Fréttablaðið - 04.09.2021, Side 16
Hin fræga ástarsaga Shakespeares, Rómeó og Júlía, lifnar í kvöld við í Þjóðleikhúsinu með nýrri nálgun. MYND/AÐSEND
Leikhúsin
lifna við
Eitt merki um það að lífið færist smátt og
smátt í sitt eðlilega horf eru opnar dyr leik-
húsanna. Sýningar sem legið hafa í dvala
lifna ljóslifandi við á sviði, auk þess sem nýjar
bætast við og menningarvitar fagna.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Mæður
Síðustu sýningar á gesta-
sýningu Borgarleikhússins
Mæður verða í kvöld og
annað kvöld. Mæður fagna
vandamálunum og sigrunum
sem fylgja móðurhlutverk-
inu, því sagða og öllu sem
okkur er ekki sagt, klisjunum,
mýtunum, því fáránlega og
því frábærlega óvænta.
Er ég mamma mín?
Samstarfssýningin Er
ég mamma mín? verður
aftur sýnd í Borgarleikhúsinu
10. september, þar sem Krist-
björg Kjeld og Sólveig Guð-
mundsdóttir fara á kostum.
Þétting hryggðar
Nýtt verk verður frumsýnt í
Borgarleikhúsinu í septem-
ber. Verkið fjallar um fjóra
Reykvíkinga sem eru læstir
inni í fundarherbergi í Borgar-
túni af öryggisástæðum.
Þau deila um skipulagsmál,
Domino’s og hverjum sé
raunverulega hægt að kenna
um allt sem er að.
Kjarval
Fjölskyldusýningin Kjarval
verður frumsýnd í Borgar-
leikhúsinu í september. Hún
fjallar um myndlistarmann-
inn Jóhannes Kjarval, sem
batt bagga sína ekki sömu
hnútum og samferðamenn
en kenndi okkur að líta um-
hverfið nýjum augum og sjá
listina í hinu stórbrotna jafnt
sem hinu hversdagslega – í
hrikalegu hrauni en líka í
mygluðum flatkökum.
Ekkert er sorglegra en
manneskjan
Nú fer hver að verða síðastur
að sjá nýóperuna sem hlaut
Grímuverðlaun fyrir tónlist
og söngkonu ársins, en loka-
sýning verksins er á morgun
sunnudag í Tjarnarbíói.
Verkið fjallar um fálmkennda
leit mannsins að hamingj-
unni, þar sem fígúrur ráfa um
sviðið í leit að merkingu en
fátt virðist virka, enda mann-
eskjan breysk og gjarnan
ómeðvituð um hvað sé henni
fyrir bestu. Enda er ekkert
sorglegra en manneskjan.
VHS krefst virðingar
Fyrsta frumsýn ing leikársins
í Tjarnarbíói er í flutningi
grínkvartettsins VHS. Að sögn
meðlimanna hefur þeim ekki
verið sýnd tilhlýðileg virðing
á þessum miklu óvissu-
tímum, enda margoft gert að
breyta sýn ing aráætlunum og
sýna fyrir hálffullum húsum.
Nú sé komið nóg og krefst
hóp urinn virðingar, með
uppistandssýningu sem fara
mun í sögubækurnar.
Fimm ár
Þann 11. september verður
söngleikurinn Fimm ár
sýndur í Tjarnarbíói, en leik-
hús- og söngleikjaunnendur
ættu að kannast við verkið af
Broadway og West End, undir
heitinu The Last Five Years.
Fimm ár er hugljúf ástarsaga
sem fjallar um samband
ungrar konu og manns, hann
er rithöfundur og hún er leik-
kona.
Alla veðra von
Sirkushópurinn Hringleikur
snýr aftur í Tjarnarbíó um
miðjan mánuðinn með
sýningunni Allra veðra von,
sem gert hefur víðreist um
landið í sumar. Sýningin,
sem er nýsirkussýning, hlaut
Grímuverðlaun í ár fyrir dans-
og sviðshreyfingar ársins, en
í henni er sirkuslistin notuð
til að skoða tengsl mannsins
við veðrið.
Benedikt búálfur
Vinsæli fjölskyldusöng-
leikurinn snýr aftur í Sam-
komuhúsið á Akureyri nú um
helgina. Um er að ræða einn
allra þekktasta barnasöngleik
þjóðarinnar, en töfrandi saga
og grípandi tónlist Þorvaldar
Bjarna Þorvaldssonar hefur
unnið hug og hjörtu íslenskra
barna á öllum aldri.
Fullorðin
Gamanleikurinn Fullorðin
hefur snúið aftur í Hof, Akur-
eyri. Um er að ræða gaman-
leik um það skelfilega hlut-
skipti okkar allra að verða
fullorðin og misheppnaðar
tilraunir okkar til að sannfæra
aðra um að við séum það.
Rómeó og Júlía
Þetta klassíska verk í nýrri
útgáfu undir stjórn Þorleifs
Arnar Arnarssonar, verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
í kvöld. Þessi mikla örlaga-
saga birtist hér með glænýrri
tónlist og nýrri nálgun, sem
líkleg er til að höfða ekki síst
til ungs fólks.
Vertu úlfur
Sýning ársins á Grímuverð-
laununum 2021 snýr aftur, en
hún hreyfði svo sannarlega
við áhorfendum á síðasta
leikári og var sýnd yfir 50
sinnum fyrir fullu Þjóðleik-
húsi.
Nashyrningarnir
Verkið eftir Ionesco vakti
verðskuldaða athygli á
síðasta leikári og verður
boðið upp á nokkrar sýningar
í september í Þjóðleikhúsinu.
Kardemommubærinn
Hin ástsæla saga Thorbjörns
Egner sló í gegn á síðasta
leikári og geta enn fleiri börn
fengið að njóta nú, þegar það
lifnar aftur við á fjölum Þjóð-
leikhússins.
16 Helgin 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
4. september 2021 LAUGARDAGURHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ