Fréttablaðið - 04.09.2021, Side 21
Skil ekki að fólk nenni að skilja
Björk: Ég skil ekki fólk sem nennir
að skilja. Selma skilur ekki hvernig
ég hef nennt að hanga með sama
karlinum í hundrað ár og svo erum
við báðar að segja Sölku að það séu
mjög litlar líkur á því að hennar
hjónaband haldi.
Selma: Samk væmt Hagstofu
Íslands endar þriðja hvert hjóna
band í skilnaði svo það er ekkert
víst að hennar haldi.
Björk: Selma vill bara að hún
drífi í því að skilja á meðan ég segi
henni frekar að halda sig við gömlu
sófa klessuna.
Salka: Ég er bara föst á milli
tveggja elda.
Þær skella upp úr enda samtalið
auðvitað á gamansömu nótunum þó
svo að tölur Hagstofunnar séu ekki
upplognar.
Selma: Þó þetta sé það sem við
erum að ganga í gegnum þá er
margt af því sammannlegt.
Björk: Ég hef alla tíð verið
óhrædd við að heimfæra djóka upp
á sjálfa mig. Ég er ekkert að segja að
allt eigi við mig eða mitt hjónaband
en þetta er margt sem mín kynslóð
er að ganga í gegnum. Þá er gott að
heimfæra það upp á sjálfan sig, ýkja
svo hressilega og þá fer fólk kannski
að hlæja.
Salka: Það er líka þægilegt að
bresta í söng þegar maður á erfitt
með að tjá sig. Við stóðum hér
margoft við píanóið með Karli
Olgeirssyni og úr urðu heil sex lög.
Björk: Það er nú næstum því
söngleikur.
Hamingjupressan ógurlega
Talið berst aftur að hamingjupress-
unni sem rædd var stuttlega áður.
Björk: Ég er komin á þann aldur
að lífið er bara ekkert ógeðslega
skemmtilegt alltaf. Ég fór á eitthvert
núvitundarnámskeið þar sem ég
átti að liggja og slaka á og leiðbein
andinn sagði: „Rifjaðu nú upp þrjár
hamingjustundir yfir daginn.“ Og
ég bara: „Það er mánudagur!“ Eru
þrjár hamingjustundir yfir daginn
ekki dálítið mikið? Svo hugsaði
ég, Jú, Fréttablaðið kom í dag eftir
langa bið og það var hamingju
stund og svo mundi ég ekki eftir
f leiru. Við grínumst með þetta en
þetta er alls staðar svona.
Selma: Svo les maður fréttamiðla
og það er bara dauði og djöfull alls
staðar og maður lokaður inni. Svo
skoðar maður Instagram hjá fólki
sem er að gera miklu skemmtilegri
hluti.
Björk: Ég er nýbyrjuð á Insta
gram og skil alveg að ungt fólk sé
kvíðið. Þetta er rosa mikið að upp
fylla, þú ert kannski ekki orðinn
tvítugur og það eru allir að meika
það. Um leið og þú opnar símann
eru allir með stórkostlegt líf. Ég væri
svoleiðis hágrátandi heima hjá mér
ef ég væri unglingsstúlka.
Selma : Svo er það þessi læk
eltingaleikur. Ef þú ert ekki með
marga fylgjendur þá póstarðu ekki
neinu því þú vilt ekki fá bara fimm
tán læk á meðan vinur þinn fær 400.
Þetta er hræðilegt því þú ferð þá í
felur af lækhræðslu.
Björk: Má þetta ekki bara vera
eins og í gamla daga? Þegar fólk
talaði bara illa um mann þegar
maður heyrði ekki til? Nú er þetta
orðið opinbert og beint í andlitið á
manni.
Salka: Við erum líka af mismun
andi kynslóðum með þetta allt.
Ég er búin að læra inn á þetta, ég
unfoll owa og passa upp á algóritm
ann minn svo ég verði síður fyrir
slæmum áhrifum. En ég fæ vissan
kvíða yfir því að ala upp barn í
þessum aðstæðum. Ég skil leikregl
urnar núna en mun örugglega ekki
gera það eftir einhvern tíma. Við
lifum í svo hröðum heimi þar sem
allt er alltaf að breytast.
Yngri kynslóðir stokka upp
En ætli pressan sé almennt meiri á
konum í samfélaginu?
Salka: Mér finnst umræðan um
„mental load“ vera jákvæð, hún er
Ég er með ríðukvíða.
Það eru allir á Íslandi
að gera það svo mikið
og mér finnst við
hjónin bara ekki vera
að standa okkur nægi-
lega vel á því sviði.
Björk.
alveg ný. Mér finnst líka yngri kyn
slóðir vera að stokka svo rosalega
upp í hlutunum að ég er spennt
fyrir framtíðinni. Við getum ekki
sagt hvernig önnur kyn upplifa
hlutina en ég settist niður með
manninum mínum um daginn og
ræddum þetta mental load sem oft
vill lenda meira á konum.
Björk: Hvað er mental load?
Salka: Þetta er stundum líka
kallað þriðja vaktin. Þegar konan
kemur heim og veit hvað er til í
ísskápnum, hvað á að læra fyrir
morgundaginn, hvaða íþróttaföt
eru hrein og að það er afmæli á
föstudaginn. Ég stóð mig að því að
vera þreytt á að gera fullt af svona
litlum hlutum svo við hjónin sett
umst niður og ræddum þetta og
ætlum að passa upp á að deila
þessu. Um leið hugsaði ég bara til
mömmu og hugsaði: Fokk! Hvað
hún hafi þurft að fara í gegnum og
manni fannst það alltaf eðlilegt. Ég
er svo spennt að sjá hvert mín kyn
slóð og næstu eru að fara.
Ég er líka oft að útskýra hluti fyrir
Björk og Selmu, eins og að hán sé
kynsegin og svo framvegis.
Björk: Við tókum einmitt um
ræðuna um pólitískan rétttrúnað,
en ég er skíthrædd og þori varla að
umgangast ungt fólk lengur.
Salka: En það er einmitt svo fal
legt að hlusta. Þær hlusta og ég
hlusta. Þær hafa eitthvað að kenna
mér en ég hef líka margt að kenna
þeim. Það væri óskandi að við tækj
um það meira til okkar almennt.
Manni er alltaf kennt að bera virð
ingu fyrir þeim sem eldri eru og
að þeir eldri viti best en stundum
er líka allt í lagi að hlusta á þá sem
yngri eru.
Selma: Það er nauðsynlegt að
yngri kynslóðirnar hristi upp í
hlutunum.
Salka: Við lærum hver af annarri
og ég held að það sé markmiðið og
það er fallegt. n
Afsláttur í dag
Tilboðsbæklingurinn okkar er kominn út.
Hann er fullur af gæðatækjum á sérstöku tilboðsverði
sem gildir í september.
Í tilefni þess bjóðum við afslátt af öllum vörum
í dag, laugardaginn 4. september,
sem eru ekki nú þegar á tilboði.
Opið frá 11-16.
Afsláttarkóði í vefverslun: sminor
Athugið að þessi
kjör gilda aðeins um
heimilistækjahlutann í
vefversluninni.
Skoðaðu nýja
tilboðsbæklinginn
á síðunni okkar,
sminor.is!
Hjá okkur f
ærðu þýsk
u gæðatæ
kin frá
Siemens, B
osch og Ga
ggenau.
Stór og sm
á heimilist
æki, ljós, p
allahitarar,
rakatæki o
g fleira í m
iklu úrvali.
Margar vör
ur á sérstö
ku tilboðsv
erði sem g
ildir út
septembe
r 2021 eða
á meðan b
irgðir enda
st.
Tilboð í se
pt
em
be
r
Helgin 21LAUGARDAGUR 4. september 2021 FRÉTTABLAÐIÐ