Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 1
Félagið telur að með
þessu sé verið að
brjóta á neytendum og
hagsmunum þeirra.
Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB
1 8 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 1 5 . S E P T E M B E R 2 0 2 1
Bíódrottning
heiðrar RIFF
Nýjar smásögur
Þórarins
Lífið ➤ 30 Menning ➤ 25
SKANNAÐU
KÓÐANN
NÝR BÆKLINGUR
Greinaskrif draga dilk á eftir
sér. Tekist er á um hvað sé
umræða um markað og hvað
umræða um tryggingafélög.
bth@frettabladid.is
NEYTENDUR Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda (FÍB) hefur sent Fjár-
málaeftirlitinu kvörtun vegna
hagsmunagæslu Samtaka fjármála-
fyrirtækja (SFF) fyrir hönd vátrygg-
ingafélaganna. Þetta staðfestir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB.
Upphaf málsins megi rekja til
þess að FÍB benti í grein á að trygg-
ingafélögin, Sjóvá, VÍS, TM og
Vörður, stæðu fyrir okri á bílatrygg-
ingum. Framkvæmdastjóri SFF
hafi gripið til varna í svargrein sem
birtist á heimasíðu samtakanna,
þar sem bornar voru brigður á mál-
flutning FÍB og iðgjaldahækkunin
skýrð með tilliti til ýmissa þátta.
Félagið telur að með þessu sé verið
að brjóta á neytendum og hags-
munum þeirra.
Runólfur vísar meðal annars í
heimasíðu SFF þar sem segir: „SFF
er óheimilt að fara með opinbert
fyrirsvar varðandi verðlagningu
og þjónustu aðildarfélaga sinna og
getur slíkt falið í sér sjálfstætt brot á
samkeppnislögum. Tekur þetta m.a.
til umræðu á opinberum vettvangi,
um verð og verðbreytingar aðildar-
félaga og um kröfur viðskiptavina
þeirra um lægra verð eða bætt við-
skiptakjör.“
FÍB telur að Katrín Júlíusdóttir,
fyrir hönd Samtaka fjármálafyrir-
tækja, hafi brotið eigin reglur með
inngripi sínu. Málið gæti endað á
borði Samkeppniseftirlitsins.
Fréttablaðið náði ekki í Katrínu
Júlíusdóttur eftir að FÍB ákvað að
senda kvörtunina. Áður hafði blaðið
spurt hvort skrif hennar væru við-
eigandi og svaraði Katrín að hún
hefði með skrifum sínum verið að
horfa á starfsumhverfið. Hún hefði
verið að fjalla um vátrygginga-
markaðinn en ekki félögin. n
Kæra Samtök fjármálafyrirtækja
fyrir hagsmunagæslu tryggingafélaga VIÐSKIPTI Mörg fyrirtæki hafa orðið
fyrir tjóni vegna svika þar sem sótt er
um reikningsviðskipti í nafni fyrir-
tækja með gott lánshæfismat.
„Oft er um að ræða fyrirtæki með
gamlar kennitölur og í einhverjum
tilvikum hafa verið búnar til heima-
síður og síður á samfélagsmiðlum
þannig að fyrirtækið lítur út fyrir
að vera með virka starfsemi,“ segir
Guðný Hjaltadóttir, lögfræðingur
Félags atvinnurekenda. SJÁ SÍÐU 8
Svíkja út vörur með
gömlum félögum
Guðný Hjalta-
dóttir, lögfræð-
ingur Félags
atvinnurekenda
Það var létt yfir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra þar sem þær spjölluðu við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Þar upp-
lýsti Svandís að almennar fjöldatakmarkanir færu úr 200 manns og upp í 500 og að opnunartími skemmtistaða lengdist um klukkutíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK