Fréttablaðið - 07.07.2021, Síða 16
ÁTVR
hefur lýst
þeirri
afstöðu
sinni að
starfsemi
vefverslan-
anna
standist
ekki lög og
æskilegt
væri að fá
staðfest-
ingu dóm-
stóla á því.
Úr svari ÁTVR.
ÁTVR horfir fram á gjör-
breytt samkeppnisumhverfi
ef netverslanir geta afhent
áfengi beint til neytenda af
innlendum lager. Tilraunir
ríkisfyrirtækisins til að koma
í veg fyrir slíka starfsemi hafa
enn ekki skilað árangri.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
gæti séð fram á harða samkeppni á
næstu árum jafnvel þó að lagafrum-
vörp sem miða að auknu frjálsræði í
sölu áfengis nái ekki fram að ganga.
Enn sem komið er hefur ríkisfyrir-
tækið ekki náð að kveða niður net-
verslun sem býður upp á afhend-
ingu samdægurs og lægra verð, og
eftir því sem tíminn líður verður
æ líklegra að fleiri fyrirtæki fylgi í
kjölfarið.
Franska fyrirtækið Santewines
SAS, sem er í eigu Arnars Sigurðs-
sonar, opnaði í byrjun maí netversl-
unina sante.is þar sem viðskipta-
vinir geta keypt áfengi og fengið það
afhent af lager hér á landi um leið
og kaupin hafa átt sér stað. Þannig
gat almenningur í fyrsta sinn keypt
áfengi af innlendum vörulager án
milligöngu Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins.
ÁTVR brást hart við framtakinu og
lagði fram kröfu um lögbann á starf-
semina auk þess að kæra til lögreglu.
Frá því var greint um miðjan maí og
í ljósi þess að lögbannskröfur eru
aðgerðir til bráðabirgða virðist því
sem ríkisfyrirtækið hafi ekki haft
erindi sem erfiði. Sömuleiðis virðist
ákærusvið lögreglu ekki hafa talið
lagagrundvöll til inngripa.
Í byrjun júní tilkynnti ÁTVR starf-
semi Sante til Sýslumannsins á höf-
uðborgarsvæðinu og krafðist þess
að hafið yrði áminningarferli vegna
meintra brota Sante sem gæti endað
með leyfissviptingu ef fyrirtækið
yrði „uppvíst að frekari vanrækslu“.
„Einokunarverslun er rekstur
sem byggir á valdboði,“ segir Arnar
Sigurðsson, eigandi Santewines.
„Því kemur ekki á óvart að stofnunin
leitaði eftir liðsinni frá lögreglu og
síðan sýslumanni til að ná nýfengnu
valfrelsi af almenningi sem vill haga
sinni verslun eftir eigin hentugleika
en ekki einokunarinnar.“
Fram kom í rökstuðningi ÁTVR
að brýnt væri að sporna strax við
þessari starfsemi í ljósi þess að aðrir
áfengisbirgjar fylgdust grannt með
viðbrögðum hins opinbera og þeir
væru reiðubúnir að fylgja í kjölfarið.
Haft var eftir forsvarsmanni stórs
áfengisinnflytjanda að hann myndi
fara sömu leið ef yfirvöld myndu
ekki bregðast við.
Íslenska félagið Sante ehf. flytur
inn áfengi í eigin nafni, selur það til
franska félagsins Santewines SAS
sem síðan selur það áfram til neyt-
enda í gegnum vefverslunina sante.
is. Áfengið er svo afgreitt beint af
lager í húsnæði Sante ehf., á svoköll-
uðum dropp stöðum eða sent heim.
Viðskiptin við hið erlenda félag
eru að mati ÁTVR „augljós mála-
ÁTVR í vandræðum með nýja samkeppni
Áfengissala ÁTVR í júní nam um 2.365 þúsundum lítra í samanburði við 2.400 þúsundir lítra árið 2020, sem er um 1,5 prósents minnkun í sölu á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
thorsteinn
@frettabladid.is
myndagerningur“, að því er kemur
fram í tilkynningunni sem var send
sýslumanni. Augljóst sé að varan
yfirgefi ekki lager leyfishafans,
Sante ehf., áður en hún er afhent
neytendum.
„Það er fálmkennt að hengja sig á
aukaatriði,“ segir Arnar Sigurðsson.
„Þeir sem hafa leyfi til að framleiða
eða f lytja inn vín í atvinnuskyni
undirgangast skilyrði sem sett eru í
áfengislögum og þar stendur skýrt og
skorinort að við megum selja áfengi
úr landi. Í ákvæðinu er ekki minnst
á afhendingu og hvergi er fjallað um
lagerhald.“
„Þess má geta,“ bætir Arnar við,
„að allar vörur sem einokunar-
félagið sjálft selur, millilenda líka í
íslenskum vöruhúsum og því alls-
endis óskiljanlegt hvernig slíkt geti
varðað við lög.“
Arnar bendir á að ÁTVR hafi um
nokkurt skeið og „óafvitandi“ búið
við samkeppni frá erlendum net-
verslunum.
MARKAÐURINN4 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR