Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 35
Sækið um og finnið nánari upplýsingar á starf.or.is.
Umsóknarfrestur er 30. september 2021.
Fjármálasérfræðingur
rannsóknarverkefna
Sérfræðingur í
rannsóknarverkefnum
Hefur þú alla þræði í hendi þér?
Við leitum að fjármálasérfræðingi til að skipuleggja og
bera ábyrgð á fjárhagslegu utanumhaldi rannsóknar-
verkefna. Starfið felur í sér mikil samskipti við
styrkveitendur og samstarfsaðila innanlands sem utan,
uppgjör verkefna, þróun og mótun ferla, og
upplýsingamiðlun.
Hefur þú brennandi áhuga á nýsköpun í auðlinda-
nýtingu, orku- og veitumálum?
Við leitum að sérfræðingi til að stýra og taka þátt
í nýsköpunarverkefnum. Þetta er skapandi vinna,
þvert á fyrirtæki OR samstæðunnar, við að koma
auga á tækifæri og breyta þeim í verðmæti.
Taktu þátt í að
skapa sjálfbæra
framtíð
Nýsköpun í orku- og veitumálum er lykill
að sjálfbærri framtíð. OR er í fararbroddi í
sjálfbærri nýtingu auðlinda. Við viljum vera
þar áfram og óskum eftir lausnamiðuðu
fólki í skapandi og sterkt teymi.
Sækið um og finnið nánari upplýsingar á starf.or.is.
Umsóknarfrestur er 30. september 2021.
Yfirverkefnastjóri Coda
Viltu leiða stóraukna
kolefnisförgun á heimsvísu?
Verkefnastjóri kolefnisförgunarverkefna
Coda, móttöku- og förgunarstöð fyrir CO2, leggur
grunninn að nýrri loftslagsvænni atvinnugrein en þar
mun Carbfix-tækninni verða beitt til að farga CO2 á
stærri skala en áður.
Við leitum að drífandi og reynslumiklum leiðtoga til að
hafa yfirumsjón með uppbyggingu stöðvarinnar, m.a.
hvað varðar leyfisferla, undirbúning og hönnun,
framkvæmdir, alþjóðleg viðskiptasambönd,
fjármögnun, o.fl.
Verkefnastjóri þarf að hafa góða yfirsýn og ástríðu fyrir
lausn loftslagsvandans. Hlutverk hans er að leiða
frumkvöðlaverkefni á sviði kolefnisförgunar frá
undirbúningsstigum, gegnum hönnun og framkvæmd,
gera kostnaðaráætlanir og verksamninga, sjá um
samskipti við hagsmunaaðila, o.fl.
Carbfix leitar að metnaðarfullu fólki sem vill leggja sitt af
mörkum í loftslagsbaráttunni og stórauka kolefnisförgun
á heimsvísu.