Fréttablaðið - 15.09.2021, Page 6
Samstarfið við Fram-
faraflokkinn gæti hafa
reynst henni dýrt, að
mínu mati.
Þóra Tómas-
dóttir, upp-
lýsingafulltrúi
Advania
benediktboas@frettablaid.is
SAMFÉLAG Tékkar ákváðu á mánu-
dag að færa klukkuna áfram um
einn klukkutíma yfir sumartímann
og til baka yfir veturinn. Tilraunin á
að standa í fimm ár.
Jana Maláčová félagsmálaráð-
herra sagði að ákvörðunin væri í
raun ekkert sérlega flókin. Tékkar
væru að feta í fótspor f lestra Evr-
ópulanda sem hafa gert þetta síðan
1970 með góðum árangri. Það væru
jú aðeins Íslendingar, Rússar, Hvít-
Rússar og Grænlendingar sem gerðu
þetta ekki.
Tékkar ætla að færa klukkuna síð-
asta sunnudag í mars og færa hana
aftur í fyrra horf síðasta sunnudag
í október. n
Klukkan færð
áfram í Tékklandi
Klukkan færist síðasta sunnudag í
mars og sama vikudag í lok október.
svavamarin@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Dómsmálaráðuneytið
hefur ekki svarað fyrirspurn Félags
atvinnurekenda um hvort sala
áfengis í gegnum netverslanir sé
heimil hér á landi eða ekki. Dóms-
málaráðherra segir það sína skoðun
að jafna þurfi leikinn.
„Ég lagði þá leið til að leggja fram
frumvarp sem breytti lögum og
gerði íslenska netsölu löglega,“ sagði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, eftir
ríkisstjórnarfund í gær.
„Það var talin sú leið sem væri
þörf á enda er hér einokunarversl-
un með áfengi. Það náði því miður
ekki fram að ganga en það er mín
einarða skoðun að við ættum að
jafna leik íslenskra vefverslana við
erlendar.“ n
Jafna þarf leikinn
Áslaug Arna gerði netsölu löglega
með frumvarpi en vill gera meira.
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Stjórnarmyndunarviðræður
vinstriflokka í Noregi eru
hafnar. Íslendingur var í fyrsta
sinn kjörinn á Stórþingið.
hjorvaro@frettabladid.is
NOREGUR Vinstrif lokkar Noregs
náðu bestu niðurstöðu úr þing-
kosningum til norska Stórþingsins
síðan í kosningunum eftir seinni
heimsstyrjöld um síðastliðna helgi.
Þrír f lokkar á vinstrivængnum,
Verkamannaflokkurinn, Senterpar-
tiet og Sósíalíski vinstriflokkurinn,
fengu 100 þingsæti og eru með fjög-
urra sæta meirihluta í Stórþinginu.
Ríkisstjórn Ernu Solberg fer því frá
völdum eftir átta ára valdatíð.
Þóra Tómasdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Advania, hefur starfað sem
fréttaritari fyrir TV2 og norska rík-
isútvarpið. Hún fylgdist grannt með
kosningunum og segir niðurstöður
þeirra stórmerkilegar.
„Það er svo sem ekkert nýtt að
völdin sveif list í Noregi þar sem
í gegnum söguna hafa hægri- og
vinstrivængurinn ekki setið lengi
í einu við stjórnvölinn. Það sem er
hins vegar merkilegt er hversu góða
kosningu Verkamannaflokkurinn
fær, 26 prósent, og hvað sveiflan er
mikil til vinstri,“ segir Þóra.
„Það voru meðal annars umhverf-
ismál sem voru efst á baugi í þess-
um kosningum en Norðmenn
eru að átta sig á því að það er þörf
á því að leita að öðrum lausnum
við atvinnusköpun en í olíufram-
leiðslu. Þá vill þorri landsmanna
stíga stærri og hraðari skref í átt að
sjálfbærara og vistvænna samfélagi.
Erna Solberg er vinsæll stjórn-
málamaður í Noregi og það er heilt
yfir mikil sátt um hennar störf.
Þannig að það er ekki óánægja með
hana persónulega sem skýrir fylgis-
tap hægriflokkanna.
Samstarfið við Framfaraf lokk-
inn gæti hafa reynst henni dýrt, að
mínu mati. Framfaraflokkurinn er
kannski það sem mætti kalla óróa-
f lokkur í anda hinna popúlísku
flokka víða um heim.
Hann hefur sýnt mikinn mótþróa
við aðgerðir í loftslagsmálum, berst
fyrir ódýrara bensíni og er með
harða og umdeilda stefnu í útlend-
ingamálamálum.
Hvert hneykslismálið á fætur
öðru hefur komið upp hjá Framfara-
flokknum á kjörtímabilinu sem ýtti
undir óánægu með stjórnarsam-
starfið og bitnaði á vinsældum Ernu
og félaga hennar,“ segir hún.
„Verkamannaflokkurinn er svo
að ná vopnum sínum að nýju eftir
erfið ár. Flokkurinn hefur til dæmis
þurft tíma til að jafna sig á brott-
hvarfi Jens Stoltenberg sem var
sameiningartákn í Noregi og naut
virðingar þvert á flokka líkt og Erna
Solberg,“ segir Þóra.
„Fjölmargir Norðmenn kalla nú
eftir meiri jöfnuði í landinu og telja
að fráfarandi ríkisstjórn hafi með
aðgerðum sínum aukið bilið milli
ríkra og lágtekjufólks í landinu.
Verkamannaf lokkurinn hefur
ávallt talað fyrir jöfnuði og fær því
aukið fylgi nú eða 26 prósent. Það
telst sigur þó það þyki ekki mikið
fylgi í sögu f lokksins. Það verður
samt sem áður í höndum Stöhre að
mynda nýja ríkisstjórn og að öllum
líkindum verður hann forsætisráð-
herra.
Minni sveitarfélögum og fólki
sem vinnur í landbúnaði í dreif-
býliskjörnum hefur svo fundist
það hafa verið skilin út undan í
stjórnartíð borgaraf lokkanna.
Þegar kórónu veiran skall á var fólk
sem býr utan stóru borganna ræki-
lega minnt á mikilvægi sjálf bærni
svo sem með rafmagn og matvæla-
framleiðslu.
Senterpartiet hefur talað málstað
landsbyggðarinnar fyrir öf lugri
byggðastefnu og uppskar glæsilegan
kosningasigur í þetta sinn. Flokkur-
inn verður því sá næststærsti í ríkis-
stjórn vinstrimanna,“ segir Þóra.
Mímir Kristjánsson er fyrsti
Íslendingurinn til þess að setjast inn
á norska Stórþingið. Flokkur hans,
Sósíalistaflokkurinn, fékk átta þing-
menn kjörna en ætlar að standa
utan stjórnarmyndunarviðræðna
þrátt fyrir að styðja stefnu vinstri-
flokkanna í megindráttum.
„Norðmenn eru komnir með
nóg af aukinni misskiptingu auðs
í landinu. Staðreyndin er sú að
auðurinn er að færast yfir á sífellt
færri hendur og fátækt er að aukast á
sama tíma. Ég held að stefna vinstri-
manna um jöfnuð hafi fengið aukið
fylgi þar sem Norðmönnum finnst
nóg komið í þessum efnum,“ segir
Mímir.
„Þar að auki er aukin einkavæð-
ing orkufyrirtækja þyrnir í augum
margra hér í Noregi og sú stað-
reynd að ríkir einstaklingar græði á
nýtingu þjóðarauðlinda í stað þess
að auðurinn dreifist jafnar og betur
út í samfélagið,“ segir hann einnig.
„Láglauna- og millistéttarfólk
hefur síðan orðið fyrr vonbrigðum
með störf Framfaraf lokksins en
f lokkurinn hefur, að ég held, ekki
náð að uppfylla væntingar þeirra
um að auka hag þeirra. Þess í stað
hefur flokkurinn staðið fyrir skatta-
lækkunum fyrir þá tekjuhæstu og
aukið misskiptingu,“ segir Mímir.
„Við Rauðliðar erum mjög ánægð-
ir með okkar kosningu en við erum
lengra til vinstri en þeir flokkar sem
munu fara í stjórnarmyndunarvið-
ræður.
Þrátt fyrir góða kosningu er
atkvæðavægi okkar ekki nógu
sterkt að okkar mati til þess að við
myndum ná stefnumálum okkar til
framkvæmda. Við munum styðja
væntanlega vinstristjórn en teljum
heillavænlegast að standa utan
stjórnarinnar,“ segir þingmaðurinn.
Mímir segist ekki sjá að neinn
ágreiningur standi í vegi fyrir
myndun vinstristjórnar. Það sé
aðallega munur á milli f lokk-
anna hversu hratt eigi að ganga í
að breyta málum og koma stefnu-
málum flokkanna í framkvæmd. n
Þorri almennings kominn með nóg
af aukinni misskiptingu auðsins
Jonas Gahr Störe verður líklega næsti forsætisráðherra Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Mímir Kristjáns-
son, þingmaður
á Stórþinginu
bth@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur
ekki haft samband við forsetafrúna
þannig að embættið veit ekki hvort
nafn hennar er á einhverjum vitna-
lista. Þetta kemur fram í svari frá Sif
Gunnarsdóttur forsetaritara vegna
fyrirspurnar Fréttablaðsins.
Eftir að Fréttablaðið skýrði frá
því í síðustu viku að fyrrverandi
starfsmaður embættisins hefði í júlí
síðastliðnum kært samstarfsmann
sinn vegna kynferðisbrots kom
fram í DV að Eliza Reid forsetafrú
væri á vitnalista vegna málsins.
Meintur þolandi sem bjó á Bessa-
stöðum, líkt og hinn kærði, bar í
Fréttablaðinu brigður á að embættið
hefði brugðist sem skyldi við vanda
í starfsmannahaldi um árabil. Það
hefði komið honum í opna skjöldu
að manninum hefði verið leyft að
snúa aftur til starfa að loknu leyfi
eftir örlagaríka skemmtiferð starfs-
manna forsetaembættisins til Par-
ísar 2018, þar sem atvik urðu sem
leiddu til þess að embættið sendi
manninn í leyfi og veitti honum
skriflega áminningu.
Forsetaembættið sagði í svari við
fyrirspurn blaðsins í liðinni viku að
vegna skipulagsbreytinga yrðu störf
tveggja starfsmanna sem hafa haft
búsetu á Bessastöðum lögð niður.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
gefur á þessu stigi ekkert upp um
kæruna. n
Lögreglan ekki haft samband við
forsetafrúna um Bessastaðamálið
Vegna skipulagsbreyt-
inga verða störf starfs-
mannanna tveggja sem
hafa búsetu á Bessa-
stöðum lögð niður.
6 Fréttir 15. september 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ