Fréttablaðið - 09.09.2021, Síða 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það er svo æðislegt
með lífsstíl að hann
snertir á flestum flöt-
um. Í gegnum síðustu
tvær þáttaraðir finnst
mér alltaf svo yndislegt
að hitta skapandi fólk.
28 Lífið 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Í kvöld
á Hringbraut
ÉG ELSKA
ÁSKORANIR
Fylgstu með!
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri ORF
líftækni hefur verið áberandi í íslensku
viðskiptalífi um árabil og fer þar sínar eigin
leiðir, svo eftir er tekið, enda elskar hún
áskoranir.
Í Mannamáli í kvöld segir hún sögu
sína, allt frá hjartauppskurðinum fyrir 50
árum og til markaðssetningar á einu mest
verðlaunaða andlitskremi sem framleitt
hefur verið.
Ekki missa af Mannamáli í kvöld
kl. 20.00, bara á Hringbraut.
Nú getur þú einnig hlustað á Mannamál
sem hlaðvarp á Spotify og
Apple podcasts.
Í kvöld verður fyrsti þáttur-
inn af þriðju seríu af þátt-
unum Sir Arnar Gauti sýndur
á Hringbraut. Honum þykir
afar vænt um að fá að hitta
allt það skapandi fólk sem
orðið hefur á vegi hans við
gerð þáttanna.
steingerdur@frettabladid.is
Smek k maðurinn Arnar Gauti
Sverrisson ætti að vera f lestum
landsmönnum kunnur, en hann
stjórnaði um tíma hinum vinsælu
þáttum Innlit/útlit og er nú með
lífsstílsþættina Sir Arnar Gauti,
sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni
Hringbraut. Fyrsti þáttur þriðju
seríu verður frumsýndur í kvöld
„Þessir þættir eru kannski eðlilegt
framhald þess að ég stýrði á sínum
tíma einum vinsælasta þætti lands-
ins, Innlit/útlit, í þrjú ár. Svo er ég
náttúrulega búinn að vera í tísku
í þrjátíu ár og fer síðan meira yfir í
hönnun. En þetta lífsstílstengda líf
mitt færðist yfir í að það væri gaman
að deila því með áhorfendum,“ segir
hann.
Í þáttunum Sir Arnar Gauti fer
hann yfir víðari völl þegar kemur
að hönnun en hann gerði í Innliti/
útliti.
„Það er svo æðislegt með lífsstíl
að hann snertir á f lestum flötum.
Í gegnum síðustu tvær þáttaraðir,
finnst mér alltaf svo yndislegt að
hitta skapandi fólk. Forréttindin
við þetta starf eru allt þetta fólk
sem maður hittir. Mér finnst ekkert
skemmtilegra en að hitta áhuga-
verða listamenn. Þetta er bara
ótrúlegt líf og gaman að sjá þessa
sköpun. Svo er náttúrulega matur
stór partur af lífsstíl, tíska og föt.“
Elskar að gera góð kaup
Arnar segir að honum þyki því
skemmtilegt að fylgjast með þessu.
„Við eigum náttúrulega svo stór-
kostlega veitingastaði, í þeim geira
eru líka f lottar týpur og karakt-
erar sem eru með sína sýn sem mér
finnst gaman að ná fram. Svo er
náttúrulega hönnunin bara númer
eitt tvö og þrjú. Að fá að fjalla um
hugsjónir hönnuðanna. Tala um
það sem kannski er að koma í tísku
eða jafnvel góð verð. Ég elska að gera
góð kaup,“ segir hann.
Hann segir nýju seríuna vera
örlítið öðruvísi.
„Ég er náttúrulega hönnuður
sjálfur, þá fyrst og fremst innan-
hússhönnuður. Ég hef hannað
nokkra veitingastaði og skrifstofur.
Ég var að klára núna höfuðstöðvar
SaltPay. Það var alveg geggjað verk-
efni. Þar fá áhorfendur að sjá hvern-
ig húsnæðið leit út fyrir og eftir.“
Jaðarinn í sókn
Arnar nefnir hve áhugavert það er
hve fjölbreytt f lóra er af veitinga-
stöðum.
„Það var til dæmis að opna nýr
veitingastaður með suður-amer-
ískum mat sem heiti Selva. Ég er
svo núna að fara í það að hanna 26
nýjar íbúðir. Það er pínu nýtt og
fólk fær að fylgjast með því. Þær
eru í nýju hverfi sem er að byggjast
upp í Vogum við Vatnsleysuströnd.
Núna eru útjaðrarnir, eins og Selfoss
og Hveragerði, orðnir sífellt vinsælli.
En það er auðvitað út af lóðaskorti.“
Hann segir núna vera að koma
nýtt skipulag í Vogum.
„Við vinnum með fyrirtæki
sem heitir Smartbyggð. Ég ætla að
gera það svolítið bara í Sir Arnars
Gauta-stíl, þær verða mjög flottar.
En númer eitt, tvö og þrjú hjá mér
er að hitta skemmtilegt fólk og sýna
áhorfendum hvað er þarna úti.“
Geggjuð breyting
Arnar er spenntur að sýna áhorf-
endum þættina.
„Það er eitt mjög spennandi verk-
efni sem ég sýni frá. Ég endurhann-
aði þrjá stigaganga í fallegu fjöl-
býli. Flestir stigagangar eru frekar
leiðinlegir. Oftast bara hvítir veggir
og plexíglerpóstkassar og teppa-
lögð gólf. Þannig að ég setti viðar-
klæðningu í anddyrið og svarta
járnpóstkassa. Og lét svo mála allt í
París-mood-gráum lit, setti plöntur
og svarta kastara. Þetta er sturluð
breyting og við sýnum frá því í þátt-
unum. Fyrir og eftir,“ segir hann.
Arnar segir fólk oft líta fram hjá
mikilvægi þess að hafa fallegan
stigagang.
„Þetta er smá svona „f irst
impression“ þegar þú færð fólk til
dæmis í matarboð eða bara heim-
sókn. Þetta er geggjuð breyting. Ég
hlakka virkilega mikið til að sýna
fólki þetta.“
Einstakir viðmælendur
Margir viðmælendur hafa auðgað
líf Arnars, að hans sögn.
„Svona af því sem er fram undan,
þá er erfitt að gera upp á milli. Ég er
að tala frábæra hönnuði. Ég fjallaði
til dæmis mikið um Austurhöfn í
síðustu seríu. Alveg ótrúlegar íbúðir
sem byrja í 150 milljónum upp í 500
milljónir. Þar var hún Hildur Árna-
dóttir innanhússarkitekt hjá Studio
Homestead að vinna þær íbúðir
með þeim sem kaupa þær. Það var
mjög gaman að spjalla við hana.
Ótrúlega flott pæling,“ segir Arnar.
Hann segir viðtal sem hann tók
við Óskar Finnsson fyrir síðustu
seríu algjörlega standa upp úr.
„Hann var að opna Finnsson
Bistro í Kringlunni á meðan hann
hefur verið að glíma við gríðarlega
erfitt krabbamein. Það viðtal stóð
algjörlega upp úr. Það var mjög
persónulegt. Þetta æðruleysi hans
var svo einstakt, sýn hans á lífið og
þetta stóra verkefni að stofna þenn-
an veitingastað fyrir börnin sín.
Það hélt honum svolítið á tánum.
Svo átti ég frábært viðtal við Eyjólf
í Epal, ég ber alltaf mikla virðingu
fyrir hans karakter. En svo eru líka
frábær viðtöl í nýju seríunni sem ég
er mjög spenntur að sýna.“ n
Þykir vænt um að fá
að ræða við einstakt fólk
Þriðja sería af þáttunum Sir Arnar Gauti hefst í kvöld á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. MYND PÉTUR FELDSTED