Fréttablaðið - 04.09.2021, Side 23
Í bænum Torre
vieja er eiginleg
Íslendinga
nýlenda.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
og þegar ég horfi aftur á sjálfan mig
árið 2017, sé ég allt aðra manneskju.
Mér líður vel og starfsemin í ræðis
mannsskrifstofunni er traust.“
Börn í myrkrinu
Í störfum sínum hefur Manuel oft
haft milligöngu um að koma fólki
heim, bæði lifandi og látnu. Á Ali
cante sem ferðamannastað hefur
skapast mikil reynsla við að koma
látnu fólki til síns heima og ræðis
mannsskrifstofur hafa milligöngu
um það. Í sumum tilvikum þarf að
bera kennsl á látið fólk og hafa uppi
á nánustu ættingjum eða vinum
heima á Íslandi, sem er ekki endi
lega einfalt mál ef um er að ræða
einstæðinga.
Aðspurður segist Manuel oft
þurfa að tilkynna ættingjum um
andlát. „Trúðu mér. Það eru miklu
erfiðari hlutir sem við gerum en
það,“ segir hann.
Á svæðinu býr alls konar fólk, þar
á meðal fólk sem er í mikilli áfeng
is og eða fíkniefnaneyslu. Ekki er
langt síðan íslenskur karlmaður,
grunaður um barnaníð, var hand
tekinn í litlum bæ nálægt Alicante.
Berst talið að þeim hluta starfs
ins sem hefur fengið hvað mest á
Manuel. Að koma börnum úr erf
iðum aðstæðum, sumum sex eða
sjö ára gömlum. „Stundum höfum
við þurft að koma að börnum í mjög
slæmum aðstæðum. Þá störfum við
með félagsþjónustunni og lögregl
unni, bæði á Spáni og Íslandi, við
að koma þeim heim,“ segir Manuel
en börnum hefur til dæmis verið
komið heim til afa og ömmu sinnar
á Íslandi.
„Fólkið í félagsþjónustunni er
þjálfað í því að taka á svona málum
en ég er það ekki. Það er ákaflega
erfitt að sjá börn í þessum aðstæð
um,“ segir hann. Það venjist ekki
svo glatt. „Í þessu myrkri vill maður
gera allt sem maður getur til þess að
hjálpa þeim út.“
Samkvæmt Manuel hafa í þrjú
skipti komið upp mál þar sem virki
lega var óttast um heilsu barns.
Teyminu hefur hins vegar tekist að
leysa þau mál farsællega. „Endur
gjöfin í þessum málum hefur verið
ótrúleg og hvetur okkur til þess að
halda áfram,“ segir hann. „Ég mun
aldrei gleyma þessum börnum. Mig
langar oft til þess að taka upp tólið
og athuga hvernig þeim gengur og
hvernig þeim líður. Þessi mál snertu
mig djúpt.“
Stríðsástand
Víkur nú samtalinu að heims
faraldrinum og þeim áhrifum sem
hann hefur haft á Íslendingasam
félagið ytra. En ásamt Ítalíu var
Spánn það land sem lenti hvað verst
í faraldrinum vorið 2020 og algert
neyðarástand ríkti.
„Það ríkti stríðsástand. Ég á ekki
annað orð til að lýsa því,“ segir
Það ríkti
stríðs-
ástand.
Ég á ekki
annað orð
til að lýsa
því.
Manuel um þennan tíma þegar
faraldurinn var að hellast yfir Spán.
„Herinn og heimavarnarliðið tóku
völdin og nutu aðstoðar lögregl
unnar á staðnum. Það var sett á
strangara útgöngubann en í nokkru
öðru landi. Þú gast ekki keyrt frá
einum stað til annars nema hafa
mjög góða ástæðu og geta sannað
hana,“ segir hann.
Í mars var ákveðið að f lytja eins
marga Íslendinga heim og hægt var
og vann Manuel með sendiherr
anum Kristjáni Andra Stefánssyni,
staðsettum í París, að því. Utanrík
isráðuneytið tryggði auka flugferðir
til þess að koma sem flestum heim
á sem skemmtum tíma.
„Spítalarnir yfirfylltust og hættu
að geta tekið við fólki. Það voru
heldur ekki nógu margir sjúkra
bílar til þess að sækja fólk,“ segir
Manuel. „Margir Íslendingarnir
eru á áttræðis og níræðisaldri og
okkar hlutverk var að reyna að róa
þá niður.“
Skynjaði hann það vel að fólk var
hrætt og síminn hringdi stanslaust.
Skrifstofan hringi einnig í fólk til að
athuga með líðanina.
„Ég þakka guði fyrir það að við
höfum ekki misst neinn en það
hefði vel getað gerst,“ segir Manuel.
„Fólk sagði mér að það væri veikt
en enginn sjúkrabíll á leiðinni. Við
gátum ekki hjálpað því á neinn hátt
nema með því að tala við það.“
Í maímánuði og júní árið 2020
lagaðist ástandið töluvert á Spáni
og landið var opnað á ný. Annað
neyðarstig gilti frá nóvember fram
í maí á þessu ári.
„Ástandið hefur lagast mikið og
ekki hægt að bera það saman við
þessa hræðilegu mánuði í fyrra,“
segir Manuel. „Stundum birtast
fréttir um að faraldurinn sé á mik
illi uppleið og það hljómar eins og
fólk sé að deyja á götum úti. Ein
kona hringdi í mig frá Íslandi og
sagðist hafa hætt við að f ljúga til
Alicante eftir að hafa lesið slíka
frétt. En ástandið er gott hérna
núna og fólk er eins öruggt og hvar
annars staðar. Jú, það eru sumir á
spítala en heilbrigðiskerfið er ekki
í lamasessi.“
Fékk fálkaorðuna
Manuel dvelur nú hjá vinafólki sínu
í Garðinum. Í vikunni veitti Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
honum fálkaorðuna fyrir þjónustu
hans við íslenska samfélagið í Ali
cante og Murcia. Manuel segist bæði
þakklátur og hrærður en einnig svo
lítið feiminn með heiðurinn því að
margir aðrir starfi við það sama og
sinni sömu verkefnum og hann.
„Ég er ekki búinn til úr stáli.
Ég er bara manneskja og þetta er
mesti heiður sem mér hefur hlotn
ast,“ segir Manuel. „Ég er ákaflega
stoltur. En mér finnst Svanhvít
Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður
ræðisskrifstofanna í utanríkisráðu
neytinu, eiga hluta af þessu. Hún er
ótrúleg manneskja og fagmaður
fram í fingurgóma. Hún þjálfaði
mig vel í þetta hlutverk, hafði
mikla þolinmæði og hefur komið
að mörgum erfiðum málum með
mér. Að hafa hana sem bakhjarl er
eitt það besta sem hefur komið fyrir
mig.“
Trúir á íslensk fyrirtæki
Þó að þjónusta við Íslendinga á
erfiðum stundum sé það sem gefi
Manuel mest leggur hann einnig
mikið upp úr rótum ræðismanns
hlutverksins, það er að ef la við
skiptasambönd, enda menntaður til
þess. Ráðuneytið hvetur ræðismenn
sína einmitt til þess að beita sér á
þessu sviði sem Manuel segir gott.
„Það hefur lítið upp á sig að reyna
að koma íslenskum þorski á markað
í Alicante, það er ekki svæðið fyrir
hann eins og Barcelona og Bilbao
eru. En ýmis sprotafyrirtæki geta
átt sér framtíð á staðnum sé haldið
rétt á spöðunum,“ segir hann.
Manuel nefnir fyrirtækið Mulier
Fortis, sem stofnað var fyrir sex
árum, og framleiðir heilsu og
hreinlætisvörur undir vörumerk
inu Númer eitt. Þetta fyrirtæki
hefur stefnt á að hasla sér völl á
Spáni og leitaði til Manuels.
„Ég trúi því að þetta fyrirtæki
geti notið velgengni á svæðinu og
geri mitt til að reyna að koma því
á framfæri,“ segir Manuel. „Ég hvet
líka önnur lítil fyrirtæki og sprota
fyrirtæki til þess að koma yfir hafið
og reyna fyrir sér hérna. Internetið
er ágætt en ef maður vill koma vör
unni á markað jafnast ekkert á við
að mæta á staðinn.“ n
Helgin 23LAUGARDAGUR 4. september 2021 FRÉTTABLAÐIÐ