Fréttablaðið - 07.07.2021, Qupperneq 20
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
MIÐVIKUDAGUR 7. júlí 2021FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Þorsteinn
Friðrik
Halldórsson
n Skoðun
Það heyrðist ekkert frá Húsi
atvinnulífsins nema eitt-
hvert tuð um að Seðla-
bankinn hefði allt í einu
fengið heimild til að setja
á fjármagnshöft.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari saman
í sátt við umhverfið
hordur@frettabladid.is
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) jók
verulega við eignarhlut sinn í Símanum í júní með
kaupum á 128,2 milljónum hluta að nafnvirði, eða
sem jafngildir um 1,7 prósenta hlut. Áætla má að
LSR hafi því keypt fyrir samtals liðlega 1.300 millj-
ónir króna, sé litið til þróunar á gengi bréfa félagsins
í liðnum mánuði, en sjóðurinn er nú orðinn næst
stærsti hluthafinn með 11,9 prósenta eignarhlut,
samkvæmt nýjum lista yfir 20 stærstu eigendur.
Á sama tíma minnkuðu Gildi og Lífeyrissjóður
verslunarmanna (LIVE) við sig í félaginu með því að
selja samanlagt um 2,8 prósenta eignarhlut fyrir á
þriðja milljarð. Auk LSR bættu Brú lífeyrissjóður og
Akta stokkur við sig í Símanum í liðnum mánuði.
Stærsti hluthafi Símans eru Stoðir með rúmlega
15 prósenta hlut. Hlutabréfaverð félagsins hefur
hækkað um 39 prósent frá áramótum. Í lok apríl
greindi Síminn frá því að ráðnir hefðu verið inn-
lendir og erlendir ráðgjafar til að kanna meðal ann-
ars mögulega sölu á Mílu, dótturfélagi Símans. n
LSR bætir við sig í Símanum fyrir 1.300 milljónir
*
Með því að auglýsa í Fréttablaðinu og
á frettabladid.is nærðu til rétta fólksins.
* Skv. Neyslukönnun Gallup. ** Íbúar á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 35–65 ára lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali, skv. prentmælingum Gallup.
Það eru skýr skil á milli íhalds-
semi annars vegar og aftur-
haldssemi hins vegar. Íhalds-
maður leitast við að varðveita
það sem reynst hefur samfélagi
hans vel og geldur varhug við
því að fara geyst í breytingar að
illa ígrunduðu máli. Oft er það
þannig að það sem glatast er
ekki afturkræft. Hinn aftur-
haldssami er tortrygginn gagn-
vart hvers konar breytingum
vegna þess að hann óttast hið
óþekkta. Hann hefði brugðist
ókvæða við þegar einokun
ríkisins á mjólkursölu var lögð
af. Þessum greinarmun þarf
að halda til haga í umræðu
um Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins.
Það er einfaldlega fátt við
ÁTVR sem vert er varðveita
og engan þarf að undra þegar
um ræðir ríkisfyrirtæki sem
hefur verið í einokunarstöðu í
hartnær hundrað ár. ÁTVR er
ríki í ríkinu sem hefur þann
helsta tilgang að standa vörð
um tilvist sína. Eða hvað annað
getur skýrt tregðu ÁTVR til að
aðgreina kostnað vegna áfengis-
sölu annars vegar og tóbakssölu
hins vegar? Ítrekað hefur verið
bent á að svo virðist sem hagn-
aður af tóbakssölu niðurgreiði
tapið af áfengissölu.
Öllum er ljóst, jafnvel stjórn-
endum ÁTVR, sem fullyrtu
að forsendur fyrir rekstri
fyrirtækisins myndu að „öllum
líkindum bresta“ ef brugghús-
frumvarpið svokallaða yrði
samþykkt, að fjöldi neytenda
myndi leita annað ef þeir hefðu
val. Lítið er að marka hátt skor
í ánægjukönnunum þegar
valfrelsi neytenda er talið for-
sendubrestur.
Sala Santewines frá því að fyr-
irtækið hóf að afhenda áfengi
beint af lager fyrir tveimur
mánuðum síðan hefur hlaupið
á hundruðum milljóna króna.
Eins og eigandi Sante benti á
í samtali við Markaðinn datt
einokunarfyrirtækinu ekki í
hug að bregðast við samkeppni
með hefðbundnum hætti, til
dæmis að lækka verð, bæta
þjónustu eða auka úrval. Vald-
boði skal beitt til þess að ryðja
keppinautum úr vegi.
En neytendur hafa fengið
smjörþefinn af frjálsri verslun
með áfengi og þá verður ekki
aftur snúið. n
Hundrað ára
einokun