Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 14
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Eftirmálin eru blettur á sögu Hæsta­ réttar. Of margir foreldrar eiga í basli með að uppfylla grunnþarf­ ir barna sinna. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is Einkennilega lítil umræða hefur skapast um vanhæfi hæstaréttardómara frá því á hrunárunum fyrir áratug, jafnvel þó um sé að ræða einn alvarlegasta misbrest í störfum æðsta dómstigs þjóðarinnar frá því það var sett á laggirnar fyrir einni öld og ári betur. Á þessum tíma fengu níu hæstaréttardómarar tækifæri til að svara fyrir um fjárhagsleg tengsl sín við föllnu bankana áður en þeir tóku sjálfir til við að dæma mann og annan fyrir gáleysislega stjórn á helstu peningastofnunum landsins. Fjórir svöruðu, en fimm ekki. Eftirmálin eru blettur á sögu Hæstaréttar. Í hópi þeirra sem svöruðu ekki voru einmitt dómararnir sem áttu mestu fjárhagslegu hags- munanna að gæta – og töpuðu fyrir vikið mestu á falli bankanna. Þeir sátu á þeim upplýsingum á meðan þeir dæmdu hvern sakborninginn í bankahruninu af öðrum í fangelsi. Jón Steinar Gunnlaugsson, einn þeirra fyrr- verandi hæstaréttardómara á þessum tíma sem svöruðu til um fjárhagsleg tengsl sín við gömlu bankana, hefur margsinnis gagnrýnt kollega sína frá þessum tíma – og það harðlega. Þar hefur hann reynst hrópandinn í eyðimörkinni. Hann hefur staðið einn með pennann að vopni til að vekja athygli á því að Hæstiréttur Íslands var að stórum hluta vanhæfur til að takast á við þetta einstaka, sögulega og vandmeðfarna mál í réttar- sögu landsins. Og hvers vegna skyldu aðrir hæstaréttarlög- menn fara hér með veggjum og gera upp við þessa sögu með þögninni einni saman? Má vera að löngun þeirra í dómarasæti sé gagnrýninni yfir- sterkari? Vilja þeir ekki rugga bátnum af ótta við að fá ekki stjórnað honum? Þetta eru eðlilegar spurningar. Og nauðsyn- legar. Hæstiréttur Íslands er ein meginstoðanna í regluverki Íslands. Trúverðugleiki hans skiptir sköpum í réttarríkinu. Þeir landsmenn sem setjast þar á sakabekk eiga heimtingu á að dómarar rétt- arins starfi þar af heilindum og upplýsi í öllum tilvikum hvort þeir tengist á einhvern hátt þeim dómsmálum sem tekin eru fyrir hverju sinni. Því var ekki að heilsa fyrir áratug. Þá réð leyndarhyggjan ríkjum. Og það er skammarlegt. Í uppgjöri bankahrunsins hefur þessi þáttur ekki fengið það vægi sem hann á skilið. Og það er ef til vill vegna þess að það hefur ekki verið til siðs að gjalda varhug við hlutdrægni þessa æðsta dómstigs þjóðarinnar. Sagan sýnir aftur á móti að það er full ástæða til að draga áreiðanleika hans í efa. n Skrýtin þögn 650 þúsund krónur. Það eru um 43 innkaupakerrur. Fimm ára Suzukinám á fiðlu í Tónskóla Sigursveins. 22 parkaúlpur á barnið. 1.494 skólamáltíðir. 34 sálfræði- tímar. Höfðingleg fermingarveisla. Eða bara ferð út fyrir fjölskylduna. 650 þúsund krónur. Það er upphæðin sem meðalfjöl- skylda á Íslandi fengi út úr barnabótakerfi Samfylking- arinnar á ári. Markmiðið er að stórauka stuðning við barnafjölskyldur og tryggja að öll börn fái jöfn tækifæri óháð efnahag. Of margir foreldrar eiga í basli með að uppfylla grunnþarfir barna sinna, eru kannski einni heimsókn til sálfræðings eða týndri skólaúlpu frá því að lenda í vandræðum með að borga reikninga um mánaða- mótin. Þá er það er staðreynd að alltof mörg börn hafa ekki aðgang að tómstundum. Og hvernig ætlar Samfylkingin að tryggja jöfn tæki- færi barna? Með því að borga fleiri fjölskyldum hærri barnabætur í hverjum mánuði. Tökum dæmi. Par á meðallaunum með tvö börn fengi 54 þúsund krónur mánaðarlega. Það eru um 650 þúsund á ári. Einstætt foreldri með tvö börn fengi 77 þúsund krónur á mánuði. Það eru 924 þúsund á ári. Það munar um minna á flestum heimilum. Nýtt barnabótakerfi Samfylkingarinnar (fjármagnað með upptöku stóreignaskatts á hreina eign yfir 200 milljónir) yrði ein stærsta skattatilfærsla til lág- og milli- tekjufólks sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Almennar barnabætur sem eru óskertar upp að meðallaunum er velferðarmál en það er líka góð hagstjórn að veita for- eldrum andrými og fjárfesta í hag barna til lengri tíma. Ef við ætlum að stórauka stuðning við barnafjöl- skyldur og taka upp norrænt barnabótakerfi – þurfum við aðra ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem berst með kjafti og klóm fyrir betra lífi fyrir þig – þína fjölskyldu – og komandi kynslóðir. Í stað þeirrar sem fagnar óbreyttu ástandi sem „stöðugleika“. Atkvæði til Samfylkingarinnar er atkvæði til foreldra og barna. n 650 þúsund Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar - heimur fágaðra möguleika www.modern.is FAXAFEN 10 · 108 REYKJAVÍK · 534 7777 - ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR AF PÖNTUNUM SVO ÞÚ FÁIR HÚSGÖGNIN ÖRUGGLEGA HEIM FYRIR JÓLIN dagur til jóla!1 7. - 16. SEPTEMBER  kristinnhaukur@frettabladid.is Truflun Flestir sem Fréttablaðið hefur rætt við eru á þeirri skoðun að yfirstandandi kosninga- barátta sé sú leiðinlegasta í manna minnum, jafnvel frá landnámi. Einkennist hún helst af innihaldslausum slagorðum sem óumbeðið er troðið inn í Youtube-dagskrána. Það eina sem var greipt í minni fólks eftir leiðtogaumræðurnar í sjónvarpinu var að einn þeirra virtist áberandi ölvaður og reif kjaft. Það sem bíður okkar eftir kosningar er þing með enn fleiri f lokkum. Fleiri f lokkum sem þurfa pening úr okkar vasa til að trufla Youtube-dagskrána. Einmitt Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hættur að styðja ríkisstjórnina ef ekki væri stutt í kosningar. Er það vegna friðlýsinga umhverf- isráðherra. Er trúlegt að Jón hefði gerst villiköttur á miðju kjörtímabili eða er þetta tilraun til að afla fylgis við ysta hægrið? Vitaskuld er hið síðara rétt því ef eitthvað væri að marka þetta myndi Jón einfaldlega hætta að styðja stjórnina og neita frekara samstarfi við VG. Hvorugt gerir hann því að hann veit að nái stjórnin meirihluta mun hún halda áfram. Og ekki mun heyr- ast mjálm í Jóni, nema kannski fyrir þarnæstu kosningar. n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 15. september 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.