Fréttablaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 26
„Ég var mjög óörugg með mig
þegar ég var yngri. Það var ekki
fyrr en árið 2019 að ég ákvað fyrir
sjálfa mig að ég er nóg. Ég er falleg,
f lott og frábær, sama hvernig
líkami minn lítur út. Líkamar eru
eins ólíkir og þeir eru margir, og
við eigum að fagna þeim. Þeir hafa
það hlutverk að halda okkur á lífi
og hvernig er ekki hægt að elska
það, fagna því og sýna það? Ég er
eins og ég er og kem til dyranna
eins og ég er klædd; við erum öll
mennsk og ég hef ekki tíma í að
stressa mig yfir einhverju sem
skiptir jafnlitlu máli.“
Þetta segir Klara Sif Magnús
dóttir, 23 ára Akureyrarmær og
tekjuhæsti íslenski áhrifavaldur
inn, samkvæmt nýjum tekju
blöðum DV og Frjálsrar verslunar;
með 1,1 milljón á mánuði.
Tekjurnar fær hún fyrir að selja
áskrifendum aðgang að erótísku
efni á vefsíðunni OnlyFans.
„Er ég klámstjarna? Ég bý til
„klám“ svo þannig séð er hægt að
segja að ég sé klámstjarna, en ég lít
ekki á sjálfa mig sem klámstjörnu.
Ég er bara ung kona að búa til eró
tískt efni. Klámstjörnur eru yfir
leitt vel þekkt fólk sem vinnur fyrir
klámiðnaðinn. Ég vinn fyrir sjálfa
mig. Sá er munurinn,“ útskýrir
Klara Sif.
Fer sínar eigin leiðir
Klara Sif ólst upp í Árbænum
þangað til hún flutti norður yfir
heiðar, þá níu ára.
„Ég hef alltaf verið rosalega sjálf
stæð. Ég er miðjubarn og fannst
ég ung þurfa að hugsa um sjálfa
mig. Mamma getur vottað að ég
hef alltaf verið frekar uppreisnar
gjörn og farið mínar leiðir. Ég get af
öryggi sagt að ég verði alltaf þann
ig,“ lýsir Klara sjálfri sér.
Hún var óráðin um nám og
framtíðarstörf í uppvextinum.
„Á tímabili langaði mig að verða
sálfræðingur eða kennari, en þegar
ég óx meira úr grasi þótti mér
slíkar hugmyndir um framtíðina
fremur óspennandi,“ segir Klara Sif
af hreinskilni.
Hún þarf ekki að stunda hefð
bundna atvinnu frekar en hún vill
sökum þess hve hún gerir það gott
á OnlyFans.
„Ég gæti léttilega lifað á Only
Fans einu og sér, en ég kýs að gera
það ekki. Ég vinn á veitingastað
hér á Akureyri og geri það aðallega
fyrir félagsskapinn. Ég elska fólkið
sem ég vinn með, þau eru frábær
hvert og eitt, og við erum eins og
lítil fjölskylda.“
Nýtur stuðnings kærastans
Klara Sif hefur sýnt ráðdeild eftir
að hagur hennar vænkaðist með æ
fleiri áskrifendum á OnlyFans.
„Frá upphafi hef ég lagt peninga
til hliðar til að borga skatt. Fyrst
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Klara Sif segist
ung kona sem
býr til erótískt
efni í vinnu fyrir
sjálfa sig. Stór
munur sé á því
og að vinna fyrir
klámiðnaðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
eyddi ég alveg slatta. Ég var spennt
yfir nýfengnu fé og það var óraun
verulegt að vera allt í einu komin
með svona mikinn pening á milli
handanna. Í dag er ég orðin spar
samari og ætla að nota tekjurnar
til að flytja til útlanda,“ segir Klara
Sif, sem á kærasta sem býr í Lund
únum á Englandi.
„Kærastinn er fullur stuðnings
og ég er mjög heppin með hann.
Ég ætlaði mér ekkert í samband og
var búin að sætta mig við að vera
á lausu, en eins og langflestir vita
birtist ástin yfirleitt þegar maður
vill ekkert með hana hafa,“ segir
Klara Sif, sæl og ástfangin.
„Ég vil bara eitt í framtíðinni,
það er að vera hamingjusöm. Ég er
ekki með eitthvert svaka master
plan yfir það sem ég vil fá út úr líf
inu, annað en að vera sátt við sjálfa
mig og mína nánustu. Hamingjan
fyrir mínum hugskotssjónum er
einmitt ég og fólkið sem ég elska,
saman á fagurri eyju að njóta sam
verunnar og lifa lífinu.“
Elskar þetta starf
Sem stendur er Klara Sif með um
600 áskrifendur á OnlyFans.
„Í hreinskilni veit ég ekki af
hverju vinsældir mínar stafa, en
vilji maður halda í áskrifendahóp
sinn þarf að sinna þessu af heilum
hug. OnlyFans er alls ekki auð
fengið fé, þrátt fyrir að vinnan sé
spennandi og skemmtileg,“ segir
Klara, sem setur inn nýtt efni í
hverri viku en líka ljósmyndir og
styttri myndbönd á hverjum degi.
„Efni mitt á OnlyFans er allt
frá undirfatamyndum og mynd
böndum, nektarmyndum og
nektarmyndböndum. Ég tek upp
myndbönd af sjálfri mér með
kynlífstæki og einstaka sinnum
er ég með einhverjum öðrum og
tek okkur upp að stunda kynlíf,“
greinir Klara Sif frá.
„Ég geri þetta því það hentar
mér. Mér finnst þetta skemmti
legt starf og það er svo gott að geta
unnið á sínum eigin forsendum. Ég
elska þetta starf þótt það geti verið
mjög krefjandi á sama tíma,“ segir
Klara Sif og óttast ekki áhrif gjörða
sinna á OnlyFans í framtíðinni.
„Mín kynslóð er opnari, skiln
ingsríkari og umburðarlyndari
fyrir málaflokknum kynlífi en
eldri kynslóðirnar, kannski vegna
þess að það er búið að normalísera
þessa hluti meira á undanförnum
árum. Mér finnst það geggjað.
Þetta á ekki að vera feimnismál.
Við erum öll okkar eigin mann
eskjur og eigum að fá að lifa á
okkar eigin forsendum, svo lengi
sem við særum ekki aðra. Þegar ég
byrjaði á OnlyFans hugsaði ég vita
skuld út í alla möguleika á hvað
gæti gerst; hvaða áhrif þetta hefði
á framtíð mína, en ég er hvergi
smeyk, enda tók ég þessa ákvörðun
sjálf og mun alltaf þurfa að lifa
með það.“
Hættulegur klámiðnaður
Klara Sif er meðvituð um gagn
rýnisraddir þeirra sem segja klám
vera of beldi og sölu á líkama
kvenna.
„Klámiðnaðurinn getur verið
mjög hættulegur konum og það
er mikið um mansal og nauðg
anir á vettvangi klámiðnaðarins
og klámsíðna, eins og PornHub.
Því hvet ég alla til að kaupa klám
frá fólki eins og mér, í stað þess
að styðja frítt klám og í leiðinni
mansal, nauðganir og misnotkun
á stelpum undir lögaldri. Það er
mjög mikilvægt að vita hvaðan
klám kemur. Sjálf er ég mjög
gagnrýnin þegar kemur að
þessum hlutum og veit vel að betri
kosturinn er alltaf að styðja kyn
lífsverkafólk eins og mig,“ segir
Klara Sif ákveðin.
Á OnlyFans hefur hún lent í
slæmum samskiptum.
„En það er ekkert sem situr í
mér. Ég bjóst alveg við því að þar
yrðu ekki allir næs eða skilnings
ríkir. Ég hef lent bæði í græðgi og
dónaskap, en þegar slíkt gerist loka
ég einfaldlega á viðkomandi. Ég fæ
langoftast fyrirspurnir um kynlífs
myndbönd og það er ekkert mál
fyrir mig að verða við því, en sé ég
beðin um að gera eitthvað sem ég
kæri mig ekki um, þá einfaldlega
geri ég það ekki.“
Vill styrkja sjálfsmynd stelpna
Helstu fylgjendur Klöru Sifjar á
samfélagsmiðlum eru yngri stelpur
og konur á hennar aldri.
„Á OnlyFans eru það yfirleitt
karlmenn. Hversu gamlir þeir eru
get ég ekki sagt til um, þar sem
langflestir eru þar undir fölsku
nafni og engri mynd. Samt sem
áður veit ég að margir eru á mínum
aldri og eldri. Ég tek eftir því að
fólk horfir á mig en hugsa lítið út
í hvort það gæti verið áskrifandi
eða frá OnlyFans. Ég fæ hins vegar
skilaboð þess efnis að menn þekki
mig en vilji ekki gefa nánari deili á
sér. Það getur verið smá óþægilegt,
en eins lengi og ég fæ greitt fyrir
mína vinnu er mér slétt sama hver
kaupir efnið mitt,“ segir Klara Sif,
alveg slök.
„Á samfélagsmiðlum langar mig
að ná til stelpna og kvenna sem
fylgja mér. Unglingar þurfa að díla
við ýmsa standarda í dag, sérstak
lega líkamsímyndina og ég vil láta
þær vita að þær séu fallegar eins og
þær eru. Við erum allar systur og
verðum að standa saman í gegnum
allt. Ég vil að þær viti að þær eru
sterkar og geti allt sem þær langar
að gera, sama hvað öðrum finnst.
Fólk mun alltaf hafa skoðun á því
hvað maður gerir, en ef við veltum
okkur endalaust upp úr áliti
annarra munum við aldrei verða
hamingjusöm.“
Ber höfuðið hátt
Í litlum bæ sem Akureyri þekkja
margir mann og annan, en Klara
segist lítið finna fyrir því að fólk
horfi á hana á götum úti.
„Það talar enginn um þetta við
mig upp úr þurru, nema nánustu
vinir og fjölskylda og þar eru allir
fullir stuðnings. Ég er svo heppin
með fólkið mitt. Mamma og
maðurinn hennar djóka aðallega
um að vera umboðsmennirnir
mínir, og pabbi og konan hans eru
stolt af mér og því hver ég er, sem
ung kona í dag. Ég verð ævinlega
þakklát fyrir vini mína og ætt
ingja,“ segir Klara Sif, sátt í sál og
sinni.
„Mér finnst ekkert óþægilegt að
vera þekkt fyrir þetta. Ég er þvert
á móti mjög stolt af sjálfri mér og
finnst ég standa mig vel í lífinu.
Það sem fólk segir um mig, eða
finnst um mig, kemur mér ekki við
og hefur ekkert með mig að gera.
Ég ber höfuðið hátt og geri allt með
stolti og af sjálfsöryggi. Það er allt
sem ég þarf.“
Ætlar að njóta hverrar mínútu
Þegar Klara Sif er ekki að vinna
nýtur hún þess að vera ein heima,
eða hún fer og ver tíma með fjöl
skyldu og vinum.
„Ég er afar heimakær og elska
ekkert meira en að liggja uppi í
sófa með kisunum mínum, með
gott snarl og horfa á Netflix eða
vel valda bíómynd,“ segir hæst
launaða OnlyFanskona landsins.
„Að vera áberandi á sam
félagsmiðlum snýst auðvitað um
einhvers konar athyglisþrá. Ekki
alltaf á slæman hátt, en það getur
skaðað fólk andlega að nota þessa
miðla á rangan hátt. Ég játa fúslega
að vilja athygli, en allt sem ég set á
mína miðla geri ég fyrir sjálfa mig
og engan annan. Ég hugsa ekki um
viðurkenningu annarra þar sem ég
viðurkenni sjálfa mig alveg nógu
vel,“ segir Klara Sif, staðráðin í að
halda áfram á OnlyFans.
„Lífið er rússíbani svo allt getur
gerst, en eins og staðan er núna
mun ég halda mínu striki og njóta
hverrar sekúndu af því.“
Fylgstu með Klöru Sif á Insta
gram. Aðgangurinn hennar þar
heitir Klarasif. n
Ég veit
að betri
kosturinn
er alltaf að
styðja við
kynlífs-
verkafólk
eins og
mig.
2 kynningarblað A L LT 4. september 2021 LAUGARDAGUR