Fréttablaðið - 17.07.2021, Síða 12
Það verður að öllum líkindum
mikið fjör á KEX Port úti-
tónleikunum sem fara fram
í dag. KEX hostel fagnar tíu
ára afmæli þessa dagana og
leggur áfram mikið upp úr
lifandi stemningu.
Það eru yfir þúsund manns búnir að melda sig á Facebook svo við búumst við heljarinnar partíi,“ segir Óli Dóri, rekstrar- og
viðburðastjóri hjá KEX Hostel, um
KEX Port útitónleikana sem fara
fram þar í dag. „Mætingin hefur allt-
af verið mjög góð, en viðburðurinn
hefur reyndar ekki verið haldinn í
nokkur ár vegna framkvæmda.“
Umrætt port hefur farið í gegnum
andlitslyftingu undanfarin ár og
segir Óli Dóri að nú standi til að
halda þar fjölbreytta dagskrá eins og
þekktist þar áður. „Það myndaðist
frábær stemning hjá okkur þegar við
sýndum EM á risaskjá og almennt
hefur stemningin í sumar verið mjög
góð. Það er kannski ekki skrítið þar
sem mér finnst þetta vera eitt glæsi-
legasta útisvæðið í Reykjavík.“
Tónleikarnir í dag standa yfir frá
klukkan 14 til 24 og koma þar fram
einar tíu hljómsveitir og listamenn,
auk þess sem boðið verður upp á
léttar veitingar. „Við verðum að
gefa þeim sem mæta fyrst eitthvað
að borða og drekka, og svo er það
bara stemning frá tvö til miðnættis,“
segir Óli Dóri.
Það er ákveðinn hátíðarbragur
yfir viðburðinum í ár, þar sem um
tíu ár eru liðin síðan KEX hostel
var opnað. „Staðurinn var opnaður
í apríl 2011 og frá upphafi var lagt
upp með að vera með aðeins öðru-
vísi gistiheimili,“ segir Óli Dóri.
„Þetta átti ekki bara að vera gisti-
heimili, heldur líka staður fyrir tón-
leika og alls kyns viðburði og KEX
hefur þróast í takt við það og er í
dag orðið að eins konar menningar-
miðstöð. Við bjóðum upp á marga
viðburði í viku og hlúum eins og
við getum að grasrótinni. Margir af
stærstu tónlistarmönnum Íslands
tóku sín fyrstu skref hér á KEX.“
Óli Dóri segir að menningarstefna
KEX liti einnig út frá sér í kúnna-
hóp gistiheimilisins. „Ferðalang-
arnir sem koma hingað vilja gista
á lifandi stað,“ segir hann. „Þegar
ég ferðast sjálfur leita ég alltaf að
stöðum þar sem er fólk, lifandi
stemningu og viðburðum. Það er
svipaður hópur sem við erum að fá
hingað til okkar.“
Rétt eins og á öðrum gististöðum
landsins hefur líf verið að færast
Tíu ára gömlu KEXi fagnað
Miklar fram-
kvæmdir hafa
staðið yfir í
portinu, sem
er nú orðið hið
glæsilegasta.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Óli Dóri segir
viðskiptavini
KEX sækja í lif-
andi stemningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Í sloppinn um síðsumar
„Ég er mjög vel stemmdur
fyrir KEX Port,“ segir tón-
listarmaðurinn Teitur
Magnússon, sem kemur fram
á KEX Port í dag. „Þetta er
skemmtileg hátíð og alltaf
vel að henni staðið.“
Teitur er KEXinu vel kunn-
ugur og segir hann staðinn
hafa tekið stakkaskiptum
eftir faraldurinn. „Þetta er
orðinn eins konar hverfis-
pöbb fyrir mig,“ segir hann.
„Það er búið að vera gaman
að rölta úr Skipholtinu til að
kíkja á tónleika og boltann og
svona.“
Sumarið leggst annars vel í
Teit, bæði sem listamann og
fjölskylduföður. „Eftir KEX
Port legg ég land undir fót og
kíki á mánudeginum norður á
Siglufjörð og þaðan á Græna
hattinn á Akureyri á fimmtu-
dagskvöldinu,“ segir hann.
„Ég spila svo á Innipúkanum
um verslunarmannahelgina
og fer þaðan að spila í Sól-
heimum í Grímsnesi og ætla
að taka fjölskylduna með. Ég
er svo að gefa út fleiri lög, þar
á meðal síðsumarsmellinn
Sloppinn, sem er væntan-
legur á næstunni.“
KEX Port 2021
14:00 Ingibjörg Turchi
15:00 Gimmi
16:00 Teitur Magnússon
17:00 Kvikindi
18:00 gugusar
19:00 dj. flugvél og geimskip
20:00 Skoffín
21:00 Hipsumhaps
22:00 Birnir
23:00 Andi
Arnar Tómas
Valgeirsson
arnartomas
@frettabladid.is
Teitur Magnússon.
yfir KEX með auknu streymi ferða-
manna, en Óli Dóri segir að þó hafi
tekist að halda dampi í faraldrinum.
„Við náðum að vera með viðburði
hjá okkur í samræmi við sóttvarna-
takmarkanir þar sem þetta er svo
stór staður,“ segir hann. „Síðasta
mánuðinn er þetta þó búið að stór-
aukast og í dag er nóg að gerast hjá
okkur. Við höfum verið með sumar-
tónleikaröð og stefnum á að halda
því áfram. Í nóvember verðum við
svo með Airwaves-dagskrá, svo
þetta heldur allt saman áfram. Við
erum rétt að byrja.“ n
Þegar ég ferðast sjálfur
leita ég alltaf að stöð-
um þar sem er fólk,
lifandi stemningu og
viðburðum. Það er
svipaður hópur sem
við erum að fá hingað
til okkar.
HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR