Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 31

Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 31
Fjarskiptastofa er eftirlitsstofnun á fjarskipta­ markaði. Er stofnuninni m.a. ætlað það hlutverk að vinna gegn röskun eða takmörkunum á samkeppni á fjarskiptamarkaði. Stofnunin vinnur að framgangi þessara verkefna m.a. á grundvelli markaðsgreininga þar sem fer fram samkeppnislegt og viðskipta­ og hagfræðilegt mat á markaðsaðstæðum í fjarskiptum og líklega þróun á aðstæðum á þeim markaði til næstu framtíðar. Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis. Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starfsmenn fái tækifæri til að sinna áhugaverðum verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is). Hagfræðingur Fjarskiptastofa leitar að öflugum hagfræðingi til starfa á stjórnsýslusviði. Um er að ræða nýtt starf tengt eftirliti með fjarskiptamarkaði og fær viðkomandi aðili tækifæri til að móta og þróa starfið. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi hagfræðingur mun í starfi sínu jafnframt vinna náið með sérfræðingum á öðrum sviðum stofnunarinnar. Helstu verkefni og ábyrgð: • Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum. • Frumkvæði að gerð sjálfstæðra úttekta um hagfræðileg málefni. • Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla. • Miðlun hagfræðilegrar þekkingar við rannsókn mála. • Samskipti við hagaðila. • Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Meistarapróf í hagfræði er skilyrði. • Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga. • Þekking á atvinnuvegahagfræði er kostur. • Reynsla af greiningarvinnu og samkeppnismálum er kostur. • Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að leiða mál til lykta. • Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna. • Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegri samvinnu. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og rituðu máli. Þekking á einu Norðurlandamáli kostur. Um er að ræða nýtt starf á stjórnsýslusviði stofnunarinnar og er starfshlutfall 100%. Umsóknarfrestur er til og með 1. september nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is. Fjarskiptastofa hvetur áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. Gildi-lífeyrissjóður er þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins með um 26 þúsund lífeyrisþega, 52 þúsund greiðandi sjóðfélaga og yfir 246 þúsund einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum. Eignir sjóðsins um síðustu áramót námu um 764 milljörðum króna. Sjóðurinn rekur bæði samtryggingardeild og séreignardeild. Hjá sjóðnum starfa 40 starfsmenn. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Gildi-lífeyrissjóður leitar eftir sérfræðingi til starfa í eignastýringu sjóðsins. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi með reynslu á fjármálamarkaði. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri greiningarhæfni, metnaði og vilja til að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni. Næsti yfirmaður er forstöðumaður eignastýringar. Starfssvið: • Uppbygging og utanumhald eignasafna sjóðsins. • Greining markaða og fjárfestingakosta innanlands sem utan. • Arðsemis- og áhættumat. • Fjárfestingar og eftirfylgni þeirra. • Upplýsinga- og skýrslugjöf. • Samskipti við innlenda og erlenda aðila á fjármálamarkaði. • Önnur tilfallandi verkefni. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærileg menntun. • Reynsla af störfum á fjármálamarkaði. • Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur. • Góð greiningarhæfni og geta til að setja fram niðurstöður með skipulögðum hætti • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð. • Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi. • Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Gildi hefur sett sér stefnu í starfsmanna- og jafnlaunamálum og hefur hlotið jafnlaunavottun. Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is. Eignastýring Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna dóttir (audur@vinnvinn.is) og Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.