Fréttablaðið - 04.09.2021, Page 31
Fjarskiptastofa er eftirlitsstofnun á fjarskipta
markaði. Er stofnuninni m.a. ætlað það hlutverk
að vinna gegn röskun eða takmörkunum á
samkeppni á fjarskiptamarkaði. Stofnunin
vinnur að framgangi þessara verkefna m.a. á
grundvelli markaðsgreininga þar sem fer fram
samkeppnislegt og viðskipta og hagfræðilegt
mat á markaðsaðstæðum í fjarskiptum og
líklega þróun á aðstæðum á þeim markaði til
næstu framtíðar.
Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur
sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis.
Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starfsmenn
fái tækifæri til að sinna áhugaverðum
verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi
milli vinnu og einkalífs.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).
Hagfræðingur
Fjarskiptastofa leitar að öflugum hagfræðingi til starfa á stjórnsýslusviði. Um er að ræða nýtt starf
tengt eftirliti með fjarskiptamarkaði og fær viðkomandi aðili tækifæri til að móta og þróa starfið.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi hagfræðingur mun í starfi sínu
jafnframt vinna náið með sérfræðingum á öðrum sviðum stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum.
• Frumkvæði að gerð sjálfstæðra úttekta um hagfræðileg málefni.
• Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla.
• Miðlun hagfræðilegrar þekkingar við rannsókn mála.
• Samskipti við hagaðila.
• Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði er skilyrði.
• Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga.
• Þekking á atvinnuvegahagfræði er kostur.
• Reynsla af greiningarvinnu og samkeppnismálum er kostur.
• Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að leiða mál til lykta.
• Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegri samvinnu.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og rituðu máli. Þekking á einu Norðurlandamáli kostur.
Um er að ræða nýtt starf á stjórnsýslusviði stofnunarinnar og er starfshlutfall 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Fjarskiptastofa hvetur áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi
í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema
umsækjandi ákveði umsókninni skemmri
gildistíma.
Gildi-lífeyrissjóður er þriðji stærsti lífeyrissjóður
landsins með um 26 þúsund lífeyrisþega,
52 þúsund greiðandi sjóðfélaga og yfir 246
þúsund einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum.
Eignir sjóðsins um síðustu áramót námu um
764 milljörðum króna. Sjóðurinn rekur bæði
samtryggingardeild og séreignardeild. Hjá
sjóðnum starfa 40 starfsmenn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Gildi-lífeyrissjóður leitar eftir sérfræðingi til starfa í eignastýringu sjóðsins. Leitað er að
metnaðarfullum einstaklingi með reynslu á fjármálamarkaði. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri
greiningarhæfni, metnaði og vilja til að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni. Næsti yfirmaður
er forstöðumaður eignastýringar.
Starfssvið:
• Uppbygging og utanumhald eignasafna sjóðsins.
• Greining markaða og fjárfestingakosta innanlands sem utan.
• Arðsemis- og áhættumat.
• Fjárfestingar og eftirfylgni þeirra.
• Upplýsinga- og skýrslugjöf.
• Samskipti við innlenda og erlenda aðila á fjármálamarkaði.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði.
• Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur.
• Góð greiningarhæfni og geta til að setja fram niðurstöður með skipulögðum hætti
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi.
• Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Gildi hefur sett sér stefnu í starfsmanna- og jafnlaunamálum og hefur hlotið jafnlaunavottun.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Eignastýring
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna dóttir
(audur@vinnvinn.is) og Hilmar G. Hjaltason
(hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.