Fréttablaðið - 09.09.2021, Page 18
Hin fornfræga kvenfataverslun
Bernharð Laxdal er nú 83 ára og
hefur í allan þann árafjölda staðið
fyrir sínu sem ein glæsilegasta
kvenfataverslun Íslands. „Í gegnum
árin hefur áherslan alltaf verið á
að bjóða upp á hágæða fatnað sem
stenst tímans tönn. Við höldum
okkur við þau fatamerki sem
standa fyrir sínu og konur vita að
hverju þær ganga þegar þær koma
til okkar.
Það þýðir þó ekki að við hræð-
umst tískuna enda bættum við
nýverið við tveimur glæsilegum
fatamerkjum, Bariloche og Tinta,
sem koma frá Spáni. Um er að ræða
einstaklega dömulegan og fallegan
fatnað fyrir þær sem vilja vera
flottar við öll tækifæri. Áherslan
er á kvenleg snið, aðskorna jakka,
skyrtur og blússur með pífum og
alls konar fallegum smáatriðum.
Við hjá Bernharð Laxdal bjóðum
upp á fallegan og sígildan kven-
fatnað á breiðu verðbili og því ættu
allar konur að geta fundið eitthvað
hér,“ segir Guðbjörg Hjálmars-
dóttir, rekstrarstjóri Bernharðs
Laxdal.
Kápubúð Íslands með meiru
„Aðaláhersla kvenfataverslunar-
innar Bernharð Laxdal hefur verið
á að bjóða íslenskum konum upp
á hágæða yfirhafnir. Við höfum
verið að selja konum yfirhafnir í
yfir 80 ár og höfum stimplað okkur
rækilega inn sem kápubúð Íslands.
Í dag erum við að selja mikið af
dúnúlpum í ýmsum útgáfum, með
eða án skinna. Dúnúlpurnar eru
enda guðsgjöf þegar fer að hausta.
Við erum með allar síddir, stuttar,
millisíðar og svo alveg síðar. Dún-
kápurnar eru að koma einstak-
lega sterkar inn, enda virkilega
fallegar og notalegar á köldum
vetrardögum. Þar bjóða Junge og
Fuchs Schmitt, Saki og fleiri upp
á gott úrval af ýmsum síddum og
gerðum. Ásamt dúnúlpum erum
við einnig með fallega rykfrakka,
regnjakka og ullarkápur frá Fuchs
Schmitt.
Svo erum við með hágæða ítalsk-
ar ullarkápur frá Cinzia Rocca, sem
eru flaggskipið okkar og fallegar
á öllum konum. Kápurnar eru úr
eðalull, sumar með kasmír eða
dýrindis alpakaull. Kápurnar eru
fisléttar, stílhreinar og sérlega
klæðilegar. Þá eru margar konur
að taka skinnkraga með, úr ýmist
refaskinni eða af þvottabirni.“
Glæsilegur kvenfatnaður
Kápur og yfirhafnir eru ekki það
eina sem Bernharð Laxdal er með
fyrir kvenþjóðina. „Stærsta fata-
merkið okkar er Gerry Weber og
höfum við boðið upp á það í tugi
ára. Þetta er þýskt gæðamerki og
við eigum marga fastakúnna sem
líkar við tískusniðin frá Gerry
Weber. Þessar flíkur og snið henta
enda sérstaklega vel konum sem
búa á norðlægum slóðum. Einnig
erum við með Taifun-merkið sem
er yngri línan frá Gerry Weber.
Hver kona þarf að eiga að
minnsta kosti eina fallega svarta
eða dökka dragt í fataskápnum.
Við bjóðum upp á glæsilegar og
sígildar svartar og dökkbláar
dragtir frá Gerry Weber sem við
köllum „basic“ dragtir. Þessar
er afar einfalt að klæða upp eða
niður með pinnahælum eða smart
strigaskóm, allt eftir því hvert til-
efnið er. Þá er hægt að kaupa jakka,
buxur eða pils í ýmsum sniðum
sem passar allt saman. Þessar hafa
verið mjög vinsælar hjá konunum í
Oddfellow og Frímúrurunum.
Gardeur er svo besta fatamerkið
þegar kemur að buxum. Þeir sér-
hæfa sig í að hanna buxur sem
henta kvenlíkamanum einstaklega
vel. Gardeur býður upp á gífurlega
breidd í buxnasniðum og efna-
vali og er með allt frá hversdags-
legum þröngum gallabuxum og
leðurlíkisbuxum upp í sparilegar
dragtarbuxur og jafnvel útvíðar.
Betty Barclay-merkið býður upp
á æðislegar kvenlegar flíkur á hag-
stæðu verði. Meðal þess sem hefur
verið hvað vinsælast eru þykkar
dúnkápur sem munu halda okkur
funheitum í allan vetur.
Það má ekki gleyma glæsi-
kjólunum frá kanadíska merkinu
Frank Lyman. Eftir samkomutak-
markanir eru konur margar farnar
að hlakka til að punta sig upp að
nýju fyrir viðburði haustsins og
þá eru Frank Lyman-kjólarnir
þeir alflottustu. Þetta eru sérlega
fallegir og grand eðalkjólar sem
gaman er að klæðast við hin ýmsu
tilefni.
Fylgihlutirnir eru svo ekki síður
mikilvægir þegar kemur að því
að klæða sig upp. Þá erum við hjá
Bernharð Laxdal með gott úrval af
veskjum og beltum, silkislæðum
og klútum sem setja punktinn yfir
i-ið,“ segir Guðbjörg.
Netverslun
Í vefverslun Bernharðs Laxdal er
hægt að nálgast margar af flík-
unum sem finna má í versluninni.
„Margar nýta sér það að skoða á
netinu fyrst og koma svo og máta
í búðinni enda njóta þær þá okkar
persónulegu þjónustu sem við í
Bernharð Laxdal erum fyrir löngu
orðin fræg fyrir. Að sjálfsögðu er
svo hægt að versla við okkur beint
af netinu. Þá bjóðum við ýmist upp
á að fólk sæki til okkar í verslun
samdægurs eða nýti sér fría heim-
sendingarþjónustu innanlands.“
Bernharð Laxdal er að Skipholti
29b. Nánari upplýsingar í vef-
verslun, laxdal.is.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Klossuð stígvél eru frábær leið til að klæða þennan Bari-
loche-kjól aðeins niður fyrir hversdagslegri tilefni.
Mynstrið á þessari skyrtu er bæði
fallegt og svolítið gæjalegt.
Bariloche er spænskt merki og
kemur með lit í tilveruna.
Skyrturnar frá Bariloche eru
skemmtilegar og einstakar.
Þessi rauði Bariloche-jakki er fullkominn í haust.
Þessi bleiki, köflótti jakki verður
flottur í haust og vetur.
Jakkarnir frá Bariloche eru fallegir og einstaklega klæði-
legir. Köflótt er líka alltaf klassískt.
Reiðfatalúkkið kemur sterkt inn í
haust og þessi jakki smellpassar.
Bariloche og Tinta
koma frá Spáni.
Um er að ræða einstak-
lega dömulegan og
fallegan fatnað fyrir þær
sem vilja vera flottar við
öll tækifæri.
F.v. Brynja, Anna, Lilja, Guðrún, Hjördís og Guðbjörg starfa allar í versluninni.
2 kynningarblað A L LT 9. september 2021 FIMMTUDAGUR