Fréttablaðið - 07.07.2021, Síða 4

Fréttablaðið - 07.07.2021, Síða 4
arib@frettabladid.is REYKJAVÍK Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, hefur óskað eftir að innri endur- skoðun Reykjavíkurborgar skoði fjármálahreyfingar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Líkt og greint hefur verið frá hyggst borgarstjórn verja tíu millj- örðum króna á næstu þremur árum í að nútímavæða þjónustu borgar- innar. Kolbrún segir það ekki umdeilt að rafrænir ferlar muni einfalda afgreiðslu erinda. „Ég hef verið að rýna í hvernig fjármagninu er varið og orðið bara hálf miður mín,“ segir Kolbrún. Óttast hún að fjármagninu sé ekki varið með skynsamlegum hætti og vill því að innri endur- skoðun farið yfir málið. „Ég sagði við innri endurskoðanda að ef hann segir mér að allt sé eðlilegt og skyn- samlega farið með fjármagn borgar- búa þá muni ég ekki segja meira.“ n Fer fram á skoðun innri endurskoðunar Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. 5.000 kr. Þínar gjafir Gildir út september Sæktu þína gjöf á Ísland.is og komdu með í ferðalag um landið okkar í sumar! Ný Ferðag jöf! Notaðu hana í sumar. Formaður landeigendafélags jarðarinnar Ísólfsskála er af einum meðeiganda sinna sagður hafa farið út fyrir heimildir sínar með því að veita samþykki fyrir lagningu rafstrengs og ljósleiðara eftir að eldgosið hófst gar@frettabladid.is ELDGOS Úrskurðarnefnd umhverf- is- og auðlindamála vísaði frá kæru eins eiganda jarðarinnar Ísólfs- skála, sem er sunnan gosstöðvanna í Geldingadölum, vegna lagningar ljósleiðara og rafstrengs á jörðinni. Kemur fram í úrskurði nefndar- innar að ríkislögreglustjóri hafi eftir að eldgosið hófst óskað eftir því við Neyðarlínuna ohf. að hún kæmi upp fjarskiptum á svæðinu. Þann 20. apríl hafi Neyðarlínan óskað eftir leyfi landeigenda Ísólfsskála til að koma rafstreng og ljósleiðara frá plani við upphaf gönguleiðar að gosstöðvunum við Langahrygg. „Sama dag sendi kærandi tölvu- póst til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs hjá Grindavíkurbæ þar sem fram kom að kærandi hefði komið að verktökum með vinnu- vélar sem sögðust vera að hefja lagn- ingu jarðstrengja á Langahrygg og að til þess hefðu þeir leyfi formanns Landeigendafélags Hrauns,“ segir í úrskurðinum. S v ið s s t jór i sk ipu l a g s - og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar hefði svarað fyrirspurn landeigand- ans 6. maí og sagt að sveitarfélagið hefði fyrir sitt leyti gefið munnlegt leyfi með fyrirvara um samþykki landeiganda. Einnig  að formaður Landeigendafélags Ísólfsskála hefði samþykkt framkvæmdina. Land- eigandinn sem kærði er einn af um þrjátíu eigendum Ísólfsskála. Sagði hann að framkvæmdaleyfi til lagn- ingar jarðstrengja hefði verið veitt án heimildar landeigenda óskipts eignarlands Ísólfsskála. „Landareignin hafi verið í eigu og ábúð forfeðra og ættingja kæranda síðustu 150 ár. Sveitarfélagið hafi mátt vita að þörf væri á samþykki allra landeigenda til útgáfu hins kærða leyfis. Leyfið hafi fjárhags- og tilfinningaleg áhrif í för með sér, meðal annars vegna takmarkaðrar notkunar lands vegna landhelgunar jarðstrengja, óafturkræfs jarðrasks og rýrnunar landgæða,“ segir um málsrök kærandans í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar. Vildi hann að framkvæmdaleyfið yrði fellt úr gildi og að landeigendur fengju bætur. Grindavíkurbær krafðist þess að málinu yrði vísað frá. Einnig hafi verið litið til þess að um brýna nauðsyn hafi verið að ræða og sé framkvæmdin nauðsynleg til að tryggja öryggi almennings og ann- arra á svæðinu, vitnar úrskurðar- nefndin í sjónarmið Grindavíkur- bæjar sem einnig mótmælti því að gefið hefði verið munnlegt fram- kvæmdaleyfi. K ær a nd i n n s agði at hu g a- semdir Grindavíkurbæjar stað- festa að sveitarfélagið hafi veitt framkvæmdaleyfi til jarðstrengja- lagna.  „Sveitarfélagið ætli að fría sig ábyrgð á veitingu framkvæmda- leyfis vegna fullyrðinga um neyðar- tilvik sem hafi aldrei verið lýst yfir vegna eldgossins á Reykjanesskaga,“ er haft eftir landeigandanum. Úrskurðarnefndin sagði ekki liggja fyrir framkvæmdaleyfi og að málið heyrði ekki undir nefndina. Þá leysi nefndin hvorki úr eignarétt- arlegum ágreiningi né taki afstöðu til bótakrafna. Því væri málinu vísaði frá. n Einn þrjátíu eigenda Ísólfsskála kærði lagningu ljósleiðara vegna eldgossins Jörðin Ísólfsskáli og byggingar þar eru sagðar í hættu vegna hraunrennslis frá Geldingadölum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Leyfið hafi fjárhags- og tilfinningaleg áhrif í för með sér. Landeigandi. urduryrr@frettabladid.is FERÐALÖG Rúmlega þrefalt f leiri f lugu milli landa með Icelandair í júní 2021 miðað við maí sama ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair Group. Farþegar í millilandaflugi hjá flug- félaginu voru um 72 þúsund í júní en tæplega 22 þúsund í maí. Rúmlega 22 þúsund flugu innanlands í júní, 4 þúsund fleiri en mánuðinn áður. Samkvæmt Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, voru 45 þúsund farþegar fluttir til Íslands nú í júní, rúmlega þrefalt fleiri en í maí. „Það gefur okkur ákveðna mynd af því hversu eftirsóttur áfangastaður Ísland er, í heimi þar sem ferðavilji er að aukast jafnt og þétt samhliða bólusetningum og auknu svigrúmi til ferðalaga,“ segir hann. n Þrefalt fleiri farþegar til Íslands urduryrr@frettabladid.is FISKVEIÐAR Skráður, landaður afli af lúðu hefur fjórfaldast frá árinu 2012 til ársins 2020. Beinar veiðar á lúðu voru gerðar ólöglegar árið 2012 og veiðiskipum hefur verið gert að sleppa öllum lífvænlegum lúðum. Hafrannsóknastofnun Íslands mælir með því að sú reglugerð verði áfram í gildi en þrátt fyrir að stofn- stærð hafi aukist nokkuð frá árinu 2012 er hún enn mjög lítil, sam- kvæmt skýrslu stofnunarinnar. Helsta aukning á löndun kemur úr botnvörpuveiðum eða um 85 prósent. Langveiðiskip hafa skráð nánast engan af la frá því reglu- gerðin tók gildi og eru með flestar skráningar af slepptum lúðum. Í skýrslu Hafró er gefið til kynna að tölur yfir slepptar lúður geti verið skakkar þar sem ekki er víst að öll skip skrái hjá sér hvert atvik. Á árunum 2018-2019 voru mun fleiri skip sem skráðu lúðusleppingar en árið 2020, en fjöldi lúða sem var sleppt hélst svipaður. n Fjórföld aukning á lönduðum lúðum Landaður lúðuafli eykst milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Landaður afli af lúðu var rúmlega 35 þúsund kíló árið 2012 en tæp- lega 143 þúsund kíló árið 2020. 4 Fréttir 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.