Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 41
Umfjöllun er heiti á nýju smá­ sagnasafni eftir Þórarin Eld­ járn en það geymir átta sögur. „Það eru 40 ár síðan ég gaf út fyrsta smásagnasafnið mitt, Ofsögum sagt, og Ari sonur minn varð fertug­ ur um daginn, 1981 er því merkis­ ár í fjölskyldunni,“ segir Þórarinn. „Þetta er áttunda smásagnasafnið mitt þannig að ég virðist senda frá mér smásagnasafn á um það bil fimm ára fresti.“ Þórarinn hefur lagst í enn meiri tölfræði. „Ég taldi smásögurnar sem hafa birst í þessum bókum, þær eru 92, langar og stuttar. Ég þarf endi­ lega að koma þeim í þriggja stafa tölu áður en yfir lýkur. Ef maður deilir þessum 92 sögum niður á 40 ár þá eru þetta rétt rúmlega tvær smásögur á ári. Það eru engin afköst og úr því verður að bæta.“ Eðli skáldskaparins Sögurnar gerast á ýmsum tímum og umfjöllunarefnið er fjölbreytt. Ein sagan fjallar um skáldið og nátt­ úrufræðinginn Eggert Ólafsson sem drukknaði í Breiðafirði árið 1768 ásamt konu sinni. „Kveikjan var sú að fyrir mörgum árum hitti ég mann sem sagði mér frá atburði tengdum þeim hjónum, þar sem örn kemur við sögu. Hann hafði lesið eftir mig arnarsögu og taldi því rétt að gefa mér þessa sögu til brúks. Svo liðu öll þessi ár þar til ég áttaði mig loks á því hvernig ég gæti nýtt hana.“ Önnur saga, Máttur skáldskapar­ ins, fjallar um Þórð malakoff og enn önnur um leikritahöfundinn August Strindberg. „Þá sögu spinn ég út frá vissum heimildum um að litlu hafi munað að Strindberg yrði sendur sem blaðamaður til Íslands á þjóðhátíðina 1874. Sænskur fræði­ maður sagði í ritgerð að þar hefðu Svíar misst af góðri Íslandslýsingu. Ég sendi Strindberg í þessa ferð en það er spurning hversu góð þessi Íslandslýsing er því ég læt hann upp­ lifa margt mjög einkennilegt.“ Lengsta sagan í bókinni heitir Úr sögu Bobbsambandsins. Sagan Heldur tryggð við smásagnaformið Þórarinn Eldjárn sendir frá sér áttunda smá- sagnasafn sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is fjallar um skólabræður og virkar svo raunveruleg að blaðamaður spyr Þórarin hvort hún sé sannsöguleg. „Nei, ekki nema á þann hátt að þar er alls konar góssi blandað og víxlað, sönnu og lognu. Þar er til dæmis spilað bobb, sem er eins konar barna­ eða fátækrabilljard. Ýmiss konar smælki brúkað sem tengist hefðbundinni skólagöngu í Vesturbænum og MR, hellt saman hinu og þessu og upp af því sprettur eitthvað sem aldrei gerðist. Þannig er nú eðli skáldskaparins.“ Sonurinn gerði kápuna Stundum er sagt að smásagan eigi undir högg að sækja, en það er ekki reynsla Þórarins. „Þetta er form sem ég hef alltaf haldið tryggð við með öðru, því mér finnst það henta mér vel. Smásaga kviknar oft út frá til­ tölulega einföldum hugmyndum eða þá að maður getur skrúfað saman element úr ótal áttum sem yrði kannski erfitt að leiða til lykta í skáldsögu.“ Um heiti smásagnasafnsins, Umfjöllun, segir Þórarinn: „Ég tók eftir því þegar ég leit yfir sögurnar að þær fjalla allar um eitthvað. Menn gefa oft út bækur með lát­ lausum og heiðarlegum titlum eins og Sögur eða Kvæði. Því ekki alveg eins Umfjöllun? Halldór sonur minn gerði kápuna og leggur út af þessu á sérstakan hátt. Þar er endur­ raðað reykvískri borg og norðlensk fjöll höfð í bakgrunni. Þar hefur sem sé verið umfjallað.“ n Ég tók eftir því þegar ég leit yfir sögurnar að þær fjalla allar um eitthvað. kolbrunb@frettabladid.is Hernámsæska í tröllahöndum er yfirskrift f léttu Borgarsögu­ safns sem fram fer á Ljósmynda­ safni Reykjavíkur fimmtudaginn 16. september klukkan 16.30. Þar stendur yfir sýning um ljósmynda­ feril Sigurhans Vignis sem ber heitið Hið þögla en göfuga mál. Langi Seli og skuggarnir skemmta gestum eftir erindið. Að þessu sinni mun Leif ur Reynisson sagnfræðingur fjalla um æskuna um og upp úr stríðsár­ unum. Leifur gerir grein fyrir því hvernig æskan varð til sem sjálf­ stæður þjóðfélagshópur með eigin menningareinkenni, en tímabilið sem um ræðir nær frá hernámi til rokks og hefur hann sér til full­ tingis ljósmyndir úr safni Sigur­ hans Vignis. n Hernámsæska í tröllahöndum Fjallað verður um æskuna um og upp úr stríðsárunum. Leifur gerir grein fyrir því hvernig æskan varð til sem sjálfstæður þjóðfélagshópur. Félagsfundur VR Félagsfundur VR verður haldinn rafrænt miðvikudaginn 22. september kl. 18:30. Fundarefni er kosning fulltrúa félagsins til setu á 32. sambands þingi Landssambands íslenzkra verzlunar manna sem fer fram rafrænt, 14. október næstkomandi. Skráning fer fram á vr.is VR | Kringlunni 7 | 103 Reykjavík | Sími 510 1700 | vr@vr.is | vr.is Frettir 25FRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 15. september 2021

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.