Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 36
Það er um að gera
að láta ferðagjöfina
ekki renna út og nota
hana til að kaupa gjafa-
bréf hjá félaginu.
Kristján Páll Rafnsson.
Æðislegar uppskriftir sem
henta vel á þessum árs-
tíma þegar kólnar í veðri.
Þetta er franskur pottréttur
sem einfalt er að gera og er
einstaklega bragðgóður og
bláberjabaka í eftirrétt. Upp-
skriftirnar miðast við fjóra.
elin@frettabladid.is
Það er alltaf gaman að prófa nýja
rétti. Þessi franski kjúklingaréttur
er einstaklega ljúffengur.
Franskur kjúklingaréttur
1,8 kg heill kjúklingur
2 msk. hveiti
Salt og pipar
250 ml riesling hvítvín (ekki mjög
sætt, má líka nota rauðvín)
2 skallottlaukar, skornir í fjóra
hluta
20 perlulaukar
2 msk. tómatpúrra
200 ml rjómi
16-20 kastaníusveppir
500 g kjúklinga- eða nautasoð
50 ml ólífuolía
Búnt af ferskri tarragon, smátt
skorið (sama og estragon eða
fáfnisgras)
25 g smjör
Skerið kjúklinginn í átta bita.
Veltið lauslega upp úr hveiti. Saltið
og piprið. Hitið olíu á stórri, djúpri
pönnu og steikið kjúklinginn
á meðalhita og eldið á báðum
hliðum í nokkrar mínútur eða
þangað til skinnið verður gullin-
brúnt. Takið til hliðar.
Notið sömu pönnu áfram og
steikið laukinn og sveppina. Setjið
tómatpúrru saman við og síðan
vínið. Látið suðuna koma upp og
bætið síðan soðinu saman við.
Þegar allt hefur blandast vel saman
er rjómanum bætt við ásamt tarra-
gonkryddinu og smjörinu. Skiljið
smávegis eftir til að nota sem
skraut í lokin. Setjið kjúklinginn
í sósuna og látið allt malla í 50
mínútur. Má líka setja í ofn.
Með réttinum er borin fram
kartöflumús sem upplagt er að
útbúa á meðan rétturinn mallar.
Þegar rétturinn er borinn fram er
hann skreyttur með tarragon.
Bláberjabaka
Hér er mjög góð uppskrift að
bláberjaböku sem er dásamlegur
eftirréttur.
Margir hafa verið í berjamó að
undanförnu og þess vegna ekki
úr vegi að nota berin í svona sæl-
kerabakstur. Það má auðvitað líka
nota bláber úr frysti eða þau sem
fást í verslunum.
Botninn
1 vanillustöng
Rifinn börkur af hálfri sítrónu
160 g hveiti
60 g sykur
85 g smjör
1 egg
Fylling
1 egg
1 dl sykur
1 dl rjómi
3 dl bláber
Punt
1 dl bláber
2 msk. sykur
Kljúfið vanillustöngina í tvennt
og skrapið út fræin með litlum
hníf. Rífið sítrónubörkinn. Setjið
börkinn og vanillufræin í mat-
vinnsluvél áamt hveiti, sykri og
smjöri og hnoðið. Bætið við egginu
og hnoðið áfram. Pakkið deiginu
inn í plastfilmu og geymið í ísskáp
í að minnsta kosti 20 mínútur.
Fletjið deigið út á milli tveggja
laga af bökunarpappír. Deigið á
að vera 2-3 mm á þykkt. Smyrjið
bökuform sem er 20 cm og klæðið
það með deiginu. Skerið frá það
sem fer út fyrir barmana. Pikkið
deigið með gaffli og setjið í ísskáp
í 10 mínútur. Hitið ofninn í 180°C.
Bakið botninn í 10 mínútur. Kælið.
Þeytið egg, sykur og rjóma.
Fyllið botninn með bláberjum og
hellið síðan blöndunni yfir. Bakið
áfram í 25-30 mínútur við 180°C.
Kælið.
Skreytið bökuna með bláberjum
og dreifið smá sykri yfir. Vanilluís
passar mjög vel með bökunni. ■
Dásamlegir réttir fyrir matgæðinga
Franskur kjúklingaréttur sem einfalt er að gera. Einstaklega ljúffengur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Bláberjabaka með vanilluís. Hvað er hægt að fá betra í eftirrétt?
Fish Partner var stofnað árið
2013 og einblíndi aðallega á
silungsveiði til að byrja með.
Síðan hefur félagið þróast
og innan þess er fluguveiði-
akademía og fjölmennt
veiðimannasamfélag með
ýmsum fríðindum.
Kristján Páll Rafnsson stofnaði
Fish Partner upphaflega sem smá
hliðarverkefni samhliða annarri
vinnu en félagið greip fljótt hug
hans allan og er nú hans aðalstarfs.
„Upphaflega var fókusinn á sil-
ungsveiði af því það var enginn að
kynna hana á almennum markaði
á þeim tíma. Ekki eins og við
höfum gert,“ segir Kristján Páll.
„Félagið hefur gengið mjög vel og
hefur vaxið og dafnað. Við erum
búnir að taka í notkun fullt af
óþekktum veiðisvæðum og höfum
þannig skapað tekjur úr engu, sem
er mjög jákvætt bæði fyrir okkur,
landeigendur og veiðimenn.“
Kristján Páll segir að þrátt fyrir
að þeirra áhersla sé á silungsveiði
sé ekkert launungarmál að þeir hjá
Fish Partner hafi verið að reyna að
ná laxveiðiá.
„Við höfum tekið þátt í útboðum
en ekki náð stórum bita. En við
höfum farið nýjar leiðir og fetað í
önnur fótspor en aðrir. Við höfum
til dæmis stofnaði veiðimanna-
samfélagið Veiðifélagar. Það er
bæði veiðiklúbbur, afsláttarklúbb-
ur og félagsstarfsemi,“ segir hann.
„Meðlimir í Veiðifélögum fá
frítt veiðileyfi í fjölda vatna og fá
afslátt hér og þar, bæði af vörum
frá Fish Partner og hjá samstarfs-
aðilum um allt land. Stefna
Veiðifélaga er að verða stærstu
veiðfélagasamtök á Íslandi. Ég tel
okkur vera á góðri leið með að ná
því.“
Vötnin sem Veiðifélagar veiða
frítt í á þessu ári eru eftirfarandi:
n Laxárvatn í Húnavatnssýslu
n Þórisstaðavatn
n Geitabergsvatn og Eyrarvatn í
Svínadal
n Vesturhópsvatn
n Langavatn á Héraði
n Blautulón
n Reykjavatn og Reyká
n Dómadalsvatn
n Herbjarnarfellsvatn
n Fellsendavatn og Blönduvatn.
Kristján Páll segir hægt að veiða á
flestum þessum svæðum út sept-
ember og hvetur Veiðifélaga til að
nýta sér það.
„Það er líka um að gera að láta
ferðagjöfina ekki renna út og nota
hana til að kaupa gjafabréf hjá
félaginu,“ segir hann.
Viðskiptamódel Fish Partner er
Elskum alla og þjónum öllum
Silungs-
veiði hefur
verið mjög góð
í sumar og núna
er sjóbirtings-
veiðin á fullu
skriði.
MYND/AÐSEND
allt öðru vísi en hjá sambærilegum
félögum að sögn Kristjáns Páls.
„Við erum með venjulega veiði-
leyfasölu, en við erum líka með
Íslensku fluguveiðiakademíuna.
Það er veiðiskóli þar sem við
höfum boðið upp á innanhúss
flugukastkennslu yfir vetrar-
mánuðina. Við höfum líka boðið
upp á fluguhnýtinganámskeið
fyrir byrjendur og lengra komna,
námskeið í stangarsmíði, veiðiljós-
myndum og alls konar fyrirlestra,“
segir hann.
„Við stefnum á að halda þessu
áfram og styrkja og efla starfið.
Námskeiðin hafa verið mjög vin-
sæl og það hefur verið uppselt í þau
nánast öll.“
Góð silungsveiði í sumar
Kristján Páll segir að sumarið hafi
gengið prýðilega og orðið algjör
viðsnúningur frá síðasta sumri þar
sem veltan fór niður um alveg 50
prósent.
„Það var Covid-sumar og 50 pró-
sent af okkar kúnnum eru erlendir
veiðimenn, svo þetta sumar var
ekkert auðvelt. En sumarið í ár
hefur gengið vel,“ segir hann.
Þrátt fyrir að laxveiðisumarið
hafi verið lélegt í heild sinni segir
Kristján að það hafi ekki komið
mikið niður á þeim þó að Fish
Partner selji fullt af laxveiðileyfum
í endursölu.
„Okkar kúnnar voru heilt á litið
mjög ánægðir með sumarið af
því það var alveg gríðarlega góð
silungsveiði, alveg frá því tímabilið
byrjaði og veiðin er enn góð. Núna
er sjóbirtingsveiðin á fullu skriði
og gengur vel svo heilt yfir litið var
sumarið algjör negla fyrir okkur,“
segir hann.
Kristján segir að stefna félags-
ins í framtíðinni sé að byggja það
áfram upp, stækka veiðiklúbbinn
og fjölga veiðisvæðum, hérlendis
og jafnvel erlendis.
„Það hefur alltaf verið stefna
okkar að þjónusta alla. Við seljum
ódýr veiðileyfi og dýr veiðileyfi
og allt þar á milli. Við fáum fólk
sem tjaldar uppi á heiði og veiðir
í stöðuvötnum og svo fáum við
menn sem koma á einkaþotum og
ferðast um landið í þyrlum. Okkar
hugmyndafræði er að elska alla
og þjóna öllum. Við viljum að allir
geti farið að veiða.“ ■
6 kynningarblað A L LT 11. september 2021 LAUGARDAGUR