Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 2
Á þessum háannatíma hefur viðbótarfólk oft komið inn en það er erfitt að fá það inn núna. Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna Farangursbeltunum verður skipt út fyrir hallandi belti. Djörfung og dugur Þessi Kvennskælingur gaf allt sitt í ratleik í miðbænum þar sem hann steypti sér ofan í Reykjavíkurtjörn að hætti andanna. Ekki fylgir sögunni að hverju hann var að leita en ef það var ástin er hann vitlausum megin við Tjarnarbrúna þar sem fönguleg hafmeyja situr venjulega sunnanmegin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI arib@frettabladid.is birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Almennar f jöldatak- markanir fóru úr 200 í 500 manns á miðnætti í gær og opnunartími skemmtistaða lengdist um klukku- stund. Skemmtistaðir mega nú taka á móti gestum til miðnættis og allir gestir þurfa að vera farnir út klukkan 01.00. Sérstakt ákvæði sóttvarnareglna heimilar samkomur fyrir 1.500 manns með notkun hraðprófa, er það sérstaklega hugsað fyrir skóla- böll. Framhaldsskólanemar hafa kvartað sáran yfir að hafa ekki getað farið á ball. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra sagði að loknum ríkis- stjórnarfundi í gær að samstaða væri innan ríkisstjórnarinnar um nýju reglurnar og að hraðprófin yrðu fólki að kostnaðarlausu. Á höf- uðborgarsvæðinu munu hraðprófin til að byrja með fara fram í húsnæði Heilsugæslunnar við Suðurlands- braut á milli klukkan 8 og 20. Stefnt er að því að auka aðgengi að hrað- prófum, reglugerð þess efnis verður birt á næstu dögum. Reglurnar gilda til 6. október. n Fimm hundruð mega koma saman Skemmtistaðir mega nú taka á móti gestum til miðnættis. Faxafeni 11 • Sími 534 0534 • www.partybudin.is Búningar! Skraut! birnadrofn@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Borið hefur á skorti á íslensku grænmeti og þá aðal- lega agúrkum í verslunum landsins síðustu daga. Kristín Linda Sveins- dóttir, markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir ástæðuna minni framleiðslu samfara aukinni eftirspurn. „Það hefur hægt aðeins á gúrku- framleiðslunni vegna þess að bændur voru að skipta út plöntum en það þarf alltaf að gera reglulega,“ útskýrir Kristín. „Á sama tíma ger- ist það að skólarnir eru að byrja og mötuneytin að opna, atvinnulífið er allt að fara af stað og meira er að gera á veitingastöðum svo það er gríðarleg eftirspurn,“ bætir hún við. Gúrkur hafa löngum verið vin- sælar hjá Íslendingum, þær inni- halda mikið magn vatns, eða 96 grömm í hundrað grömmum, auk þess innihalda þær A-, B- og C-víta- mín, kalk og járn. Þær eru ræktaðar allt árið um kring og er plantað út allt að fimm sinnum á ári en í hefð- bundinni ræktun er þeim plantað tvisvar á ári, í febrúar og maí eða júní. Ræktunar tími gúrku er nokkr- ar vikur. „Annað sem bændur hafa verið að upplifa samhliða þessu er að erfitt reynist að fá fólk til starfa. Á þessum háannatíma hefur viðbótafólk oft komið inn en það er erfitt að fá það inn núna,“ segir Kristín. Hún segir landsmenn þó ekki þurfa að bíða lengi eftir gúrkunum, von sé á þeim í verslanir á næstu dögum. „Það hefur verið góð tíð í blóm- káli og það er nóg til af rófum,“ segir Kristín en bendir á að veður- far hafi haft áhrif á grænmetisfram- leiðsluna í ár, kaldir vordagar hafi seinkað komu útiræktaðs græn- metis í verslanir. Íslenskt útiræktað grænmeti var um það bil tveimur vikum seinna á ferðinni í ár en vanalega. Maímán- uður var kaldur og það rigndi lítið. Aðalútiræktunarsvæði fyrir íslenskt grænmeti er Flúðasvæðið á Suður- landi og þar var sérlega kalt í vor. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var maímán- uður hér á landi þurr um allt land og óvenju lítið rigndi fyrstu þrjár vikur mánaðarins. Meðalhiti í Árnesi í maí síðastliðnum var 4,8 stig sem er 1,7 stigum undir meðaltali áranna 1991 til 2020. „En þetta er að komast í jafnvægi núna,“ segir Kristín. n Engin gúrkutíð í verslunum landsins um þessar mundir Íslenskt útiræktað grænmeti var um tveimur vikum seinna í ár en venjulega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Grænmetisskortur hefur verið í verslunum landsins að undanförnu. Ástæður þar að baki eru meðal annars minni framleiðsla og aukin eftir- spurn. Þá segja bændur að erfiðara sé að fá fólk til starfa á þessum háannatíma. kristinnhaukur@frettabladid.is SAMGÖNGUR Nýjum sprengjuleitar- tækjum verður komið fyrir í farang- ursbelti Keflavíkurflugvallar. Isavia hefur samið við franska fyrirtækið Alstef Group um innleiðingu hins nýja kerfis, sem mun leysa af hinn hefðbundna skanna sem er nú til staðar. Farþegarnir sjálfir munu einnig taka eftir breytingum því að farang- ursbeltunum sjálfum verður skipt út fyrir hallandi belti. Alstef hefur víðtæka reynslu af uppsetningu farangurskerfa en þetta er fyrsta verkefni fyrirtækisins hér á landi. n Tæki til að leita að sprengjum komið fyrir í Keflavík Kerfið leysir skannann af. 2 Fréttir 15. september 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.