Fréttablaðið - 17.07.2021, Side 26
Þegar fólk fer að
labba með hafrana
þá raðast þeir svo
kannski öðruvísi en þeir
hefðu sjálfir raðað sér
upp og þá fara þeir
stundum að reka hornin
í hver annan til að reka
hina á réttan stað í röð-
inni. Það er svolítið
ævintýri að vera með í
þessu.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Á Gufuá í Borgarfirði er hægt
að fá að fara í göngu með geit
í taumi. Sigríður Ævarsdóttir
bóndi segir að geiturnar séu
mannelskar en uppátækja-
samar og það sé ævintýra-
legt að vera með geitunum
og fylgjast með samskiptum
þeirra.
Sigríður Ævarsdóttir, bóndi á
Gufuá í Borgarfirði, tók upp á því
að venja geiturnar sínar við taum
til að gera þær meðfærilegri í dag-
legu amstri, en datt svo í hug að
öðrum gæti þótt þetta skemmtileg
og öðruvísi upplifun og hóf að
bjóða upp á göngur með geitunum.
Hún segir að geitalabbið sé ekki
mjög flókið í framkvæmd.
„Ég veit fyrirfram hvað margir
koma og geri þær geitur sem þarf
tilbúnar. Taumurinn fer í múl sem
er á geitunum og þær teymast ágæt-
lega,“ segir hún. „Akkúrat núna
er reyndar einhver frekjugangur í
þeim, því það er svo margt sem þær
langar að éta úti sem þær finna ekki
á túninu þar sem þær eru vanalega.
Meðfram ánni sem við löbbum hjá
er lyng, birkilauf og fleira sem hefur
einhver efni sem þær vantar og fá
ekki úr grasinu um þetta leyti.
Þetta er auðveld ganga eftir
veiðivegi og geiturnar taka upp á
ýmsu á leiðinni, yfirleitt tengt því
að éta, því þær sjá lítinn tilgang í
að fara í göngutúr ef það er ekki
til að finna eitthvað ætilegt,“ segir
Sigríður. „En þær eru mannelskar
að upplagi og jafnvel þó að maður
missi tauminn fara þær ekki langt.
Þetta eru allt geltir hafrar og flestir
hafa horn, en þeir eru allir mjög
góðir og ekkert hættulegir.“
Afslappandi upplifun
„Það tók geiturnar stuttan tíma
að venjast því að vera í taumi. Við
erum búin að vera að temja hesta,
það hefur verið okkar aðalstarf-
semi í gegnum tíðina og það var
bara sjálfsagt að temja þær líka,
svo það væri hægt að umgangast
þær án þess að þær væru stanslaust
á hlaupum undan okkur,“ segir
Sigríður. „Þetta virkar svipað og að
temja hesta, en tekur styttri tíma.
Á vefnum okkar auglýsum við
þetta sem ferðaþjónustu í anda
hæglætis og núvitundar og erlendis
er svona lagað fyrst og fremst
hugsað fyrir þá sem vilja vinda
ofan af sér, en hér hugsar fólk þetta
meira sem eitthvað skemmtilegt
fyrir börn,“ segir Sigríður. „Það á
alveg við, en einskorðast alls ekki
við það. Fullorðið fólk fær ekkert
síður ,,kikk” út úr þessu, jafnvel
enn frekar. Þegar fólk kemur með
börn endar það oft svo að foreldr-
Ævintýralegur félagsskapur
Sigríður Ævars-
dóttir, bóndi á
Gufuá í Borgar-
firði, fann upp
á nýstárlegri
leið til að nýta
geiturnar sínar.
MYNDIR/AÐSENDAR
Geiturnar taka upp á ýmsu á labbinu, yfirleitt tengt því að borða, því þær sjá
lítinn tilgang í að fara í göngutúr ef það er ekki til að finna eitthvað að borða.
Sigríður segir að hver hafur hann sinn
einkennandi persónuleika og þeir
hafi mikil samskipti sín á milli.
Sigríði finnst skemmtilegast að
teikna dýr og málar oftast hesta.
arnir sitja uppi með geiturnar á
meðan krakkarnir verða alveg jafn
áhugasamir um hundinn, köttinn
eða eitthvað annað á staðnum.“
Aðlöguð og endurbætt hugmynd
Sigríður byrjaði að bjóða upp á
geitalabb síðasta vor. Hún segir að
ástæðan fyrir því að hún sé með
geitur sé að hún sé geitasjúk, þetta
sé baktería eins og hestabakterían.
„Ég hef alltaf verið veik fyrir þeim
en ekki alltaf haft góða aðstöðu til
að hafa þær. En hugmyndin var líka
alltaf að þær hefðu eitthvert hlut-
verk, þær áttu ekki bara að vera til
gamans fyrir mig,“ segir hún.
„Við erum tiltölulega nýflutt
á jörðina Gufuá og þá fékk ég
geiturnar. Ég fékk svo þá hugmynd
þegar ég var að temja þær í víðátt-
unni að það væri sniðugt að leyfa
fólki að prófa þetta. Fólk er að labba
um með alls konar dýr erlendis, til
dæmis lamadýr, alpaka og asna,
þannig að þessi hugmynd er ekkert
frumleg þannig séð, heldur stolin
frá útlöndum, aðlöguð og endur-
bætt að okkar veruleika,“ segir
Sigríður og hlær.
Goggunarröðin mikilvæg
„Það kemur í ljós strax og maður
fer að umgangast hafrana að hver
og einn þeirra hefur sinn eigin
einkennandi karakter, rétt eins og
kindur, hestar og önnur dýr,“ segir
Sigríður. „Þetta eru líka hópdýr
og þegar þeir eru ekki að vinna er
einn sem ræður og allir elta, en það
er hann Gandalfur, sem er elstur og
stærstur.
Þegar fólk fer að labba með
hafrana þá raðast þeir svo kannski
öðruvísi en þeir hefðu sjálfir raðað
sér upp og þá fara þeir stundum
að reka hornin í hver annan til að
reka hina á réttan stað í röðinni.
Það er svolítið ævintýri að vera
með í þessu og það eru alls konar
samskipti í gangi hjá þeim þó að
þeir segi ekki neitt,“ segir Sigríður.
„Þeir eru ekki ruddar og þeir byrja
á fínlegum skilaboðum eins og
augngotum, en ef það dugar ekki
til grípa þeir til hornanna og í
versta falli rífa þeir jafnvel í hárið
á hver öðrum og kippa í það til að
láta hina færa sig.“
Myndskreytir bók
Ásamt því að vera bóndi og sinna
ferðaþjónustu er Sigríður líka
myndlistarkona.
„Ég hef alltaf haft gaman af því
að mála, en er misdugleg. Mér
finnst skemmtilegast að teikna
dýr og mála mest hesta, en ég er
að átta mig á því í þessum töluðu
orðum að ég hef ekki teiknað eina
einustu geit. En núna er ég að klára
að myndskreyta bók sem ég er að
gera með manninum mínum og
heitir „Tölum um hesta“ og kemur
út fyrir jólin,“ segir hún. „Þetta eru
hátt í 50 myndir og í fyrsta sinn
sem ég geri þetta af alvöru.
Ég hef reyndar líka stundum
verið beðin um að mála eitthvað
sérstakt fyrir fólk og hef orðið við
því, en ég er ekki með gallerí eða
að framleiða neitt til sölu,“ segir
Sigríður. „En fólk getur heyrt í mér
ef það vill biðja um eitthvað.“
Ekki bara geitalabb
Auk þess að bjóða upp á geitalabb
er líka hægt að fara í náttúrugöngu
með sagnaþul og heimsækja for-
ystufjárhús á Gufuá.
„Forystufjárhúsið er ekki í gangi
á sumrin, því þá eru allar kindurn-
ar á fjalli. En ég leiði náttúrugöng-
una, sem er um tveir tímar,“ segir
Sigríður. „Gufuá er landnámsjörð
Rauða-Björns með áhugaverða
sögu, fallegt landslag, náttúrufar
og útsýni. Þar eru margar vörður
og við röltum hér um og ég segi
söguna af jörðinni, búskaparhátt-
um, jarðsögu svæðisins, náttúru-
fari, kem aðeins inn á þjóðtrúna
og fleira. Þetta er skemmtifræðsla í
fallegu landslagi.“ n
Hægt er að kynna sér starfsemina
á Gufuá á vefsíðunni www.gufua.
com.
Sigríður
hefur málað 50
myndir fyrir bók
sem hún er að
gera með mann-
inum sínum og
heitir „Tölum
um hesta“.
4 kynningarblað A L LT 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR