Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Page 27
Frá setningu þingsins. (Ljósm.: Guðjón Einarsson).
23. þing B. S.R.B.
Formaður bandalagsins, Kristján Thorlacius,
setti þingið í Hagaskólanum í Reykjavík fimmtu-
daginn 17. sept. s.l. kl. 17.00 og bauð fulltrúa vel-
komna, sérstaklega minntist hann nýlátinnar for-
setafrúar, Dóru Þórhallsdóttur, og heiðraði þing-
heimur minningu hennar með því að rísa úr
sætum. Þingið fól formanni að senda samúðar-
kveðju til forseta. Ennfremur minntist hann Karls
Halldórssonar tollvarðar, er um mörg ár var for-
maður Tollvarðafélags Islands og átti um skeið
sæti í varastjórn bandalagsins.
Þingheimur heiðraði minningu hans og annarra
látinna félaga með því að rísa úr sætum.
Innlendir gestir þingsins voru frá A.S.Í., vara-
forseti þess, Eðvarð Sigurðsson, Farmanna- og
fiskimannasambandi íslands Henry Hálfdánar-
son, Samb. ísl. bankamanna, form. þess, Sig. Orn
Einarsson. Stéttasamband bænda gat ekki komið
því við að senda fulltrúa, þar sem þeir stóðu
í samningum um verð á landbúnaðarafurðum,
en þinginu bárust heillaóskir þess í skeyti.
í ávarpi sínu við þingsetningu komst form.
m. a. svo að orði:
„Að þessu sinni ákvað stjórn bandalagsins að
bjóða samtökum opinberra starfsmanna á Norð-
urlöndum að eiga áheyrnarfulltrúa á þinginu.
í sambandi við undirbúning hinna fyrstu heild-
arkjarasamninga B.S.R.B. leituðum við til þess-
ara samtaka og fengum hjá þeim margháttaðar
upplýsingar, sem komu að góðum notum.
Stjórn bandalagsins vill með því að bjóða full-
trúum frá Norðurlöndum á þetta þing sýna þakk-
lætisvott fyrir þessa mikilsverðu aðstoð og einnig
er það tilgangurinn, að samtök okkar sýni með
þessu áhuga sinn á auknu norrænu samstarfi
sambanda opinberra starfsmanna.
Eg vil í nafni þingsins láta í ljós ánægju yfir
því, að hlutaðeigandi sambönd í Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð skuli hafa séð sér
fært að þiggja boð okkar, og leyfi mér að bjóða
fulltrúa þeirra hjartanlega velkomna.
Aðalverkefni þessa þings verður að móta þá
stefnu í launamálum opinberra starfsmanna, sem
fylgt verður á næstu tveimur árum.
Rúm tvö ár eru nú liðin síðan opinberir starfs-
menn fengu takmarkaðan samningsrétt sam-
kvæmt lögum um kjarasamninga opinberra
starfsmanna. Með þeirri lagasetningu hófst nýr
þáttur í starfi samtaka okkar.
Sú stefna, sem síðasta bandalagsþing markaði
í launamálum opinberra starfsmanna, var fyrst
og fremst í því fólgin að jafnræði í kjaramálum
næðist við aðrar stéttir þjóðfélagsins.
Með heildarkjarasamningum þeim, sem gerðir
voru á s.l. ári og dómi Kjaradóms frá 3. júlí 1963,
var stigið stórt spor í þá átt.
Þann góða árangur, sem náðist, ber fyrst og
fremst að þakka því, hve giftusamlega tókst að
ÁSGARÐUR 27