Fréttablaðið - 17.07.2021, Síða 18

Fréttablaðið - 17.07.2021, Síða 18
Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins við Dyngjuveg árið 1963. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/SVEINN ÞORMÓÐSSON að stundum verður hreinlega að svipta óhæfa foreldra börnum sínum. Svo er annað sem þarf að koma fram, að ungar ógiftar mæður fóru stundum sjálfviljugar með börn sín á vöggustofur, í góðri trú eftir meðmæli, á meðan þær voru að koma undir sig fótunum. Þær vissu ekki betur. Svo kannski fengu þær aldrei börnin aftur vegna þess að Barnavernd mat stöðuna þannig.“ Silungapollur eins og fangelsi Eins og áður sagði voru Árni og öll systkini hans vistuð á stofnunum meira og minna í æsku. „Ef til vill sluppum við systkinin betur en margur annar. Við höfum getað farið í gegnum lífið svona að mestu uppistandandi, auðvitað höfum við glímt við erfiðleika og allt það. En við náðum öll að mennta okkur og eignast fjölskyldur, ólíkt mörgum öðrum. Því það er ótrú- legur fjöldi sem missti gjörsamlega fótanna, ekki bara út af vöggustof- unum, heldur einnig vegna vistunar á öðrum stofnunum. Ég var mjög lánsamur að eignast góða konu sem beindi mér rétta leið eftir eyði- merkurráf í myrkri,“ segir Árni og bætir við að ekki hafi allir verið svo lánsamir. Mörg vöggustofubarnanna hafi upplifað mikla höfnun og glímt við lítið sjálfstraust alla sína ævi. Systkinin héldu sambandi við for- eldra sína framan af og dvöldu tíma- bundið hjá þeim, á milli þess sem þau voru á stofnunum. Hópurinn tvístraðist endanlega 1969 en Árni og einn bróðir hans fylgdust að. Árni segir þau systkinin hafa haldið sam- bandi á fullorðinsárum þó það hafi stundum verið stopult. Árna er ekki kunnugt um nákvæmlega hversu lengi hann dvaldi á vöggustofu en hann hefur sótt um að fá aðgang að gögnum varðandi æsku sína hjá Borgarskjalasafni og Þjóðskjalasafni. „Þetta rennur í einn graut hjá mér því ég var svo mikið á Silungapolli og öðrum stofnunum. Minnið mitt nær aldrei á vöggustofu, þannig að ég get ekki sagt til um það. En systk- ini mín voru þarna nokkuð lengi, ég veit það, og tvö þeirra fóru þaðan í fóstur og til ættleiðingar. Við eigum það líklega sammerkt systkinin að hafa glímt við félagsfælni og sum hafa talað um erfiðleika með að tengjast og treysta fólki. En við sluppum nokkuð vel, miðað við það sem ég hef heyrt og til eru heimildir um. Alltént vorkennum við okkur ekkert þrátt fyrir erfiða æsku.“ Silungapollur var vistheimili sem rekið var af Reykja vík ur borg frá 1950–1969 fyrir börn á aldrinum þriggja til sjö ára. Árið 2010 fór fram rannsókn á starfsemi Silungapolls á vegum vistheim ila nefnd ar, þar sem kom í ljós að sum börnin voru beitt kynferðisofbeldi þar. Árni líkir vistinni á Silungapolli við fangelsi. „Ég man til dæmis að hurðar- húnar voru mjög hátt uppi þann- ig að börnin gátu ekki opnað. Svo voru þau geymd á daginn í stórum sal sem líkja má við dýragarð. Þarna voru börn sem glímdu við ýmsa erfiðleika, öllu att saman og mikið um of beldi á meðal barnanna. Ef þú fyllir heilan sal af börnum sem eiga öll við erfiðleika að glíma þá geturðu rétt ímyndað þér ástandið,“ segir hann. Stofnun getur aldrei alið upp barn Árni segir stofnanavistina hafa haft mikil áhrif á hann og systkini hans. Þau hafi þó öll náð að lifa sínu lífi þrátt fyrir ýmiss konar bakslög. „Börn sem glíma við mikinn til- finningalegan sársauka og kunna ekkert að takast á við það lenda oft í óreglu. Eigum við ekki að segja að víman sé svona einhvers konar líkn. Þegar það er mikill tilfinningalegur sársauki þá getur þú engan veginn unnið úr því, þú hefur ekkert bak- land og enga fjölskyldu til að hjálpa þér. Stofnun getur í rauninni aldrei alið upp barn, vegna þess að grund- vallarþörf barns er ást, umhyggja og öryggi og slíkt er ekki í boði á stofn- un. Fólkið sem sinnir þér og gefur þér að borða er bara í vinnunni.“ Varstu í sambandi við foreldra þína eftir að þú varðst fullorðinn? „Já, ég var það. Pabbi flutti reynd- ar til Ástralíu og var þar lengi. Ég var svo í samskiptum við hann þegar hann kom til baka og alltaf í sam- skiptum við móður mína, en eftir að hún missti yngsta bróður minn frá sér þá missti hún endanlega fótanna í lífinu. Þetta var of sárt og þetta var of mikið og eftir það átti hún sér aldrei viðreisnar von í lífinu.“ Móðir Árna glímdi við óreglu og veikindi í gegnum líf sitt og þykir honum það einna sárast hversu mikið var litið niður á hana og aðrar konur í sambærilegri stöðu. „Ég get náttúrlega ekki sett mig í spor þessara mæðra en það sem mér finnst mjög sárt er fordómafullt við- horfið gagnvart þeim. Það var ekki þeim að kenna hvernig komið var fram við börn þeirra á vöggustofum en allar mæðurnar skynjuðu auð- vitað hve hryllilegt þetta var fyrir þau. Þær voru síðan fordæmdar af starfsfólki vöggustofa, félagsmála- yfirvöldum og jafnvel samfélaginu.“ Funduð þið systkinin fyrir gremju gagnvart foreldrum ykkar? „Já, eðlilega, öll á einhverjum tímapunkti, en síðan erum við held ég öll löngu búin að fyrirgefa þeim. Þetta var bara fátækt og veikt fólk. Móðurfjölskyldan mín var blá- snauð, þau bjuggu í Múlakampinum í bröggum. Þannig að ég held að ég geti talað fyrir hönd okkar allra að það er enginn að erfa þetta við þau í dag. Þetta voru bara aðstæður sem foreldrar mínir réðu engan veginn við. Ég veit það að þau vildu okkur allt hið besta en þau réðu bara ekki við líf sitt.“ Vilja réttlæti fyrir mæðurnar Reykjavíkurborg hefur heitið því að rannsaka starfsemi vöggustofanna að Hlíðarenda og Dyngjuvegi, en ljóst er að mikið verk er fyrir hönd- um. Viðbrögðin hafa verið mikil og segist Árni hafa þurft að slökkva á símanum sínum fyrstu dagana því hann hafi hreinlega ekki stoppað. Athugasemdir fólks hafi langflestar verið jákvæðar, en einstaka hafa ýjað að því að fimmmenningarnir séu á höttunum eftir fé eða bótum. Árni hafnar því alfarið og segir það aldrei hafa komið til tals. „Við erum ekki á höttunum eftir því, bara alls ekki. Við viljum bara að starfsemin verði rannsökuð og gerð skil. Því þetta er svartur blettur á sögu Reykjavíkurborgar og sögu barna á Íslandi. Ég er ekki að segja hvað verði í framtíðinni, enda ræð ég engu þar um. En það var aldr- ei hugmyndin okkar Hrafns, við vildum réttlæti, ekki síst fyrir mæð- urnar,“ segir Árni. Hver heldurðu að verði næstu skref í þessu máli? „Næstu skref eru að fylgja þessu eftir. Það sem við gerum núna í framhaldinu er að spyrja reglulega um framvindu málsins og auðvitað vonast ég til þess að það verði eitt- hvað gert og þetta verði rannsakað. Þessi meðferð á börnum var alveg með ólíkindum, því í rauninni er þetta ekkert svo langt síðan.“ Fimmmenningarnir stofnuðu hópinn „Réttlæti“ á Facebook sem er eyrnamerktur börnum sem voru vistuð á vöggustofum, aðstand- endum þeirra og áhugafólki um málefnið. Sögurnar hafa hrannast inn, bæði frá fólki sem var sjálft vistað á vöggustofum og aðstand- endum þess. „Það vilja allir meina að þetta hafi haft mjög slæm áhrif og það er ótrúlega há tíðni óreglu og sjálfs- víga hjá þessum hópi fólks. En það má ekki alhæfa að það sé eingöngu hægt að skrifa á vöggustofurnar, því f lest börnin voru líka vistuð á öðrum miður góðum stofnunum,“ segir Árni. Lagt hefur verið til að Árni verði fulltrúi barna í nefnd sem skipuð verður um rannsókn málsins, en hann segist ekki vera tilbúinn að gera það enda standi það honum of nærri til þess að geta gætt hlut- lægni. „Ég geri þetta náttúrlega bara meðfram öðru og ætlaði aldrei að þetta yrði svona stórt, ég sá það í raun ekki fyrir mér. Eldhuginn Hrafn þrýsti á mig til þess að leggj- ast í þessa rannsóknarvinnu, hann sagði að ég væri dæmdur til að gera þetta af því ég er sagnfræðingur.“ Nú mun sennilega taka einhvern tíma að leiða málið til lykta, ætlarðu þér að fylgja því eftir? „Þetta mál má ekki heltaka okkur en auðvitað munum við ýta við borgarstjórn ef okkur fer að lengja eftir svörum og fylgja því þannig eftir. Ég er ekki einn og auk öflugra félaga minna þá er fjöldinn allur af fólki sem lætur sig málið varða og styður væntanlega rannsókn. Að lokum vil ég hvetja þá sem voru vistaðir á vöggustofum og aðstand- endur þeirra til að segja sögu sína – það er mikilvægt!“ segir Árni. n  Árni níu ára gamall árið 1970. MYND/ÚR EINKASAFNI Árni segist vera mjög lánsamur að hafa eignast góða konu sem beindi honum rétta leið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON Vöggustofur í Reykjavík 1949 Vöggustofan að Hlíðar- enda við Sunnutorg sett á laggirnar. 1959 Thorvaldsensfélagið ræðst í að byggja nýja vöggu- stofu. 1963 Thorvaldsensfélagið færir Reykjavíkurborg vöggu- stofuna að Dyngjuvegi að gjöf. Starfsemin á Hlíðarenda flyst óbreytt þangað yfir. 1967 Dr. Sigurjón Björns- son vekur athygli á málefni vöggustofa með greininni „Vistheimili fyrir ung börn“ og í borgarstjórn, ásamt Öddu Báru Sigfúsdóttur. 1973 Vöggustofu Thorvald- sensfélagsins breytt í upp- tökuheimili fyrir börn. 1979 Starfsemi upptöku- heimilisins á Dyngjuvegi hætt og það sameinað rekstri upptökuheimilisins við Dal- braut. 1993 Útvarpsþátturinn „Eins og dýr í búri“ eftir Viðar Eggertsson frumfluttur í Ríkisútvarpinu. 2021 Árni H. Kristjánsson, Fjölnir Geir Bragason, Hrafn Jökulsson, Tómas V. Alberts- son og Viðar Eggertsson ganga á fund Dags B. Eggerts- sonar borgarstjóra. 18 Helgin 17. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.