Fréttablaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 66
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Í dag telur söfnuður Fríkirkjunnar um ellefu þúsund meðlimi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fríkirkjan í Reykjavík hefur vaxið
hratt á undanförnum árum og er
loksins orðið tímabært að prestar
kirkjunnar verði fleiri en einn.
arnartomas@frettabladid.is
Fríkirkjan í Reykjavík stendur frammi
fyrir tímamótum á sunnudaginn 5. sept-
ember, þegar dr. Sigurvin Lárus Jónsson
verður settur prestur við kirkjuna. Það
verður í fyrsta skipti í sögu Fríkirkjunnar
þar sem prestar hennar verða fleiri en
einn í fullu starfi, en kirkjan hefur vaxið
mikið síðan Sr. Hjörtur Magni Jóhanns-
son tók við fyrir 23 árum síðan.
„Við vorum tæplega fimm þúsund
þegar ég tók við en í dag telur söfnuður-
inn um 11 þúsund, svo við hljótum að
vera að gera eitthvað rétt,“ segir Hjörtur.
„Þessi ráðning á að fela í sér aukna þjón-
ustu, sem veitir ekki af, því það er mikið
leitað til okkar bæði í gleði og sorg.“
Hjörtur telur að vinsældir Fríkirkj-
unnar megi meðal annars rekja til
þeirrar víðu sýnar sem hún leitast við
að temja sér. „Við leggjum áherslu á víð-
sýni, umburðarlyndi og frjálslyndi, og
leggjum mikla áherslu á að mannrétt-
indi séu ofar trúarlegum kreddum,“ segir
hann. „Kristur sjálfur setti manngildið
ofar trúarstofnunum og trúarboðum
lögmálshyggju, hvað þá bókstafshyggju.“
Þar að auki segir Hjörtur að tilraunir
í messuhaldi laði einnig fólk að. „Við
bjóðum til að mynda upp á djasstónlist í
messunum okkar, sem hefur vakið mikla
lukku. Tónlistin er einn af okkar styrk-
leikum.“
Frelsi frá veraldlegu valdi
Þá segir Hjörtur að merk saga Fríkirkj-
unnar hafi ekki fengið að njóta sín sem
skyldi. „Við höfum starfað á þremur
öldum og það vita það kannski ekki allir,
en Fríkirkjan var hluti af sjálfstæðis-
baráttu Íslendinga,“ segir hann. „Að
við fengum sjálfstæði, ekki bara trúar-
legt, heldur frelsi undan öllu veraldlegu
auðvaldi. Trúfélög eiga ekki að vera háð
ríkisvaldi, hvorki dönsku né íslensku,
lýðræði og jafnræði á að ríkja.“
Aðspurður um hvernig það hafi verið
að sinna jafnstórum söfnuði einn, segir
Hjörtur: „Ef við myndum miða út frá
þjóðkirkjunni eða eitthvað slíkt, ættu
líklega að vera hérna allavega þrjú stöðu-
gildi, en við greiðum sjálf laun okkar
presta, ólíkt því sem er í söfnuðum þjóð-
kirkjunnar “ segir hann. „Álagið er búið
að vera mikið í gegnum árin, svo það
er kærkomið að fá jafnhæfan og færan
mann og Sigurvin er. Hann er einn af
okkar færustu guðfræðingum, bæði
hámenntaður og snillingur í mann-
legum samskiptum.“
Trúverðugt trúfélag
Sigurvin hefur sjálfur starfað við Frí-
kirkjuna í Hafnarfirði undanfarin tvö ár,
auk þess sem hann er með kennslustöðu í
Þýskalandi, þar sem hann sinnir kennslu
í nýja-testamentisfræðum. Hann tekur
undir með Hirti um hve mikilvæg víðsýni
Fríkirkjunnar sé velgengni hennar.
„Fríkirkjan er trúverðugt trúfélag.
Þetta er lítil kirkja með látlausa umgjörð
en skýra sýn,“ segir hann. „Í mínum huga
er engin tilviljun að það höfði til fólks að
hún sé látlaus og gagnsæ. Síðan er hug-
sjón kirkjunnar ótrúlega nútímaleg, eins
og ég mun fara yfir í prédikun minni á
sunnudaginn. Kirkjan hefur verið áber-
andi í umræðunni um trúfrelsi, lýðræði,
kynjajafnrétti og hugmyndinni um jafn-
ræði stétta.“
Sigurvin segir að ofangreind stef rími
mjög vel við upphaf 21. aldarinnar. „Fólk
hefur verið að kalla eftir trúverðugri
kirkju og Fríkirkjan hefur mætt þeirri
þörf á undanförnum árum,“ segir hann.
„Það hefur birst með afgerandi hætti,
til dæmis í afstöðunni í garð mann-
réttindabaráttu hinsegin fólks. Það er
engin spurning í mínum huga að hluti af
aðdráttarafli Fríkirkjunnar sé afgerandi
afstaða Fríkirkjunnar með mannrétt-
indum og kærleikanum.“
Einn af þeim hlutum sem Sigurvin
mun fjalla um í predikun sinni á sunnu-
dag er aukin fjölmenning sem hluti af
raunveruleika okkar. „Aukin fjölmenning
kallar á aukið menningarlæsi og aukið
umburðarlyndi,“ segir hann. „Fríkirkjan
hefur sýnt í verki að hún er tilbúin að
vinna í samstarfi með öðrum trúfélög-
um og trúarbrögðum og umburðarlyndi
gagnvart öðrum lífsskoðunum eins og
húmanisma. Eitt mest afgerandi verkefni
21. aldarinnar er að snúa ekki til baka í
það samfélag að allir hugsi eins, heldur
einblína frekar á það sem sameinar okkur
en það sem sundrar okkur.“ ■
Fríkirkjan í Reykjavík
fær kærkominn liðsauka
Þetta er lítil kirkja með
látlausa umgjörð en skýra
sýn.
Sigurvin Lárus Jónsson.
1882 New York er raflýst, fyrst allra borga í heiminum,
að tilstuðlan uppfinningamannsins Edisons.
1943 Íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness kemur út.
1949 Kirkja er vígð í Möðrudal á Fjöllum.
1954 Þverárvirkjun í Steingrímsfirði er vígð.
1969 Björgvin Halldórsson, 18 ára, er kosinn poppstjarna
ársins á popphátíð í Laugardalshöll í Reykjavík.
1984 Níunda hrina Kröfluelda hefst.
1989 Mótmæli hefjast í Leipzig í Þýskalandi.
1994 Kansai-flugvöllur er opnaður í Ósaka í Japan.
1995 Fjórða heimsráðstefna kvenna er sett í Peking í
Kína.
1998 Google er stofnað af Larry Page og Sergey Brin,
nemendum við Stanfordháskóla.
2004 Endurgerða víkingaskipið Havhingsten frá Glen-
dalough er sjósett í Hróarskeldu.
Merkisatburðir
Sigurvin og Hjörtur eru sammála um mikilvægi víðsýni í starfi. MYND/EGGERT GUNNARSSON
26 Tímamót 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 4. september 2021 LAUGARDAGUR