Fréttablaðið - 07.07.2021, Page 14

Fréttablaðið - 07.07.2021, Page 14
Kaup, sala og samruni fyrirtækja. kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF • Verðmat • Ráðgjöf og undirbúningur fyrir sölumeðferð • Milliganga um fjármögnun • Samningagerð MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is helgivifill@frettabladid.is Rapyd (áður Korta) hefur breytt greiðsluskilmálum á þá vegu að fyr- irtæki fá seinna greitt en áður. Fyrir breytinguna, sem tilkynnt var við- skiptavinum hinn 22. júní, fékk við- skiptavinur, sem vill ekki láta nafn síns getið, sölu dagsins greidda um morguninn næsta dag en nú berst hún við lok vinnudagsins. Heimildarmenn Markaðarins, sem koma úr nokkrum áttum, segja að þessar tafir komi sér illa fyrir lítil fyrirtæki sem treysti á að nýta umrædda fjármuni til að standa straum af kostnaði. Svör frá Rapyd vegna málsins höfðu ekki borist við vinnslu fréttarinnar. Í bréfi til við- skiptavina sagði Rapyd að breyt- ingin hefði ekki í för með sér mikla röskun á starfsemi viðskiptavina, að því er heimildir herma. Rapyd keypti Valitor af Arion banka á dögunum. Jóhannes Þór Skúlason, fram- k væmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, segist ekki þekkja til atviksins sem um ræðir. Aftur á móti hafi verið „urgur“ í hans fólki með einhliða skilmálabreytingar hjá færsluhirðum í fyrra þegar Covid-19 heimsfaraldurinn hófst. Færsluhirðar hafi skyldum að gegna gagnvart þeim sem selji vöru eða þjónustu og kortafyrirtækjunum. Slík fyrirtæki þurfi að vera undir það búin að viðskiptavinir fari fram á endurgreiðslu við kortafyrirtæki til dæmis ef þjónusta sé ekki innt af hendi af einhverjum ástæðum. „Við teljum óásættanlegt að kortafyrirtækin taki upp á því ein- hliða að halda eftir hluta af greiðsl- um sem gerðar eru þegar þjónusta hefur verið veitt. Það mætti líkja þessu við að kaupa pott af mjólk í matvöruverslun og greiða með korti en færsluhirðirinn lætur ekki alla greiðsluna af hendi fyrr en eftir fjórar vikur,“ segir Jóhannes Þór. Hann segir eðlilegt að færslu- hirðar taki til hliðar hluta af fjár- hæðinni þegar greitt er fyrirfram, sá möguleiki sé fyrir hendi að af viðskiptunum verði ekki og við- skiptavinir krefjist endurgreiðslu. „En þegar fólk mætir á hótel, gistir í tvær nætur og greiðir fyrir í posa með pin-númeri þá er augljóslega búið að af henda vöruna. Færslu- hirðar sjá þegar pin-númer hefur verið slegið inn og því ætti ekki að vera neitt vandamál til staðar,“ bætir hann við. ■ Fá seinna greitt frá Rapyd en áður Við teljum óásættan- legt að kortafyrirtækin taki upp á því einhliða að halda eftir hluta af greiðslum sem gerðar eru þegar þjónusta hefur verið veitt. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar. hordur@frettabladid.is Eignir í stýringu íslenskra hluta- bréfasjóða námu ríflega 123 millj- örðum króna í lok maímánaðar og hafa sjóðirnir nær tvöfaldast að stærð á aðeins einu ári. Miklar verðhækkanir á hlutabréfamark- aði – úrvalsvísitalan hefur hækkað um liðlega 50 prósent á tímabilinu – skýra meðal annars þá þróun, en einnig kemur til kraftmikið nettó innflæði fjárfesta og almennings í hlutabréfasjóði að undanförnu. Samfellt innf læði hefur þann- ig verið í slíka sjóði frá því í júní á liðnu ári og uppsafnað frá þeim tíma nemur það meira en 25 millj- örðum króna, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Eign heimila í hlutabréfasjóðum hefur á sama tíma aukist og meira en tvöfaldast en í lok maí nam hún um 41 milljarði króna, eða sem jafngilti um þriðjungi af heildareignum sjóð- anna. Fyrir ári nam eign heimilanna í hlutabréfasjóðum hins vegar upp undir 29 prósentum af stærð þeirra. Sama þróun hefur verið uppi með blandaða sjóði en heildar- eignir í stýringu þeirra hafa aukist um liðlega 29 milljarða á tímabil- inu og voru rúmlega 60 milljarðar undir lok maímánaðar. Sú aukning skýrist einkum af miklu nettó inn- flæði fjárfesta en uppsafnað nemur það meira en 20 milljörðum króna. Stærstu eigendur útgefinna hlut- deildarskírteina í blönduðum sjóð- um eru heimilin, en hlutdeild þeirra nemur um 69 prósentum og hefur aukist lítillega á undanförnu ári. Velta á hlutabréfamarkaði í Kauphöllinni hefur aukist veru- lega að undanförnu en á fyrstu sex mánuðum þessa árs var hún um 510 milljarðar. Það jafngildir um 57 prósenta aukningu frá sama tíma- bili fyrir ári. ■ Hlutabréfasjóðir hafa nær tvöfaldast að stærð á einu ári   41 Eign heimila í íslensk- um hlutabréfasjóðum nam um 41 milljarði króna í lok maí á þessu ári. Líftæknifyrirtækið gæti verið skráð á markað í Kauphöllina hér heima í haust en áformað er að sækja um 150 til 175 milljónir dala í gegnum hluta- fjárútboð. Eiga í viðræðum við Landsbankann og Arion banka sem yrðu þá innlendir ráðgjafar félagsins við skrán- ingarferli Alvotech. hordur@frettabladid.is Stjórnendur líftæknifyrirtækisins Alvotech skoða nú alvarlega þann valkost að félagið verði einnig skráð á hlutabréfamarkað á Íslandi sam- tímis skráningu í kauphöll í Banda- ríkjunum næstkomandi haust. Samkvæmt heimildum Mark- aðarins horfir félagið til þess að sækja sér um 150 til 175 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 18 til 22 milljarða íslenskra króna, með hlutafjárútboði í aðdraganda skráningarinnar, sem yrði þá bæði frá erlendum og innlendum fjár- festum. Sú fjármögnun kæmi til viðbótar við um 250 milljónir dala sem Alvotech hyggst vera búið að tryggja sér frá erlendum fjárfestum í gegnum svonefnt sérhæft yfirtöku- félag (e. SPAC) á bandaríska markað- inum. Áætlað er að tilkynnt verði um skráningaráform Alvotech vestan- hafs í næsta mánuði og að áskrifta- söfnun vegna hlutafjárútboðsins hefjist á komandi vikum, að sögn þeirra sem þekkja vel til. Stefnt er að skráningu félagsins í annaðhvort bandarísku kauphöllina Nasdaq eða Kauphöllina í New York (NYSE) sem gæti þá orðið að veruleika í október á þessu ári. Ef áform Alvotech um tvískrán- ingu í Bandaríkjunum og á Íslandi ganga eftir, verða Landsbankinn og Arion banki fengnir sem ráðgjafar við skráningu og hlutafjárútboð hér innanlands, samkvæmt heimildum Markaðarins. Bankarnir vinna nú að því að meta mögulega eftirspurn frá íslenskum stofnana- og fagfjár- festum en ljóst þykir að það fjár- magn sem Alvotech hyggst afla sér í gegnum slíkt hlutafjárútboð verður að stærstum hluta frá erlendum fjárfestum. Forsvarsmenn Alvotech, sem er stýrt af Róberti Wessman, stofn- anda félagsins, sögðust ekki geta tjáð sig um skráningarferlið á þessu stigi málsins. Upphaf lega stóð til af hálfu stjórnenda Alvotech að skrá félagið á markað í Asíu, en horfið var frá því fyrr á árinu og þess í stað einblínt á Bandaríkjamarkað. Þá ákvörðun má einkum rekja til uppgangs sér- hæfðra yfirtökufélaga vestanhafs en mörg þeirra einblína á yfirtöku á líftæknifyrirtækjum. Sú fjármögnun sem Alvotech stefnir að því að safna sér í gegnum slíkt yfirtökufélag, verður á sam- bærilegu gengi og þegar hluti eig- enda breytanlegra skuldabréfa að fjárhæð 106 milljóna dala nýttu rétt sinn til að breyta þeim bréfum í hlutafé í líftæknifyrirtækinu, sem verðmat það á jafnvirði um 300 milljarða íslenskra króna. Fram- kvæmd þess útboðs var í höndum Morgan Stanley og Arion banka. Innlendir fjárfestar, sem eru ekki hluti af stjórnendateymi lyfjafyrir- tækisins, komu í fyrsta sinn inn í hluthafahóp Alvotech fyrr í vetur, þegar félagið sótti sér um 100 millj- ónir dala í lokuðu hlutafjárútboði. Íslensku fjárfestarnir, sem voru Stefnir tryggingafélag, Hvalur og Líf- eyrissjóður Vestmannaeyja, lögðu Alvotech þá til um 2 milljarða króna sem tryggði þeim liðlega hálfs pró- sents eignarhlut í félaginu. Alvotech vinnur að þróun sjö líf- tæknilyfja, þar á meðal hliðstæðu- lyfsins Humira, sem er söluhæsta lyf heims. Á næstu árum renna mörg einkaleyfi líftæknilyfja út, sem skapar tækifæri fyrir fyrir- tæki á borð við Alvotech til að setja sambærileg lyf á markað. Í viðtali við Markaðinn í síðasta mánuði sagði Róbert að áfangagreiðslur, sem kveðið er á um í þeim fjölda samninga sem Alvotech hefur gert um sölu og dreifingu, geti skilað félaginu allt að 130 milljarða króna tekjum á næstu árum. Alvotech er í meirihlutaeigu Aztiq Pharma, fjárfestingafélags Róberts. Þá er systurfélagið Alvogen stór hluthafi, en þar eru fyrir fjárfest- ingasjóðirnir CVC Capital Manage- ment og Temasek. ■ Alvotech skoðar tvískráningu á Íslandi og í Bandaríkjunum  Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. MYND/AÐSEND 300 Alvotech var verðmet- ið á um 300 milljarða íslenskra króna þegar hluti erlendra fjárfesta skuldbreytti skulda- bréfum sínum í hlutafé í síðasta mánuði. MARKAÐURINN2 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.