Fréttablaðið - 15.09.2021, Síða 41
Umfjöllun er heiti á nýju smá
sagnasafni eftir Þórarin Eld
járn en það geymir átta sögur.
„Það eru 40 ár síðan ég gaf út fyrsta
smásagnasafnið mitt, Ofsögum
sagt, og Ari sonur minn varð fertug
ur um daginn, 1981 er því merkis
ár í fjölskyldunni,“ segir Þórarinn.
„Þetta er áttunda smásagnasafnið
mitt þannig að ég virðist senda frá
mér smásagnasafn á um það bil
fimm ára fresti.“
Þórarinn hefur lagst í enn meiri
tölfræði. „Ég taldi smásögurnar sem
hafa birst í þessum bókum, þær eru
92, langar og stuttar. Ég þarf endi
lega að koma þeim í þriggja stafa
tölu áður en yfir lýkur. Ef maður
deilir þessum 92 sögum niður á 40
ár þá eru þetta rétt rúmlega tvær
smásögur á ári. Það eru engin afköst
og úr því verður að bæta.“
Eðli skáldskaparins
Sögurnar gerast á ýmsum tímum og
umfjöllunarefnið er fjölbreytt. Ein
sagan fjallar um skáldið og nátt
úrufræðinginn Eggert Ólafsson
sem drukknaði í Breiðafirði árið
1768 ásamt konu sinni. „Kveikjan
var sú að fyrir mörgum árum hitti
ég mann sem sagði mér frá atburði
tengdum þeim hjónum, þar sem
örn kemur við sögu. Hann hafði
lesið eftir mig arnarsögu og taldi
því rétt að gefa mér þessa sögu til
brúks. Svo liðu öll þessi ár þar til ég
áttaði mig loks á því hvernig ég gæti
nýtt hana.“
Önnur saga, Máttur skáldskapar
ins, fjallar um Þórð malakoff og
enn önnur um leikritahöfundinn
August Strindberg. „Þá sögu spinn
ég út frá vissum heimildum um að
litlu hafi munað að Strindberg yrði
sendur sem blaðamaður til Íslands
á þjóðhátíðina 1874. Sænskur fræði
maður sagði í ritgerð að þar hefðu
Svíar misst af góðri Íslandslýsingu.
Ég sendi Strindberg í þessa ferð en
það er spurning hversu góð þessi
Íslandslýsing er því ég læt hann upp
lifa margt mjög einkennilegt.“
Lengsta sagan í bókinni heitir
Úr sögu Bobbsambandsins. Sagan
Heldur tryggð við smásagnaformið
Þórarinn Eldjárn
sendir frá sér
áttunda smá-
sagnasafn sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
fjallar um skólabræður og virkar svo
raunveruleg að blaðamaður spyr
Þórarin hvort hún sé sannsöguleg.
„Nei, ekki nema á þann hátt að
þar er alls konar góssi blandað og
víxlað, sönnu og lognu. Þar er til
dæmis spilað bobb, sem er eins
konar barna eða fátækrabilljard.
Ýmiss konar smælki brúkað sem
tengist hefðbundinni skólagöngu í
Vesturbænum og MR, hellt saman
hinu og þessu og upp af því sprettur
eitthvað sem aldrei gerðist. Þannig
er nú eðli skáldskaparins.“
Sonurinn gerði kápuna
Stundum er sagt að smásagan eigi
undir högg að sækja, en það er ekki
reynsla Þórarins. „Þetta er form sem
ég hef alltaf haldið tryggð við með
öðru, því mér finnst það henta mér
vel. Smásaga kviknar oft út frá til
tölulega einföldum hugmyndum
eða þá að maður getur skrúfað
saman element úr ótal áttum sem
yrði kannski erfitt að leiða til lykta
í skáldsögu.“
Um heiti smásagnasafnsins,
Umfjöllun, segir Þórarinn: „Ég tók
eftir því þegar ég leit yfir sögurnar
að þær fjalla allar um eitthvað.
Menn gefa oft út bækur með lát
lausum og heiðarlegum titlum eins
og Sögur eða Kvæði. Því ekki alveg
eins Umfjöllun? Halldór sonur
minn gerði kápuna og leggur út af
þessu á sérstakan hátt. Þar er endur
raðað reykvískri borg og norðlensk
fjöll höfð í bakgrunni. Þar hefur sem
sé verið umfjallað.“ n
Ég tók eftir því þegar
ég leit yfir sögurnar að
þær fjalla allar um
eitthvað.
kolbrunb@frettabladid.is
Hernámsæska í tröllahöndum
er yfirskrift f léttu Borgarsögu
safns sem fram fer á Ljósmynda
safni Reykjavíkur fimmtudaginn
16. september klukkan 16.30. Þar
stendur yfir sýning um ljósmynda
feril Sigurhans Vignis sem ber heitið
Hið þögla en göfuga mál. Langi Seli
og skuggarnir skemmta gestum eftir
erindið.
Að þessu sinni mun Leif ur
Reynisson sagnfræðingur fjalla
um æskuna um og upp úr stríðsár
unum. Leifur gerir grein fyrir því
hvernig æskan varð til sem sjálf
stæður þjóðfélagshópur með eigin
menningareinkenni, en tímabilið
sem um ræðir nær frá hernámi til
rokks og hefur hann sér til full
tingis ljósmyndir úr safni Sigur
hans Vignis. n
Hernámsæska í tröllahöndum
Fjallað verður um æskuna um og upp úr stríðsárunum.
Leifur gerir grein fyrir
því hvernig æskan
varð til sem sjálfstæður
þjóðfélagshópur.
Félagsfundur VR
Félagsfundur VR verður haldinn rafrænt
miðvikudaginn 22. september kl. 18:30.
Fundarefni er kosning fulltrúa félagsins til setu á
32. sambands þingi Landssambands íslenzkra verzlunar manna
sem fer fram rafrænt, 14. október næstkomandi.
Skráning fer fram á vr.is
VR | Kringlunni 7 | 103 Reykjavík | Sími 510 1700 | vr@vr.is | vr.is
Frettir 25FRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 15. september 2021