Fréttablaðið - 17.07.2021, Side 20

Fréttablaðið - 17.07.2021, Side 20
Við þurfum að skoða rætur hatursins og hvernig við getum barist gegn öfgahyggju án ofbeldis. Næstkomandi fimmtudag eru tíu ár liðin frá hryðjuverka- árásunum í miðborg Oslóar og í Útey, sumardvalar stað ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins. Sendi- herra Noregs hér á landi, Aud Lise Norheim, segir samtalið sem nú á sér stað nauðsynlegt uppgjör. „Nú þegar tíu ár eru liðin er rétti tíminn fyrir alla, bæði ráðamenn og aðra, að horfa til baka og skoða hvernig við brugðumst við. Þá er ýmislegt sem kemur í ljós að ekki var hugsað út í. AUF, ungliðahreyf- ing norska Verkamannaflokksins sem ráðist var gegn, var að miklu leyti ein látin vinna úr eftirmálum þessa harmleiks innan sinna raða,“ segir Aud Lise. „Nú í sumar hafa komið út þónokkrar bækur, sumar skrifaðar af eftirlifandi fórnarlömbum, aðrar af sagnfræðingum. Gegnumgangandi er sú staðreynd að skotmark hryðju- verkamannsins var stjórnkerfið, sem á þeim tíma var leitt af Jens Stolten- berg og Verkamannaflokknum.“ Aud Lise minnist orða Stolten- bergs um að þjóðin myndi aldrei gleyma og aldrei leyfa hatrinu að sigra. „Nokkrum dögum eftir árásina mætti fjöldi fólks í miðborg Osló með rósir og ástin var allsráðandi. En smátt og smátt má segja að sú tilf inning hafi horfið. Tónninn breyttist og mátti jafnvel heyra ásakanir um að Verkamannaflokk- urinn, og sérlega ungliðahreyfing- in, væri að nota harmleikinn sér til pólitísks framdráttar, til að afla sér stuðnings.“ Einn sagnfræðinganna benti í bók sinni á erfiða stöðu Jens Stol- tenbergs á þessum tíma. „Hann var forsætisráðherra landsins en jafnframt formaður Verkamanna- flokksins, sem var skotmark árás- arinnar. Hann stóð frammi fyrir því að þurfa að sameina þjóðina og átti því erfitt með að benda á að þetta væri árás á lýðræðislegt kerfi Noregs. Umræðan í dag snýst um það hvernig samtalið er, hvaða orðalag við notum og hvað er sam- þykkt í þeim efnum, en það hefur tekið tíu ár að komast þangað. Við þurfum að skoða rætur hatursins og hvernig við getum barist gegn öfgahyggju án of beldis.“ Vinir mínir áttu börn þarna Aud Lise segir Stoltenberg hafa staðið sig vel í gríðarlega erfiðum aðstæðum. „Sjálfur þekkti hann fjölmörg fórnarlömb og hafði stuttu áður heimsótt Útey, þar sem hann nánast ólst upp. Flestir Norðmenn þekktu einhvern sem árásin snerti beint. Börnin mín áttu vini þarna og vinir mínir áttu börn þarna svo þetta snerti okkur öll. Sú afstaða forsætisráðherra að leggja áherslu á ástina og að hatrið fengi ekki að sigra, var hárrétt á þessum tíma- punkti. En því miður breyttist eitt- hvað og okkur tókst ekki að fram- lengja þá hugsjón og hægra öfgafólk náði að yfirtaka umræðuna. Frá því heyrðist að fórnarlömb árásar- innar notuðu „Úteyjar-spilið“. Þetta heyrðist bæði frá háttsettum stjórn- málamönnum og í athugasemda- kerfum á samfélagsmiðlum.“ Lise segir fólk ekki hafa verið undirbúið undir þann viðsnúning og ekki verið tilbúið í samtalið. „Verkamannaflokkurinn vildi gæta þess að móðga engan í samtalinu í kjölfarið, enda mikilvægt að halda því á lofti að Noregur hafi allur verið skotmarkið. Að þessu leyti var f lokkurinn skilinn eftir einn með þennan vanda. Samtalinu var í raun snúið við og það var ung- mennahreyfingin, sem varð fyrir árásinni, sem þurfti að gæta þess að móðga ekki þá sem ásökuðu hana um að nota árásina sér til pólitísks Nauðsynlegt uppgjör tíu árum síðar Aud Lise Norheim, sendiherra Nor- egs á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Viðbragðsaðilar við Útey þar sem Anders Breivik gekk um og myrti 69 ungmenni og særði fjölmörg til viðbótar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Rósum var dreift víða vikurnar eftir hryðjuverkin til minningar um fórnarlömbin og urðu ein- hvers konar tákn um ástina, sem áhersla var lögð á að skyldi sigra hatríð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Minnisvarði hefur verið reistur í Útey með nöfnum allra þeirra 69 sem létu lífið í hryðjuverkunum árið 2011. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is framdráttar. Og þetta er að koma upp á yfirborðið núna.“ Lise segir þennan föstudagseftir- miðdag greyptan í minnið. „Ég var á leið um borð í ferju þegar ég heyri háværa sprengju. Ég hef aðallega verið í verkefnum í Mið-Austur- löndum svo ég þekki sprengju- dyn þegar ég heyri hann. Það var stormur úti, en ég vissi vel að þetta var ekki þruma.“ Lise segist f ljótlega hafa heyrt af sprengingunni við stjórnarráðs- byggingarnar og í framhaldi heyrt af árásinni í Útey og kemst við þegar hún rifjar upp atburði dagsins. „Þær hryðjuverkaárásir sem orðið hafa í Noregi hafa allar verið fram- kvæmdar af hægri öfgamönnum og það er mikilvægt að horfa til þess og taka endurteknar árásir á borgara- leg réttindi og lýðræði alvarlega.“ Mikilvægasta samtalið Lise segir árásirnar hafa breytt þankagangi Norðmanna. „Við vitum að við erum ekki lítið eyland í norðri þar sem ekkert svona getur gerst. En það er eins og við höfum þurft þessi tíu ár til að skoða hvernig við tók- umst á við þetta og hvað hefði mátt betur fara. Við þurftum auðvitað að skoða alla viðbragðsferla, en einnig hvað má gera til að koma í veg fyrir að slík hugmyndafræði grasseri. Nú er það mikilvægasta samtalið.“ Eftirlifandi fórnarlömb eru enn að kljást við heilsufarsleg vanda- mál tengd árásinni, enda voru þetta börn. Við höfum lært að það tekur tíma að vinna úr þessu og við þurfum kerfi sem heldur utan um þetta fólk til lengri tíma litið, það dugir ekki að bjóða þessu fólki fría sálfræðiaðstoð í eitt ár eða svo.“ Lesa upp hvert nafn árlega Við stjórnarráðsbyggingarnar í Osló verður athöfn á fimmtudaginn þar sem ráðamenn koma saman ásamt eftirlifandi fórnarlömbum. Lesin verða upp nöfn hinna látnu, fyrst þeirra átta sem létust við stjórnar- ráðsbyggingarnar og svo þeirra 69 sem voru myrt í Útey. Eins verður athöfn í Dómkirkju Oslóar, sem lék stórt hlutverk á þessum erfiðu tímum þegar fólk kom saman þar. Athöfn verður jafnframt í Útey þar sem fórnarlömb, aðstandendur og björgunaraðilar, margir hverjir nágrannar eyjunnar, koma saman. Aud Lise segir að undanfarinn áratug hafi skapast sú hefð að lesa upp nöfn allra þeirra sem létust í árásunum, bæði í Osló og í Útey, og sé alltaf um magnaða stund að ræða. Hér í Reykjavík er minnislundur í Vatnsmýrinni þar sem eru þrír bekkir sem á eru letruð orðin: Aldrei gleyma, á íslensku, norsku og ensku. Þar er ætlunin að efna til samverustundar klukkan hálf fimm á fimmtudaginn. Jafnframt verður kvikmyndin 22. júlí, sem fjallar um hryðjuverkaárásina, sýnd í Bíó Para- dís sama kvöld og á Rúv á föstudags- kvöldið. „Þetta er mynd sem maður verður að sjá með öðrum, enda erfið áhorfs.“ n Myrti sjötíu og sjö manns og hlaut tuttugu og eins árs fangelsisdóm Þann 22. júlí 2011 sprakk sprengja við stjórnarráðsbyggingarnar í mið- borg Osló ar. Skömmu síðar hóf maður dulbúinn sem lögregluþjónn skotárás á sumardvalarstað ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Útey í nágrenni Oslóar. Alls létust 77 manns í árásunum sem Anders Behring Breivik var handtekinn fyrir og játaði á sig. Átta manns létust í sprengingunni í Osló og 69 ungmenni voru myrt í Útey, en talið er að um 700 manns hafi þar verið samankomin. Breivik hlaut 21 árs fang- elsisdóm, með möguleika á framleng- ingu ef hann er enn talinn hættulegur að afplánun lokinni. 20 Helgin 17. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.