Fréttablaðið - 07.07.2021, Page 1

Fréttablaðið - 07.07.2021, Page 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s 1 3 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 7 . J Ú L Í 2 0 2 1 Tilraunir ríkisfyrirtækisins til að koma í veg fyrir að net- verslun afhendi áfengi beint af lager hafa enn ekki skilað árangri. Samkeppnisum- hverfið gjörbreytist ef slík starfsemi heldur velli. thorsteinn@frettabladid.is VIÐSKIPTI Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur enn ekki náð að kveða niður netverslun sem býður upp á af hendingu á áfengi samdægurs og lægra verð. Eftir því sem tíminn líður verður æ líklegra að fleiri fyrir- tæki fylgi í kjölfarið. „Ég hef fulla trú á því að þetta framtak opni augu manna fyrir því að það er komið að endalokum núverandi fyrirkomulags á smá- sölu áfengis þar sem ríkið hefur allt í hendi sér. Að sú stund sé runnin upp og ekki verði stigið til baka,“ segir Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Franska fyrirtækið Santewines SAS, sem er í eigu Arnars Sigurðs- sonar, opnaði í byrjun maí netversl- unina sante.is þar sem viðskipta- vinir geta keypt áfengi og fengið það afhent af lager hér á landi um leið og kaupin hafa átt sér stað. Þannig gat almenningur í fyrsta sinn keypt áfengi af innlendum vörulager án milligöngu Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins. ÁTVR sagðist ætla að leggja fram kröfu um lögbann á starfsemina og kærði hana auk þess til lögreglu. Frá því var greint um miðjan maí og í ljósi þess að lögbannskröfur eru aðgerðir til bráðabirgða virðist því sem ríkisfyrirtækið hafi ekki haft erindi sem erfiði. Sömuleiðis virðist ákærusvið lögreglu ekki hafa talið lagagrundvöll til inngripa. Þá fór ÁTVR einnig fram á að hafið yrði áminningarferli hjá Sýslumann- inum á höfuðborgarsvæðinu. „Frekari viðbrögð eru vel hugsan- leg, enda hefur ÁTVR lýst þeirri ein- dregnu afstöðu sinni að starfsemi vefverslananna standist ekki lög og æskilegt væri að fá staðfestingu dómstóla á því,“ segir í svari ÁTVR. Aðspurður segist Andrés eiga von á því að stór smásölufyrirtæki fylgi í fótspor Sante. „Ég held að flestir hafi á tilfinning- unni að ÁTVR sé óvisst um hvernig það eigi að bregðast við. Fyrstu við- brögðin voru að fara í hart og krefj- ast lögbanns á starfsemi Sante. Það hefur ekki gengið eftir. Það hafa ekki verið neinar aðgerðir af hálfu sýslu- manns eða lögreglunnar sem vitað er um. Eftir því sem tíminn líður þeim mun meira styrkjast menn í trú um að ekki verði til baka snúið,“ segir Andrés. SJÁ MARKAÐINN Hriktir í stoðum ríkiseinokunar Ég held að flestir hafi á tilfinningunni að ÁTVR sé óvisst um hvernig það eigi að bregðast við. Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Sjáðu verðið strax á tm.is Hugsum í framtíð Þú færð okkar besta verð og getur tryggt þig og þína á örfáum mínútum á tm.is hordur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Stjórnendur Alvotech skoða nú þann valkost að félagið verði einnig skráð á hlutabréfamarkað á Íslandi, samtímis skráningu í kaup- höll í Bandaríkjunum í haust. Félagið stefnir að því að afla sér um 150 til 175 milljónum Bandaríkjadala með hlutafjárútboði í aðdraganda skráningarinnar, sem yrði bæði frá erlendum og innlendum fjárfestum. Áætlað er að tilkynna um skráning- aráform Alvotech vestanhafs í næsta mánuði, þar sem horft er til annað- hvort Nasdaq eða NYSE kauphallar- innar, og að áskriftasöfnun vegna útboðsins hefjist á komandi vikum. Ef áform Alvotech um tvískráningu í Bandaríkjunum og á Íslandi ganga eftir, verða Landsbankinn og Arion banki ráðgjafar við skráningarferlið hér innanlands. SJÁ MARKAÐINN Alvotech skoðar skráningu á Íslandi Ungmenni á vegum Vinnuskólans vinna hér hörðum höndum við að fegra borgina – reyta arfa, stinga upp illgresi auk tilfallandi verkefna. Þessi hressi garðyrkjuflokkur, var við störf á hringtorgi á mótum Sóleyjargötu og Njarðargötu skammt frá Ráðhúsi Reykjavíkur þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit þar við og smellti mynd af brosandi ungmennum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.