009 til 2013. Þá var skatt- byrði hátekjufólks aukin á ný, en síðari ríkisstjórnir hafa undið ofan af þeim breytingum á ný.“ Stefán vekur athygli á þeirri ótrú- legu skattbyrði sem hefur orðið hjá eftirlaunafólki. Hann segir í grein í Kjarnanum á dögunum að „hún hafi farið úr 11,9% af heildartekjum árið 1995 í 23,3% árið 2018. Skattbyrðin sem sagt tvöfaldaðist. Hjá örorku- lífeyrisþegum (sem hafa lægri tekjur en eldri borgarar) fór skattbyrðin úr um 9,5% í um 21,3%. Þar var aukn- ingin meira en tvöföldun. Þetta er mjög mikil aukning skatt- byrðar – á alla mælikvarða. Til samanburðar má sjá hvernig skattbyrði hátekjufólks á Íslandi (það er tekjuhæsta eina prósents- ins) þróaðist á svipuðum tíma, eða úr 35% í um 26%. Þar lækkaði skatt- byrðin um tæplega 10 prósentu- stig. Þetta var veruleg kjarabót fyrir hátekjufólkið. Setjum hlutina í rétt samhengi Ríkið hefur þannig lagt marga steina í götu þess að lífeyrisþegar hefðu eðlilegar kjarabætur af því að hafa safnað í lífeyrissjóði á starfs- ferlinum – bæði í formi skerðinga og aukinnar skattbyrði. Það er nauðsynlegt að skoða skattamál í allri umræðu um líf- eyrisgreiðslur almannatrygginga, grunnlífeyri og tekjutengingar. Því allt spilar þetta saman. Hægt er að bæta kjör þeirra sem minna bera úr býtum með réttlátari skattlagningu. Eftirlaunafólk og öryrkjar hafa ekki breiðustu bökin og eru að kikna undan byrðunum sem á það er lagðar. Við þurfum að fara í rækilega upp- stokkun á skattalöggjöfinni og lög- gjöf um almannatryggingar. Hvoru tveggja til réttlátara samfélags. Kjör eftirlaunafólks og öryrkja eru ekki það sem er að sliga þjóð- félagið, heldur þeir sem lifa í vel- lystingum praktuglega og bera litlar byrðar, en njóta þó í einu og öllu alls þess sem við hin leggjum til sam- félagsins af kröppum kjörum, svo hér megi ríkja gott samfélag. Við þurfum mannúðlegri ríkis- stjórn. Við þurfum nýja ríkis- stjórn. ■ Veiku bökin bera þyngstu byrðarnar  Jón Steindór Valdimarsson alþingismaður og skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík norður. Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslu- fræðingur. Viðar Eggertsson í 3. sæti á framboðslista Samfylking- ar i nnar í Reykjavík suður. 14 Skoðun 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.