Fréttablaðið - 04.09.2021, Side 28
Hlaupin hafa gefið
mér svo mikið og
verið í raun ómissandi
þáttur í lífi mínu síðan ég
hóf að hlaupa.
Ingunn Sighvatsdóttir.
Berlín er nánast fullkomin
hlaupaborg, að sögn Ingunn-
ar Sighvatsdóttur sem hefur
búið þar síðan 2011. Hlaup
eru hennar helsta áhugamál
en borgin býður upp á ótal
skemmtilegar hlaupaleiðir.
starri@frettabladid.is
Ingunn Sighvatsdóttir hóf að
hlaupa eftir kúm og kindum í
sveitinni heima í Biskupstungum,
en hefur undanfarin ár hlaupið um
stræti og garða Berlínarborgar í
Þýskalandi þar sem hún hefur búið
síðan 2011 ásamt fjölskyldu sinni.
Hún tók fram hlaupaskóna árið
2012 og hefur síðan þá tekið þátt
í nokkrum maraþonhlaupum og
styttri hlaupum í borginni og víðar.
Hlaupin eru fyrir löngu orðin að
lífsstíl hjá henni og eru að hennar
sögn ómissandi mótvægi við annan
eril í lífinu, auk þess að vera besta
og ódýrasta sjúkratrygging sem
hægt er að hugsa sér.
Hún segir Berlín vera nánast full-
komna hlaupaborg. „Hér eru götur
og gangstéttir breiðar, umferðin er
viðráðanleg og mikið af görðum,
skógum og síkjum sem hægt er að
hlaupa í og með fram, jafnvel í mið-
borginni. Möguleikarnir eru ótelj-
andi og því auðvelt að hafa mikla
fjölbreytni í hlaupunum. Áður en
ég flutti hingað bjó ég á Ítalíu og
segja má að tilraunir mínar til að
hefja hlaup þar hafi alltaf endað illa
sökum hita, mikillar umferðar og
þröngra gangstétta.“
Frábær borg
Eftir að hafa stundað söngnám
og lokið námi í þýsku við Háskóla
Íslands flutti hún til Þýskalands
árið 1992. Eftir nokkur ár í Ham-
borg og München færði hún sig um
set til Ítalíu þar sem hún kynntist
manninum sínum, en saman eiga
þau tvö börn.
„Ég hef alla tíð unnið í heimi
klassískrar tónlistar og 2011
fluttum við til Þýskalands, þar sem
ég hef unnið síðustu tíu árin sem
umboðsmaður óperusöngvara,
hljómsveitarstjóra og leikstjóra
hér í Berlín. Ég kann mjög vel við
mig í Berlín því borgin hefur allt
það sem stórborg býður upp á, en
er um leið líka mjög græn og róleg
í samanburði við aðrar evrópskar
stórborgir. Borgin býður líka upp
á mikla möguleika varðandi úti-
vist, en hér eru skógar og mörg
vötn, bæði í borginni sjálfri og í
nágrenni hennar.“
Margar skemmtilegar
hlaupaleiðir
Það var árið 2012, eða 20 vinnuár-
um og tveimur börnum síðar, eins
og hún orðar það, sem hún byrjaði
að hlaupa. „Ég rakst á innlegg á
Facebook-grúppunni „Íslend-
ingar í Berlín“ þar sem nokkrar
íslenskar stelpur voru að setja á fót
hlaupahóp og skráði mig til leiks.
Keppnisskapið vaknaði aftur til
lífsins og skömmu síðar skráði ég
mig í fyrsta 10 km hlaupið.
Næst var það fyrsta hálfmara-
þonið og árið 2014 vann ég í
Ómissandi mótvægi við eril lífsins
Fjölskyldan saman á góðri stundu í sumarfríi á Ítalíu í sumar. Frá vinstri eru
Nora Líf, Natan Arnór, Cosimo og Ingunn.
Ingunn Sighvatsdóttir, fyrir miðri mynd, tók þátt í maraþonhlaupi í Berlín síðasta vor. MYNDIR/AÐSENDAR
Þreföld virkni
Firming línan frá Lavera er með þrefalda virkni
af Hyaluronic sýrum sem binda mikinn raka í
húðinni ásamt því að stinna hana. Húðin mýkist
og fær fallegan ljóma. Firming línan stuðlar
að heilbrigðri húð og minnkar myndun fínna lína.
Vegan vottuð.
100 % certified natural
personal care
lotteríinu og fékk pláss í Berlínar-
maraþoninu. Á sama tíma byrjaði
ég að hlaupa með hlaupahópi hjá
íþróttafélaginu SCC, sem meðal
annars skipuleggur Berlínar-
maraþonið og fleiri hlaup í Berlín.
Það er mjög mikið úrval af
skemmtilegum hlaupaleiðum í
Berlín og lítið mál að velja nýja
leið á hverjum degi,“ segir Ingunn.
„Ég bý rétt hjá Teltow síkinu og
hleyp oft með fram því, stundum
snemma morguns fyrir vinnu.
Hlaupahópurinn minn hleypur
alltaf í Grunewald, sem er stór
skógur í útjaðri borgarinnar sem
inniheldur nokkur stöðuvötn.
Auk þess notum við hlaupabraut
í Mommsenstadium fyrir „inter-
val“-hlaup einu sinni i viku. Þar
sem ég vinn í miðborginni, nálægt
Brandenborgarhliðinu, hleyp ég
borgarhlaup einu sinni í viku með
vinkonum mínum eftir vinnu.
Það er sérstaklega skemmtilegt að
hlaupa í miðborginni yfir veturinn
þegar borgin er ljósum prýdd á
kvöldin.“
Covid sett strik í reikninginn
Frá því Ingunn hóf að hlaupa árið
2012 hefur hún tekið þátt í fjölda
hlaupa í borginni og meðal annars
hlaupið tvisvar í Berlínar-mara-
þoninu.
„Í Berlín eru tvö öflug félög sem
skipuleggja mörg hlaup í borginni,
SCC og Berlin läuft. Ég er með
öruggt pláss í öllum hlaupum
sem SCC skipuleggur, en það er
innifalið í árgjaldinu. Auk þess
hef ég líka hlaupið flest hlaupin
sem Berlin läuft skipuleggur.
Covid hefur náttúrulega sett stórt
strik í reikninginn hvað varðar
skipulögð hlaup síðastliðið ár og
nánast öllum hlaupum verið aflýst.
Hlaupahópurinn minn hefur þó
verið duglegur að hlaupa, hvort
sem við hlaupum ein eða saman
eftir æfingaplani.
Svo skráði ég mig í lok síðasta
árs í Abbott Global Run Club sem
er hlaupaklúbbur á netinu. Boðið
er upp á ýmis hlaup, stutt og löng,
sem þátttakendur skrá sig í. Ég
hljóp til dæmis maraþonhlaup 1.
maí og þá færðist tíminn af úrinu
inn á síðu klúbbsins. Fólk hljóp um
allan heim maraþonhlaup þennan
dag, en sigurvegarinn hljóp í
Kanada.“
Stefnir á sex stóru
Ýmis skemmtileg hlaup eru fyrir-
huguð í haust og í vetur. „Næst á
dagskrá er Berlínar-maraþonið
26. september og svo átti ég alltaf
pláss í Tókýó-maraþonhlaupinu
2020 sem búið er að fresta til ársins
2022.
Annars hef ég sett mér það
langtímamarkmið að hlaupa öll
sex Abbott hlaupin, en það eru
maraþonhlaup sem eru haldin í
Berlín, Tókýó, Boston, New York,
London og Chicago. Ég hef lokið
Berlín, New York og Chicago og
ef ég næ Tókýó á næsta ári þarf
bara að klára Boston og London.
Við sjáum til hvort það gangi upp.
En hvort sem það tekst eða ekki
þá er aðalatriðið að hlaupin hafa
gefið mér svo mikið og verið í raun
ómissandi þáttur í lífi mínu síðan
ég hóf að hlaupa.“ n
4 kynningarblað A L LT 4. september 2021 LAUGARDAGUR